Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 10
Háskóli
íslands
og framtíðin
Ræða rektors Háskóla íslands á háskólahátíð 3. september 1999
Oft hefur verið sagt að háskólastarf felist í öflun. varðveislu og miðlun þekkingar
og skilnings á heiminum og sjálfum okkur. í hversdagslegri merkingu er þekking
uppsöfnuð reynsla sem hjálpar okkur til að átta okkur á veruleikanum. leysa
ýmis verk af hendi og ekki síst að forðast mistök. sem þó henda okkur iðulega.
Það er ekki aðeins í háskólum sem þekking er í hávegum höfð. Hvarvetna í störf-
um sínum aflar fólk sér þekkingar, varðveitir hana og miðlar henni með ýmsum
hætti. En hvað sérkennir starf háskóla í þessu tilliti?
Yfirvegun þekkingarinnar
í háskóla erathyglinni beint að þekkingunni sjálfri. hinni uppsöfnuðu reynslu.
sem vekur sífetlt nýjar spurningar og álitamál sem þarf að brjóta til mergjar. Há-
skólastarf felst í nákvæmu og skipulögðu endurmati þekkingarinnar sem felur í
sérstöðuga viðleitni tit að ná fyllri tökum á viðfangsefnunum. Þetta endurmat fel-
ur jafnframt í sér viðleitni til að öðlast skilning á því hvernig þekking mannfólks-
ins kemur fram í því sem það gerir, gæti gert eða ætti að gera fyrir tilstyrk henn-
ar. Svo dæmi sé tekið. þá er hagfræðin ekki aðeins rannsókn á ólíkum hagkerfum
og staðreyndum efnahagslífsins. Hún fjallar líka um hugmyndir manna og skoð-
anir í þessum efnum og leggur á ráðin um lausn ýmissa úrlausnarefna.
Samkvæmt þessu snýst háskólastarf um að gera sér tjóst hvað mannfólkið hugs-
ar og gerir og hvað það gæti hugsað og gert eða jafnvel hvað það ætti að hugsa
og gera - í öllum greinum tífsins. Háskólafólk - fræðimenn. kennarar og nem-
endur - fæst sífellt við að yfirvega reynstu og þekkingu á öllum sviðum þjóðfé-
lagsins. Slíkt kann að hafa meiri og dýpri áhrif á þróun þjóðfétagsins og viðgang
en nokkurn grunar, vegna þess að hér er þýðing þekkingarinnar og gildi hennar
fyrir mannlífið í húfi.
Það er margt í þjóðfélaginu nú á dögum sem hvetur háskólafólk til að leggja enn
meiri rækt við yfirvegun þekkingarinnar og gera þennan þátt í starfi sínu augljós-
ari en verið hefur. Þróun nýrrar tækni í flestum störfum fótks og samskiptum
skiptir hér mestu ásamt þeim breytingum á skipulagi, stjórnun og rekstri sem
koma í kjölfar hinnar nýju tækni.
Hin nýju lög um Háskóla Islands. sem gengu í gildi 1. maí sl„ kalta eftir auknu
frumkvæði háskólakennara og stúdenta og raunar alls starfsfólks Háskótans við
mótun háskótastarfsins. Framkvæmd laganna byggist á því að háskótakennarar
og aðrir háskólaþegnar séu fúsir til að taka virkari þátt í því að móta stefnu og
starf skótans en verið hefur og þá jafnframt í því að skoða og ræða stöðu fræð-
anna í þjóðfélaginu. gildi þeirra og áhrifamátt. Háskólafundurinn. sem fyrirhugað-
ur er í fyrsta skipti dagana 4. og 5. nóvember næstkomandi. gefur okkur mikil-
vægt tækifæri tit að móta framtíðarstefnu Háskólans og þar með háskólamennt-
unar í tandinu. Til að nýta það tækifæri þurfum við að endurmeta okkar eigin
starfsemi og gera þjóðinni jafnframt grein fyrir því hvernig við teljum að Háskól-
inn geti sem best unnið í hennar þágu.
Sérstaða Háskóla íslands
Hér er ástæða til að minna á nokkrar staðreyndir. Háskóli (slands er ekki stór
skóli á atþjóðlegan mælikvarða, einungis með rúmlega 6 þúsund nemendur, um
400 fasta kennara. um 80 sérfræðinga. yfir 1200 stundakennara og um 150 manns
í öðrum störfum við stjórnun og rekstur. Erlendir háskólamenn tala oft um þetta
ó