Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Page 150
148
ið á árinu a. m. k. 30—40 fundir, en nokkrar fundargerðir vantar í
gjörðabók Stúdentaráðs fyrir handvömm ritara og staðgengla hans.
Þess má geta, að störf ráðsins gengu mjög greiðlega, enda sam-
hentur meirihluti fyrir hendi.
Hátíödhöld og skemmtanir.
a) 1. desember. Á fundi Stúdentaráðs 30. okt. lögðu fulltrúar Vöku
til, að breytt yrði tilhögun hátíðahaldanna í hátíðasal frá því, sem
verið hefur, þannig að fulltrúar sem flestra menntamannastétta flyttu
ræður um framtíðarhorfur íslendinga. Tillaga þessi var samþykkt
samhljóða.
Hátíðahöldin sjálf hófust með guðsþjónustu í kapellu Háskólans
kl. 11 f. h. og sá Bræðralag um undirbúning hennar að þessu sinni.
Síra Jón Auðuns dómprófastur prédikaði. Kl. 14 flutti Þórarinn
Björnsson skólameistari á Akureyri ræðu úr útvarpssal. Kl. 15.30
hófst samkoma í hátíðasal Háskólans. Formaður Stúdentaráðs flutti
þar ávarp, Guðmundur Jónsson lék á píanó og þeir Ásgeir Þorsteins-
son verkfræðingur, dr. Jóhannes Nordal hagfræðingur, dr. Broddi
Jóhannesson og próf. Níels Dungal fluttu erindi um efnið „Hverjar
eru framtíðarhorfur íslendinga?“. Útvarpað var úr salnum. Erindi
þessi og ræða Þórarins Björnssonar vöktu þjóðarathygli, og þótti
þessi nýbreytni hátíðahaldanna hafa tekizt mjög vel.
Kl. 19 hófst fullveldisfagnaður á Hótel Borg. Var þar fjölmenni
mikið. Meðal gesta voru forsetahjónin, herra Ásgeir Ásgeirsson og
frú Dóra Þórhallsdóttir. Guðmundur Ásmundsson hrl. flutti ræðu, en
að henni lokinni fóru fram ýmis skemmtiatriði, og að lokum var
stiginn dans fram eftir nóttu.
Stúdentaráð gaf út blað 1. des., svo sem venja hefur verið til.
Ritnefnd skipuðu: Árni G. Finnsson stud. jur., Hjörtur Torfason stud.
jur., Benedikt Blöndal stud. jur., Jón Marínó Samsonarson stud. mag.
og Haukur Helgason stud. oecon. í samræmi við stefnu meirihluta
Stúdentaráðs og ritnefndar fjallaði blaðið einkum um baráttu þjóð-
arinnar fyrir sjálfstæði, varðveizlu þess og framtíð íslendinga. Nokkr-
ar deilur urðu að venju um efni blaðsins.
b) Áramótafagnaður var haldinn á Hótel Borg í félagi við Stúd-
entafélag Reykjavíkur. Er það álit ráðsins, að sú skipan sé heppileg
um þá skemmtun. Þar undu menn sér vel við dans og aðra skemmt-
un fram eftir nóttu.
c) Sumarfagnaður var haldinn á Hótel Borg um sumarmál. Karl
Guðmundsson flutti gamanþátt og Guðmundur Jónsson óperusöngv-
ari söng. Þá skemmtu menn sér einnig við dans og almennan söng.
Góður bragur þótti á skemmtun þessari, þótt í fámennara lagi væri.