Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Blaðsíða 62
Bæklingur um val kjörgreina við lagadeild. í byrjun mars ár hvert gefur lagadeild
út bækting um val kjörgreina í seinni htuta laganáms. í riti þessu eru greinargóð-
ar lýsingar á öllum þeim námskeiðum sem í boði eru í kjörnáminu. mun ítarlegri
upplýsingar en í kennsluskrá H.í. Þar er einnig listi yfir þær kjörgreinar. sem í
boði verða næstu tvö háskólaárin. í ritinu eru auk þess birtar reglur um kjörnám
við deildina auk annarra reglna um laganámið almennt. Bæklingnum er dreift til
laganema á þriðja og fjórða ári iaganáms fyrir árlegan skráningardag í námskeið
við H.í. og á sérstakri kjörgreinakynningu í marsbyrjun ár hvert.
Kjörgreinakynning fyrir þriðja og fjórða árs laganema. Orator, félag laganema,
stendur fyrir kynningarfundi í byrjun mars ár hvert um kjörgreinar við lagadeild
með þátttöku kennslustjóra og kennara.
Almenn námskynning á vegum H.Í.. Lagadeild hefur. eins og aðrar deitdir Háskól-
ans, sérstakan kynningarbás á árlegri námskynningu H.Í., sem fram fer í byrjun
aprílmánaðar. Laganemar auk kennstustjóra mæta þar til að veita almennar og
sértækar upplýsingar um laganámið. auk þess sem dreift er einbtöðungi um nám
við tagadeild.
Heimasíða lagadeildar. Lagadeild tók formlega í notkun heimasíðu sína hinn 2.
október 1999. Þar er að finna upplýsingar um deildina. kennara og stjórnsýslu.
laganámið atmennt. um námskeið í kjarnanámi og kjörnámi auk fjölda annarra
gagnlegra upplýsinga. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar á ensku fyrir er-
lenda stúdenta og aðra. Vinna við gerð heimasíðunnar heldur stöðugt áfram.
Næsta stig er að auka efni frá kennurum lagadeildar auk kynningar á kennurun-
um. Slóð heimasíðunnar er: www.hi.is/nam/taga
Bæklingur á ensku um nám við lagadeild. Árlega er gefinn út bæklingur á ensku
um starfsemi lagadeildar. Hann er sérstaklega ættaður erlendum Erasmus- og
Nordplus-stúdentum. sem sækja þau námskeið deitdarinnar sem kennd eru á
ensku. Bæklingurinn nýtist einnig öðrum erlendum stúdentum og fræðimönnum
sem áhuga hafa á námi og fræðistörfum við deildina.
Vinnuferð lagakennara til meginlands Evrópu
Haustið 1997 fór þorri fastráðinna kennara lagadeildar í einnar viku vinnuferð til
Danmerkur. Sú heimsókn heppnaðist vet og skilaði miklum árangri. Snemma árs
1999 hófst undirbúningur að annarri vinnuferð. að þessu sinni til Lúxemborgar og
Strassborgar. Ferðin var farin í byrjun september með þátttöku níu lagakennara
auk kennslustjóra. Deildarforseti og kennslustjóri önnuðust altan undirbúning og
fararstjórn. Helstu áfangastaðir voru EFTA-dómstóllinn og Evrópudómstóltinn í
Lúxemborg og síðan Mannréttindadómstóltinn, Evrópuráðið og Robert Schuman
háskólinn í Strassborg. Markmið ferðarinnar var að kynnast starfsemi þessara
stofnana. bókasöfnum og gagnasöfnum þeirra og kanna hvort og hvernig þau geti
nýst starfsmönnum og nemendum í lagadeild með hjálp upplýsinga- og sam-
skiptatækni nútímans. Enn fremur voru lögð drög að frekari samvinnu um útveg-
un aðstöðu á þessum stöðum fyrir íslenska nemendur og fræðimenn. Engin fjár-
útlát hafa hlotist af þessum ferðum fyrir lagadeild. allur kostnaður var greiddur
með styrkjum og framtögum þátttakenda sjálfra.
Málþing lagadeildar til heiðurs Ármanni Snævarr áttræðum
Lagadeitd efndi til mátþings 2. október 1999 í hátíðasal Háskólans þar sem var
fjallað um réttarþróun á ýmsum sviðum lögfræðinnar. Málþingið var hatdið til
heiðurs Ármanni Snævarr prófessor sem varð áttræður 18. september 1999.
Gunnar G. Schram prófessor stýrði málþinginu og var dagskrá þess sem hér
segin ónatan Þórmundsson, forseti tagadeitdar: Setningarávarp. Páll Skúlason.
háskólarekton Ávarp. Guðrún Erlendsdóttir. hæstaréttardómari: „Sifjaréttur á 20.
ötd - Breytingar á fjötskyldugerð". Sigurður Líndal. prófessor: „Að setja þekk-
ingu”. Pátl Sigurðsson. prófessor: „Straumhvörf í kirkjurétti". Jónatan Þórmunds-
son, prófessor: „Þróun refsiréttar í tjósi mannréttinda". Einar Sigurbjörnsson,
prófessor við guðfræðideild: „Upphaf laga vorra". Ármann Snævarr. prófesson
Lokaorð. Heimasíða lagadeildar formlega tekin í notkun.
Hollvinafélag lagadeildar
Aðalfundur Hollvinafélags lagadeildar var haldinn 21. september 1999 og voru þá
eftirtaldir einstaklingar kosnir í stjórn félagsins: Halldór Jónatansson formaður,
Lára V. Júlíusdóttir gjaldkeri. Lilja Jónasdóttir ritari. Arnljótur Björnsson og Jónas
Þór Guðmundsson meðstjórnendur. en auk þeirra sitja forseti lagadeildar og
kennslustjóri fundi stjórnarinnar. Á fundinum flutti forseti lagadeildar erindi sem
hann nefndi „Lagadeild í blíðu og stríðu".
58