Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Side 51
49
ínsýra var mæld í þriggja stunda þvagi þrjá morgna í röð,
síðan gefinn stór skammtur af askorbínsýru (700 mg miðað við
140 Ibs. líkamsþyngd) og mælt, hve mikið kemur fram í þriggja
stunda þvagi frá 4.—7. klst. eftir að skammturinn var tekinn inn.
Seinna var þessu þó breytt þannig, að prófsýnishorn var tekið
frá 31/2—5% klst. eftir inntökuna (16; 17), en innan þess tíma
var talið að vænta mætti hámarks brottfærslu í þvaginu (16; 17).
Venjulega kemur ekki fram í þvaginu aukið magn askorbínsýru
að nokkru ráði eftir fyrsta prófskammtinn, og er það skýrt þann-
ig, að vefir líkamans hafi drukkið asorbínsýruna, sem til þeirra
barst í blóðinu, svo ört í sig, að ekki hafi þess vegna komið til
brottfærslu í þvaginu. Sami skammtur er nú gefinn daglega, þang-
að til stórfelld aukning brottfærslu kemur fram í þvaginu, ca. 50
mg eða meira, og er það talið merki þess, að nú séu vefirnir
orðnir ,,mettaðir“.
Hve marga prófskammta þarf, til að fá þannig svörun í þvagi,
á þá að fara eftir því, hve mikið af C-vítamíni hafi verið í vefj-
um líkamans, en það er aftur háð neyzlunni undanfarið.
Samkvæmt samanburðarathugunum, er gerðar voru (17) á
C-vítaminneyzlu og árangri mettunarprófs með ofangreindri að-
ferð, fékkst jákvætt svar (mettun) þegar á fyrsta degi meðal
þeirra, sem um nokkurra mánaða skeið höfðu fengið 45 mg dag-
lega, eða meira, af C-vítamíni. Aðrir, er fengið höfðu 37 mg dag-
lega (35—40 mg), þurftu ýmist einn eða tvo prófskammta, en
þegar neyzlan var aðeins 23 mg (20—25 g), þurfti 2—3 skammta
til mettunar.
Telja margir mettunarprófið vel fallið til að dæma um C-víta-
mínbúskap manna, enda hefur það verið talsvert notað í því
skyni, en aðferðin hefur verið nokkuð breytileg, misjafnlega
stórir prófskammtar, og þvagsýnishorn ekki alltaf tekið á sama
tíma, svo að árangur er ekki alltaf sambærilegur. Ýmsir ann-
markar eru á prófi þessu, er takmarka notagildi þess, og verður
vikið nánar að því.
Mœling C-vítamíns í blóði. Tiltölulega auðvelt er að mæla
askorbínsýru í blóðvökva (plasma) eða blóðvatni (serum). Slík-
ar mælingar hafa verið notaðar allmikið við fjöldarannsóknir,
7