Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Qupperneq 17
15
ályktajnir. Nú er það svo, að auðveldara er að mæla líkamlegt
atgervi en andlegan þroska, enda veit ég ekki til þess, að fyrir
liggi neinar niðurstöður, er úr skeri um það, hvort hinn and-
legi þroski æskufólksins helzt í hendur við hinn líkamlega.
En sé svo, sem líklegt má telja, þá er rétt að álykta svo, að
tími sé til þess kominn að breyta skipan skólakerfisins og færa
stúdentsprófið aftur, þannig að meðalaldur nýstúdenta verði
18 ár í stað 20, sem verið hefur nú um alllanga hríð undan-
farið. Mörgum mun vera kunnugt um það, að áður var stúd-
entsaldurinn enn hærri en nú er, um 22 ár í kringum síðustu
aldamót. Hér hefur því breyting á orðið. En betur má ef duga
skal. Hér eins og víðar höfum við Islendingar ekki fylgzt nógu
vel með tímanum, þrátt fyrir allt skraf um það, hversu fljótir
við séum að tileinka okkur ný vísindi og tækni. Meðal frænd-
þjóða okkar á Norðurlöndum er stúdentaaldurinn nú um 18 ár
og hefur svo verið um nokkra hríð. En meðan hér fer fram svo
sem nú horfir um þroska og aldur nemenda, að þeim er hald-
ið á skólabekk langt fram á fullorðinsár, skyldi enginn láta
sér bregða, þótt svo kunni til að bera, að maður rekist á fjöl-
skyldufólk í nemendatali æðri skólanna hér. Mér er tjáð, að
allmikill hluti háskólastúdenta sé gift fólk. Slíkt þótti á mín-
um stúdentsárum, fyrir svo sem 30 árum, heyra stórtíðindum
til, og ef satt skal segja ekki neinn tiltakanlegur framavegur
fyrir vísindamenn. Nú eru breyttir tímar, og ég skal engan
dóm leggja á þessa hluti, og samkvæmt því, sem ég sagði áðan,
ætla ég að forðast að leggja ykkur, nýstúdentar, lífsreglur.
Mín persónulega skoðun á þessu skiptir líka að sjálfsögðu ekki
miklu máli. Hins vegar ætti það þá ekki heldur að hneyksla
neinn, þó ég láti í ljósi þá ætlun mína, að vænlegra sé þeim,
sem framast vilja í einhverri vísindagrein, að láta sér ekki
of brátt um að staðfesta ráð sitt. Létt er laus að fara, stendur
í Sólarljóðum. Sjálfsagt er ofmælt, að þetta giftingarstand
stúdenta stafi alls kostar af því, að þeir séu í raun og veru
eldri en árin segja til. Að einhverju leyti mun þetta stafa frá
góðærinu, sem hér hefur ríkt um hríð undanfarið, og er slíkt
forn reynsla. Á hinn bóginn skal ekki í efa dregið, að góður