Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 79

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 79
ans að fá enga fjárveitingu frá hinu opinbera. hvorki til rannsóknastarfa né fyrir stöðuheimitdir starfsmanna. Stofnunin hefur. líkt og á fyrri árum. að mestu leyti fjármagnað starfsemi sína með því að sinna hagnýtum þjónusturannsóknum fyrir aðila bæði utan og innan Háskólans en að auki hefur hún notið nokkurra styrkja til einstakra fræðilegra rannsóknarverkefna. svo sem frá Rannsóknasjóði H.í. og Rannsóknarráði íslands. Stofnunin fjármagnar sjálf allan tækjabúnað og rekstr- arkostnað sinn og greiðir Háskóla íslands markaðsverð fyrir alta þá aðstöðu er hún nýtir í Háskólanum. svo sem húsnæði. rafmagn. hita og ræstingu. Gagnasöfn Sem fyrr sinnir stofnunin hagnýtum þjónusturannsóknum samhliða öftun gagna fyrir fræðitegar rannsóknir. Félagsvísindastofnun hefur byggt upp viðamikið gagnasafn með upptýsingum um velferðarmál. menntamál. kjaramál. húsnæðis- mál, atvinnumál. byggðamál, stjórnmál, fjölmiðla, neystuhætti. fjölskytdumát. menningu og almenn þjóðmál. Gögnin ná til upplýsinga um aðstæður. skityrði og viðhorf fólks og þar á meðal eru gögn sem aflað hefur verið með reglubundnum hætti um árabil. til dæmis ýmsar upplýsingar um atvinnu. menntun, tekjur. fylgi stjórnmálaflokka og þjóðmál. Félagsvísindastofnun hefur tekið þátt í fjölþjóðlegu rannsóknastarfi á síðustu árum. til dæmis á sviði lífskjara- og velferðarrannsókna og rannsókna á lífsskoðunum og viðhorfum. Stofnunin hefuraðgang að gögnum um lífsskoðun og viðhorf frá rúmlega 40 löndum og gögnum um lífskjör og tífshætti alls staðar að af Norðurlöndunum. Stofnunin hefur eins og á fyrri árum gert rannsóknir fyrir ráðuneyti og opinberar stofnanir, hagsmunasamtök og almenn félagasamtök. flesta fjötmiðla landsins. einstaka rannsóknarmenn og fyrirfjölda fyrirtækja. Hagnaði af starfseminni er varið til að kosta fræðilega gagnaöflun og til að byggja upp tækjabúnað og hug- búnað. Á tímabilinu 1995-1999 hefur tölvubúnaður stofnunarinnar verið talsvert endurnýjaður. Þá hefur stofnunin einnig varið umtalsverðu fé til að kosta útgáfu fræðilegra rita á sviði félagsvísinda. Á síðustu árum hefur stofnunin aukið mjög útgáfu fræðirita. Þá hefur verið tekið upp það nýmæli að aðstoða nemendur í M.A.-námi auk þess sem stofnunin hefur skotið skjólshúsi yfir og haft samstarf við félagsvísindafólk sem vinnur að sjálf- stæðum rannsóknum. Allmargir meðlimir félagsvísindadeildar hafa notað sér Þjónustu stofnunarinnar á síðastliðnum þremur árum og nokkrir hafa einnig haft umsjón með verkefnum á vegum hennar. Rannsóknir Viðamestu rannsóknarverkefni Félagsvísindastofnunar árið 1999 voru kannanir á lífsskoðunum og framtíðarsýn við atdamót. á lífsskoðunum ungs fólks í vesturn- orrænum löndum og á vinnuviðhorfum og kjaramálum verslunarmanna. Könnun á lífsskoðunum og framtíðarsýn við aldamót var gerð í flestum löndum Evrópu og Ameríku á sama tíma. Sams konar könnun var gerð 1990 og gefur það rnöguleika á samanburði. hvort tveggja milli þjóðfélaga og innan þeirra. Könnun á lífsskoðunum ungs fólks í vesturnorrænum löndum var gerð að beiðni vesturnor- rasna ráðherraráðsins og gefur hún haldgóðar vísbendingar um líklega þróun samfélagsins á komandi árum auk þess að vera gagnabanki um stöðu mála þeg- ar hún var gerð. Kannanir á kjaramálum og vinnuviðhorfum verslunarmanna voru annars vegar unnar fyrir VR og hins vegar landssamband íslenskra verslunarmanna. Meginvið- fangsefni voru viðhorf til starfs. vinnustaðar og kjaramála. Samanburður var gerður á viðhorfum og kjaramálum VR-félaga og félagsmanna annarra aðildarfé- laga LÍV. Húsnæðismál Sumarið 1999 flutti stofnunin starfsemi sína úr Odda. þar sem hún hefur verið frá upphafi, í Aragötu 9. Við þetta breyttist aðstaða starfsmanna mikið til hins betra, en hin þrönga aðstaða í Odda hafði takmarkað starfsemi stofnunarinnar um nokkurt skeið. Starfsmenn Starfslið Fétagsvísindastofnunar í reglubundnu starfi árið 1999 var sem hér segin ^ylgja Valtýsdóttir, Guðtaug J. Sturludóttir. Gunnar Þór Jóhannesson. Hrefna Guð- mundsdóttir. Ingibjörg Kaldalóns. María Ammendrup. Karl Sigurðsson, Kristjana Stella Blöndal, Lára K. Sturtudóttir og Sóley Tómasdóttir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.