Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Blaðsíða 93
Málstöðin annast fyrir hönd íslenskrar málnefndar tengsl við orðanefndir sem
starfa á ýmsum sérsviðum og er þeim innan handar á margan hátt. í árstok 1999
voru samtats 48 orðanefndir skráðar í íslenskri málstöð. Haltdór Halldórsson
prófessor starfaði á vegum íslenskrar málnefndar sem málfarsiegur ráðunautur
Orðanefndar byggingarverkfræðinga. Orðanefnd Skýrslutæknifélags íslands hélt
vikulega fundi sína í ístenskri málstöð. Orðanefnd um ónæmisfræði hélt einnig
fundi sína í íslenskri málstöð og starfsmaður nefndarinnar, Þuríður Þorbjarnar-
dóttir, hafði vinnuaðstöðu í málstöðinni. Þuríður vinnur þar einnig við endurbætur
á Líforðasafni. Haldið var áfram samvinnu við Orðanefnd Félags viðskiptafræð-
inga og hagfræðinga um gerð hagfræðiorðasafns. Dóra Hafsteinsdóttir. ritstjóri
orðabankans. vann jafnframt að gerð orðasafns um krydd. ávexti og grænmeti og
að gerð orðasafns um þýðingafræði.
Erlent samstarf
íslensk mátnefnd á ýmis samskipti við aðrar málnefndir á Norðurtöndum. Aðal-
vettvangur samstarfsins er Norrænt málráð. Fundir voru haldnir í ráðinu í Dan-
mörku í febrúar og á íslandi í ágúst. íslensk málnefnd er aðili að Nordterm, sam-
tökum norrænna íðorðastofnana. og á futltrúa í stjórnarnefnd og vinnunefndum
samtakanna. Nordterm efndi til fundar í Gentofte í Danmörku í tengslum við ráð-
stefnuna Nordterm 99. 13.-16. júní.
íslensk mátstöð tók þátt í tveimur verkefnum sem njóta styrkja úr MLIS-áætlun
Evrópusambandsins. Annað verkefnið nefnist Nordterm-net og lýtur að því að
safna saman sem flestum tötvutækum orðasöfnum á Norðurtöndum. einkum íð-
orðasöfnum. og gera þau aðgengileg sem „Norræna orðabankann" með einu og
sama viðmóti á Netinu og á geisladiskum. Að verkefninu standa norrænar íðorða-
stofnanir. Ari Páll Kristinsson sótti vinnufund um verkefnið í Stokkhólmi 15.-16.
febrúar. Að hinu verkefninu standa íðorðastofnanir um atla Evrópu. Það er kallað
TDC-net og miðarað því að koma á Evrópuneti opinberra eða opinberlega viður-
kenndra stofnana sem fást við skráningu íðorða og íðorðaskráa.
Styrkir
Starfsemin hlaut nokkra styrki á árinu. Frá Mjótkursamsötunni í Reykjavík:
250.000 kr. (sbr. samstarfssamning við fyrirtækið). Frá Letterstedtska félaginu:
172.134 kr. til norræna mátnefndaþingsins 1999. Úr Lýðveldissjóði: 300 þúsund kr.
til stafsetningarorðabókan 300 þ.kr. til málfarsleiðbeininga á Netinu; 200 þ.kr. til
útgáfu greinaflokks um íslenska tungu. Úr Málræktarsjóði: 900 þ.kr. til mátfars-
banka íslenskrar málstöðvan 300 þ.kr. til stafsetningarorðabókar. Mjólkursamsal-
an í Reykjavík færði málstöðinni fimm einkatölvur, móðurtölvu og prentara.
Umsagnir, álitsgerðir og amþykktir
Meðat umsagna. átitsgerða. samþykkta o.fl. sem stofnunin sendi frá sér á árinu
má nefna eftirfarandi:
Ábending ístenskrar mátnefndar (6. janúar) til Staðlaráðs íslands viðvíkjandi úttiti
bókstafsins ð í staðlinum ISO 3098. Bréf íslenskrar málnefndar til Háskóla ístands
(9. febrúar) þar sem þess er vinsamlega farið á leit að þess verði ekki krafist að
umsóknir um starf við Háskólann séu á ensku. Umsögn íslenskrar málstöðvar
(19. febrúar). að beiðni menntamálanefndar Atþingis. um frumvarp tit útvarps-
laga. Umsögn íslenskrar málnefndar (16. mars). að beiðni menntamálaráðuneyt-
is. um titlögu fjármálaráðuneytis þess efnis að tögum um ístenska málnefnd
verði breytt til samræmis við þá meginreglu taga nr. 70/1996 að forstöðumenn
stofnana skuli skipaðir af ráðherra. Umsögn íslenskrar málnefndar (19. apríl), að
beiðni Norræns málráðs, um norrænt málsamstarf og hlutverk og frammistöðu
Norræns málráðs. Bréf ístenskrar málnefndar til samgönguráðuneytis (22. júní)
viðvíkjandi birtingu á ákvörðunum og reglum. sbr. 140. gr. laga nr. 60/1998 um
loftferðir. Umsögn íslenskrar mátnefndar (30. ágúst) um titlögur menntamála-
ráðuneytis um breytingar á 1. og 4. gr. málnefndarlaganna. Svar íslenskrar mál-
nefndar (1. október) við erindi frá Háskóla ísiands viðvíkjandi endurskoðun á
reglugerð um íslenska málnefnd og starfsemi (slenskrar málstöðvar. Svar (s-
tenskrar málnefndar (19. október) við erindi frá menntamálaráðuneyti um undir-
búning og staðfestingu opinberra stafsetningarreglna. Umsögn íslenskrar mál-
stöðvar (20. október). að beiðni iðnaðarnefndar Alþingis. um frumvarp til laga um
breytingu á starfsheiti tandslagshönnuða.
Guðrún Kvaran var tilnefnd aðalmaður í Norrænu málráði og Kristján Árnason til
vara fyrir tímabilið 2000-2002. Kristján Árnason var tilnefndur af hálfu íslenskrar
málnefndar í starfshóp samgönguráðuneytis sem á að gera tillögur um fram-
kvæmd 140. gr. taga nr. 60/1998 um loftferðir, og birtingu regtna í ftugmálahand-
bók og hvort þær skuti vera á íslensku eða ensku. Samþykkt var að franskt heiti