Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 45

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Page 45
43 VII. Próf. Guðfræðisdeildin. í lok siðara kennslumisseris luku 6 stúdentar embættis- prófi í guðfræði. Skriflega prófið fór fram dagana 27., 28., 30. og 31. maí. Verkefni í skriflega prófinu voru þessi: I. í gamlatestamentisfrœðum: Hós. 3, i—4, s. II. í ngjateslamentisfrœðum: Ger grein fyrir aðaleinkennum bænalífs Jesú og helztu ummælum hans um bænina, samkvæmt þvi, sem guðspjöll vor skýra frá. III. I samstœðilegri guðfrœði: Hvernig gerðu gömlu lútersku guðfræðingarnir grein f}rrir forsjónar-afskiftum Guðs, og hvað er það, sem nútíminn leggur mesta áherzlu á, þegar um afskifti Guðs af heiminum er að ræða? IV. í kirkjusögu: Ignatius Loyola og Jesúfélagið. Hinn 10. maí voru kandidötunum tilkynntir prédikunar- textarnir. Var hlutað um, í hvaða röð þeir skyldu ganga upp til munnlega og verklega prófsins, og svo um, hvern texta hver þeirra skyldi hljóta. Varð niðurstaðan þessi: 1. Einar Guðnason hlaut textann Post. 7, 59—so. 2. Jón Auðuns hlaut textann Gal. 5, 6. 3. Jón Thorarensen hlaut textann Post. 2, 42. 4. Gunnl. B. Einarsson hlaut textann Lúk. 17, 20—21. 5. Þorgrímur Sigurðsson hlaut textann Lúk. 2, «9. 6. Sigurjón Guðjónsson hlaut textann Lúk. 10, 30—37. Allir kandídatarnir skiluðu ræðum sinum á tilsettum tíma. Prófdómendur voru hinir sömu sem áður, dr. Jón biskup Helgason og Bjarni dómkirkjuprestur Jónsson. Prófinu var lokið laugardaginn 22. júni.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.