Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Blaðsíða 54
margirstundakennararvið deildina. Breytingará starfsliði fastráðinna kennara
voru venju fremur littar á árinu, einungis var ráðið í eitt lektorsstarf er Jón Axel
Harðarson var ráðinn lektor í íslensku. Þá var Vésteinn Ólason, prófessor í ís-
lenskum bókmenntum. ráðinn forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar frá 1.
maí en sem forstöðumaður verður hann jafnframt áfram prófessor við deildina.
Svavar Sigmundsson dósent í íslensku fyrir erlenda stúdenta sagði starfi sínu
lausu frá og með 1. febrúar. en hann hafði þá verið ráðinn forstöðumaður Ör-
nefnastofnunar Islands. Talsverðar breytingar urðu á sendikennaraliði deildarinn-
ar. Þau Siri Agnes Karlsen og Jon Hoyer sendikennarar í dönsku hættu störfum.
og var Jens Lohfert Jorgensen ráðinn í stað Siri 1. september. Ekki hefur enn
verið ráðið í starf Jons Hoyers. Eero Suvilehto. sendikennari í finnsku, hætti störf-
um í lok vormisseris eftir fimm ára dvöl hér og 1. september tók Sari Paivarinne
við því starfi. Þá tók Gro Tove Sandsmark 1. september við starfi norsks sendi-
kennara af Kjell Magne Óksendal sem hvarf aftur til fyrri starfa í Noregi. Franski
sendikennarinn Colette Fayard hætti störfum eftir sex ára dvöl hér og 1. septemb-
er tók Denis Bouclon við því starfi. Einn kennari í deildinni. Sigríður Þorgeirsdóttir
lektor í heimspeki. hlaut framgang í starf dósents á árinu.
í samræmi við ný lög um Háskóla íslands nr. 41/1999 urðu talsverðar breytingar á
hlut deildarinnar í yfirstjórn Háskólans. Samkvæmt lögunum kjósa heimspeki-
deild og guðfræðideild sameiginlegan fulltrúa í háskólaráð og tvo varamenn. Á
fyrsta sameiginlega fundi deildanna 26. apríl var Oddný G. Sverrisdóttir kjörin að-
alfulltrúi en Pétur Pétursson og Álfrún Gunnlaugsdóttir voru kosin varamenn.
Samkvæmt 8. gr. sömu laga ber heimspekideild að kjósa þrjá fulltrúa til setu á
háskólafundi auk deildarforseta. Fulltrúar deildarinnar voru kosnirá deildarfundi
í október og eru aðalfulltrúar Gunnar Karlsson. Pétur Knútsson og Sigríður Þor-
geirsdóttir. fyrsti varamaður Guðrún Þórhallsdóttir. annar Eiríkur Rögnvaldsson
og þriðji Auður Hauksdóttir.
Við heimspekideild starfa tvær fastanefndir, stöðunefnd og vísindanefnd. Stöðu-
nefnd ber að fjalla um framgangs- og ráðningarmál og veita umsögn um þau.
Nefndina skipa átta prófessorar við deildina auk starfandi deildarforseta hverju
sinni sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Vísindanefnd er deildarforseta og
deildarráði til ráðuneytis um þau málefni sem falla undir verksvið hennar. Ýmsar
aðrar nefndir störfuðu á árinu 1999, t.d. fjármálanefnd. kynningarnefnd og þróun-
arnefnd. Fjármálanefndin vinnur að skiptingu fjár á milli skora og fylgist með
fjárhagsstöðu deildarinnar. Kynningarnefnd annast kynningu á þeim námsleiðum
sem nemendum standa til boða og hefur einnig umsjón með gerð vefsíðna. Þró-
unarnefnd vinnur m.a. að uppbyggingu fjarnáms og gerir tillögu að stefnu deild-
arinnar í tölvumálum.
Á árinu fékk heimspekideild allar hæðir Nýja-Garðs til afnota. Efsta hæðin var af-
hent Hugvísindastofnun en á aðra hæðina fluttust kennarar í ensku úr Aragötu 14
auk ýmissa annarra kennara. Með auknu húsrými hefur reynst unnt að útvega
stundakennurum á föstum launum vinnuherbergi en um árabil höfðu þeir ekkert
athvarf innan veggja Háskólans þótt þeir annist verulegan hluta kennslu í ýmsum
greinum. Með Nýja-Garði hefur ræst verulega úr tangvarandi húsnæðisvandræð-
um og sjást þess þegar merki í bættum starfsanda og afköstum.
Kennsla
Til B.A.-prófs voru kenndar eftirtaldar greinar: Almenn bókmenntafræði. almenn
mátvísindi. danska, enska, finnska. franska. gríska, heimspeki. íslenska. íslenska
fyrir erlenda stúdenta (tit B.Ph.lsl.-prófs), ítalska, latína. norska, rússneska. sagn-
fræði. spænska. sænska og þýska. Einnig á heimspekideild aðild að námi í
kynjafræðum sem aukagrein til B.A.-prófs.
Til M.A.-prófs voru kenndar eftirtaldar greinan Almenn bókmenntafræði. danska.
enska. íslensk fræði, íslensk mátfræði. íslenskar bókmenntir og sagnfræði.
Til M.Paed.-prófs var kennd íslenska.
Til doktorsprófs voru kenndar eftirtaldar greinan íslensk mátfræði. íslenskar bók-
menntir og sagnfræði. Virkir doktorsnemar á árinu voru átta talsins.
50
J