Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 55

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 55
Heimspekideild 1995 1996 1997 1998 1999 Skráðirstúdentar 1.328 1.338 1.198 1.171 1.237 Brautskráðir B.A.-próf 134 109 148 139 139 B.Ph.lsl.-próf 5 5 5 8 10 M.A.-próf 12 22 7 8 15 M.Paed.-próf 2 1 2 4 4 Cand.mag.-próf 1 1 1 Táknmálstúlkun 4 4 Doktorspróf 1 1 1 Kennarastörf 81.25 78.81 75,24 76.03 76,85 Sendikennarar 8 8 8 8 8 Aðrir starfsmenn 4.55 2.33 5.9* 6.74* 4.8* Stundakennsla/stundir 14.400 Útgjöld (nettó) í þús. kr. 156.171 173.102 180.560 253.102 277.399 Fjárveiting í þús. kr. 152.832 166.367 178.486 213.881 271.133 ' Stofnanir deildar meðtaldar Tölur um skráða stúdenta miðast við janúar árið eftir. þ.e. mitt námsárið. Þau nýmæli urðu á árinu að sett var upp námsleið í miðatdafræðum sem auka- grein til B.A.-prófs. Þá gerðist heimspekideild aðili að M.A.-námi í umhverfis- fræðum sem Umhverfistofnun hefur umsjón með en ýmsar deildir Háskólans standa að. Meðal námskeiða þar var „Siðfræði náttúrunnar sem heimspekiskor stóð fyrir á haustmisseri. Á vormisseri 1999 var hafinn undirbúningur að nýrri tegund náms, svokölluðum stuttum hagnýtum námsleiðum. þar sem kenndar eru 45 einingar til diplóma- prófs. Á haustmisseri fór af stað kennsla í hagnýtri íslensku og hagnýtri spænsku en frestað var um eitt ár áformum um að hefja kennslu í hagnýtri dönsku og frönsku. Einnig var hafinn undirbúningur að kennslu í hagnýtri þýsku og þýðing- um og þýðingafræði en Ijóst var frá upphafi að ekki yrði farið af stað með þau áform fyrr en haustið 2000. Á haustmisseri 1999 hófst tilraun með fjarkennslu á vegum íslenskuskorar. Hér var um brautryðjendastarf að ræða innan Háskólans. Tvö námskeið voru í boði og fór kennsla fram með fjarfundabúnaði og á Netinu. Rúmlega 10 nemendur á sex stöðum á landinu hófu námið. Brottfall var mjög lítið og luku flestir nemendanna prófi í desember. Kennarar og nemendur voru sammáta um að þessi titraun hefði tekist vonum framar og stefnir skorin að því að auka og efla fjarkennslu á næstu misserum. Á haustmisseri var Tungumálamiðstöð Háskóla íslands formlega opnuð með að- setur í kjallara Nýja-Garðs og hefur heimspekideitd umsjón með kennslunni. í Tungumálamiðstöðinni er boðið upp á stýrt sjálfsnám sem byggist á nútímalegum kennsluháttum og sveigjanlegri stundaskrá og er námið opið nemendum allra deilda Háskólans. Þar er nýjustu tölvu- og fjarskiptatækni beitt í þágu tungumála- náms og -kennslu. Þannig er nemendum t.d. gert kleift að komast í beint sam- band við það tungumát sem þeir leggja stund á og jafnframt þann menningar- heim sem tungumálið tengist. í miðstöðinni ertölvuver með margmiðlunartölv- um. gervihnattasjónvarp og myndbandstæki. og þar geta nemendur nálgast ýmiss konar kennsluefni. m.a. á geisladiskum og myndböndum. Tungumálamið- stöðin nýtist einkum tvenns konar markhópum. Annars vegar nemendum sem ^eggja stund á tungumálanám við H. í. og fer þá hluti af hefðbundnu tungumála- námi fram í Tungumálamiðstöðinni. Hins vegar nýtist stöðin þeim nemendum sem ekki leggja stund á eiginlegt tungumálanám en vilja ná góðum tökum á er- lendu máli vegna væntanlegs starfs eða náms. hérlendis eða erlendis. Hvað fyrri hópinn varðar. þá hafa tungumálanemendur tekið þessari aðstöðu fagnandi og vinna þar er orðinn fastur þáttur í nokkrum námskeiðum. t.d. viðskiptafrönsku. frönsku. viðskiptaspænsku. spænsku og viðskiptaensku. Til að bregðast við þörf- um síðari hópsins er boðið upp á sérstök tungumálanámskeið og hófust þau á haustmisseri 1999. Fjögur tungumál eru í boði: danska. franska. spænska og þýska og verða haldin tvö námskeið á ári í hverju þeirra. Allir nemendur Háskót- ans geta skráð sig í þessi námskeið og eru þau metin til þriggja eininga hvert. 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.