Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Síða 35
Gert var samskonar súlurit á síðasta ári og eru breytingar á milli ára óverulegar.
Það má þó benda á að nú eru konur í lektorsstarfi orðnar fleiri en karlar. Hugsan-
lega má skýra það með því að fleiri karlar hafa hlotið framgang í dósentsstarf en
konur. þar sem bilið milli fjölda kvenna og karla í starfi dósents eykst lítillega frá
fyrra ári. Enn er því nokkuð í land með að jafnræði sé með fjölda kvenna og karla
í starfi dósenta og prófessora. Konur í hópi stundakennara á föstum launum eru
fleiri en karlar eins og undanfarin ár. Þó fersá munur minnkandi.
Stundakennsla
Lausráðnum stundakennurum fjölgar með hverju ári. Árið 1998 voru þeir um
1.580 og 1999 um 1.620. Stundakennsla á árinu 1999 var um 170 þúsund stundir.
Það samsvarar því að um 158 stundakennarar á föstum launum væru í fullu starfi
allt árið. Er þá miðað við kennsluskyldu stundakennara á föstum launum sem er
1072.5 stundir á ári. Fastir kennarar við Háskólann eru um 400 þannig að þáttur
stundakennara erstór. miðað við heildarkennslu við skólann. Dreifing stunda-
kennslu á deildir má sjá á töflu og súluriti.
Tafta 1 - Stundakennsla umreiknuð í kennarastörf eftir deildum og í stundum.
Sem starfsgildi
stundakennara
á föstum launum Fjöldi stunda /eininga
1) 2) 3)
Alls A stundir B stundir Atts
Guðfræðideild 3,40 3.622 24 3.646
Læknadeild 13,14 13525 569.5 14.095
Lagadeild 6.96 7.447 16 7.463
Viðskipta- og hagfræðideitd 17,74 16.681 2.345 19.026
Heimspekideitd 13,41 12.735 1.643 14.378
Tannlæknadeild 6,53 7.007 0 7.007
Verkfræðideild 12,63 11.247 2.300 13.547
Raunvísindadeild 35,64 29.537 8.691 38.228
Félagsvísindadeild 18,48 16.525 3.290 19.815
Lyfafræði lyfsala 1,80 1.930 0 1.930
Námsbraut í hjúkrunarfræði 21,36 20.975 1.935 22.910
Námsbraut í sjúkraþjátfun 6,99 7.486 12 7.498
158,08 148.717 20.826 169.543
1) Kennsluskylda slundakennara á föstum launum erl 072.5 stundir á ári fyrir 1007. starf.
2) A er stundakennsla greidd í tímavinnu
3) B er stundakennsla sérfræðinga greidd í yfirvinnu
Auglýsingar
Altar auglýsingar um störf við Háskólann þurfa að birtast a.m.k. einu sinni í dag-
t>laði sem gefið er út á landsvísu. auk þess eru þær birtar á heimasíðu starfs-
mannasviðs: www.starf.hi.is.
Á árinu 1999 voru auglýst laus til umsóknar 92 störf við Háskóla (slands. Þar af
kröfðust 55 hæfnisdóms (fræðastörf) og 37 voru almenn störf. Umsækjendur um
fræðastörfin voru 93 og um atmennu störfin 279. Samtats bárust starfsmanna-
sviði því 372 umsóknir.
Gerður hefur verið samanburður á fjölda auglýstra starfa og fjölda umsækjenda á
árunum 1997-1999. Gerður var greinarmunur á hvort um væri að ræða almenn
störf eða störf þarsem krafist er hæfnisdóms. Engin breyting hefur orðið á fjölda
auglýstra fræðistarfa frá árinu 1997 en umsækjendum hefurfækkað nokkuð.
Meiri breyting er á fjölda auglýstra almennra starfa og fjölda umsækjenda. Skipt-
ir>g umsækjenda milli kynja sést á súluritunum. Þar kemur fram að þeim konum
fækkar hlutfaltstega sem sækja um fræðastörf en fjölgar sem sækjast eftir að
Oegna almennum störfum við skólann.
Heimasíða
Heimasíða sviðsins er í stöðugri þróun. Helstu breytingar á þessu ári fólust í því
að inn á hana var sett „Handbók fyrir stjórnendur" sem starfsmannasvið gaf fyrst
út árið 1996. Reglutega eru sendar út viðbætur við handbókina og uppfærslur. Nú
er stærstur hluti bókarinnar kominn inn á Netið og er stefnt að því að tjúka því
verki á næsta ári. Stóðin en www.hi.is/stjorn/handbok/index.html.