Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1957, Qupperneq 176
174
Aðrir héldu þvi hins vegar fram, að þrátt fyrir alla þessa galla á I.U.S.
mætti greina nokkra tilhneigingu hjá sambandinu í átt til batnaðar, sem
sjálfsagt væri að virða. Þetta sjónarmið réði því síðan, að S.H.l. gerðist að-
ili að I.U.S. árið 1955.
Á því timabili, sem síðan er liðið, hafa ekki orðið neinir sérstakir árekstr-
ar milli S.H.l. og I.U.S., enda hafa ekki komið upp nein mál, þar sem sér-
staklega reyndi á einlægni I.U.S. um að standa vörð um réttindi stúdenta
hvar sem er í heiminum.
Svo kom þar, að á síðastliðnu hausti hófu stúdentar í Ungverjalandi
uppreisn gegn valdhöfunum og kröfðust aukins akademísks frelsis og að
frumstæðustu mannréttindi og lýðræði væru virt í landinu. Öll ungverska
þjóðin gerði kröfur stúdentanna um aukin mannréttindi og lýðræði að sín-
um og barðist hetjulegri baráttu fyrir frelsi sínu, þar til hin sviksamlega
íhlutun Sovéthersins braut byltinguna á bak aftur á hinn hryllilegasta hátt.
10—15% ungverskra stúdenta neyddust til að flýja land og halda námi sínu
áfram í öðrum löndum.
Öllum er kunnugt, hver afstaða íslenzkra stúdenta er til þessa máls.
Þeir styðja af heilum hug baráttu ungversku stúdentanna og þjóðarinnar
allrar fyrir frelsi og mannréttindum.
Því olli það undrun og jafnframt hneykslun allra íslenzkra stúdenta, er
I.U.S., sem telur sig standa vörð um réttindi stúdenta hvar sem er í heim-
inum, tók þann kost að þegja um þetta mál. Sambandið gerði hins vegar
mjög harðorða ályktun um milliríkjamál eins og Súezdeiluna, sem ekki
snertir stúdentamálefni sérstaklega.
S.H.I. vildi ekki una þessu og sendi I.U.S. til samþykktar ályktun um Ung-
verjalandsmálið, sem túlkaði skoðanir íslenzkra stúdenta í þessu efni. Álykt-
un þessi var tekin fyrir á framkvæmdanefndarfundi I.U.S. nú i marzmán-
uði, en hlaut þar engan hljómgrunn og var felld. Hins vegar gerði fundur-
inn ályktun um málið, sem ekki felur í sér nokkra fordæmingu á ofbeldinu
og tekur í rauninni enga afstöðu í málinu. Verður þvi að álykta, að I.U.S.
hafi með þögn sinni lagt blessun sína yfir ofbeldisverk Sovéthersins og lepp-
stjórnarinnar í Ungverjalandi.
Forystumenn I.U.S. hafa að undanförnu rætt mikið um, að þeir viður-
kenni hin miklu mistök sambandsins á umliðnum árum og fullyrt, að fram-
vegis mundu svo stórvægileg mistök ekki koma fyrir, enda hefði stefna og
starfshættir sambandsins verið endurskoðaðir.
Af hálfu S.H.I. er litið svo á, að afgreiðsla Ungverjalandsmálsins hafi ver-
ið nokkurs konar prófsteinn á, hvort mark væri takandi á þessum fullyrð-
ingum.
En I.U.S. féll á prófinu og gerði um leið hrapalegustu „mistökin“ í
sögu sambandsins.
S.H.l. telur, að gagnrýni sú á I.S.U., sem fram kemur í upphafi þessarar
greinar, sé enn í fullu gildi. Þau atriði ásamt afstöðu I.U.S. í Ungverjalands-
málunum telur S.H.I. valda þvl, að áframhaldandi aðild að I.U.S. komi ekki
tii greina og lýsir því hér meö yfir úrsögn sinni úr Alþjóðasambandi stúd-
enta (I.U.S.).
Rétt er að taka það skýrt frara hér, að greinargerð þessi og úr-
sögnin var samþykkt mótatkvœöalaust í Stúdentaráði.