Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Qupperneq 33
31
eplum var athugað sérstaklega og var meðaltalið 16,9 mg (8,6—
27,9 mg). Hefði meðaltal eplanna líklega hækkað upp í tæplega
3 mg, ef hýðið hefði verið reiknað með.
Sést af þessu, að epli hafa að jafnaði tiltölulega lítið gildi sem
C-vítamíngjafi og standast að því leyti engan samanburð við
appelsínur og sítrónur.
B. DÝRAFÆÐA.
ANIMAL FOODS.
Mjólk.
Alls voru, á árunum 1945—1947, rannsökuð 91 sýnishorn af
gerilsneyddri mjólk (úr mjólkurbúðum í Reykjavík), og var
árangur sem sýnt er í töflu 10.
Um eitt skeið var gert ráð fyrir, að allmikill munur væri á
mjólkinni eftir árstíðum, þannig að mest væri af C-vítamíni í
henni á sumrin og fram eftir hausti, minna á vetrum og minnst
á vorin. Þetta hefur þó ekki reynzt vera svo, þ. e., árstíðamunar
að þessu leyti mun varla gæta að ráði, enda eru kýrnar óháðar
C-vítamínmagni fóðursins, þær mynda þetta vítamín sjálfar —
sennilega í sambandi við efnabreytingar kolvetna — eins og flest
önnur dýr gera.
í sumarmjólkinni, sem var athuguð, mældist lítið eitt meira
TAFLA 10.
Gerilsneydd mjólk. Pasteurized milk.
ÁrstíS Season Fjöldi rannsókna Number of examina- tions C-vítamín, mg/lOOOml Meðaltöl Average values Staðalskekkja meðaltals Standard error of mean
Október—desember 26 10,4 ± 1,84 ± 0,36
Janúar—apríl 37 10,6 ± 1,71 ± 0,28
Júní—september 28 11,4 ± 1,97 ± 0,37
Alls 91 10,8 ± 1,85 ± 0,20
Totál