Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 65

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1929, Síða 65
63 Um áraraót 1928—1929 póttist stjórn Mensa sjá fram á það, að fyrirtækið mundi framvegis ekki geta starfað á sama grundvelli og áður. Bar það einkum ti), að þátttaka var þar minni en áður, þá ekki nema um 45 roenn (þar af 11—12 stúdentar), í stað 50—60 á undanförn- um árum, en þó öllu heldur hitt, að mötunautar skulduðu um 10500 krónur, sem var óhúílega mikið, miðað við alla veltu stofnunarinnar. Stúdentaráðið gat ekkert aðhafzt í málinu fyr en reikningar ársins 1928 voru til, en það var ekki fyr en i febrúarlok. Voru þá seltir sér- stakir menn til að kynna sér málið og athuga orsakir þess, að svona skyldi komið. Sú athugun leiddi til þess, að stúdentaráð taldi það heppilegast öllum aðiljum, að stofnunin yrði lögð niður í þeirri mynd, sem hún hefur verið. Féllst almennur stúdentafundur á það, og var samþykkt að segja upp húsnæði Mensa og leggja hana niður fyrst ura sinn frá júnílokum 1929. Var það og gert, og hefur Jón Jónsson síðan unnið að því að gera upp reikninga o. fl. Mönnum var það ljóst, að stúdentalif mundi bíða töluverðan hnekki við það, að Mensa væri lögð niður, svo að stúdentar hefðu engan stað, þar sem þeir gætu hitzt, haldið fundi, setið og ráðið ráðum sínum. Stúdentaráðið leitaði því fyrir sér um slíkan samkomustað, og varð það að lokum úr, að samið var við Friðgeir Sigurðsson matsala í Kirkjutorgi 4, að hann seldi stúdentum nokkrum saman mat fyrir hæfilegt verð, en þeir mættu koma þar almennt og hafa sína henti- semi svipað þvi sem var á Mensa. Sótti stúdentaráðið um stjTk i þessu skyni til Háskólaráðs, og var því tekið vel, að sama fjárhæð og áður hafði runnið til Mensa mundi verða veitt; þó var eigi alveg gengið frá þessu, þegar starfstími ráðsins var á enda. Stúdentagarður. í stúdentagarðsnefnd áttu sæti: Forkell Jóhannesson skólastjóri, dr. Björn Pórðarson lögmaður, Ólafur Lárusson prófessor, Björn E. Árnason cand. juris, Tómas Jónsson cand. juris, Ludvig Guðmunds- son skólastjóri og Pétur Benediktsson stud. juris. Er starfstími nefnd- arinnar var úti, var hún öll endurkosin nema Pétur Benediktsson, sem eigi gaf kost á sér aftur; i hans stað var kosinn Ragnar Jónsson stud. juris. Pegar stúdentaráðið tók við störfum, voru allar horfur á, að mjög hráðlega mundi verða byrjað á byggingu garðsins. Pá um haustið var safnað loforðum hjá stúdentum um að vinna við grunngröftinn a. m. k. Tóku menn þvi misjafnlega, en þó yfirleitt vel, og tóku flestir þeir stúdentar, sem einhver veigur er i, þátt í verkinu, og þótti hin bezta skemmtun að hrista af sér bókarykið rétt í bili. Nemendur í Iær- dómsdeild Menntaskólans fengu og frí, hver bekkur í einn dag, til að vinna þarna að.

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.