Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 134
Helstu rannsóknasvið nú eru stýritækni. hugbúnaðarverkfræði. tölvuverkfræði og
tölvufræði. Á undanförnum árum hefur stofan tekið þátt í rannsóknarverkefnum í
samvinnu við inntend og evrópsk fyrirtæki.
Kerfisverkfræðistofa þróaði sjálfvirkt tilkynningakerfi fyrir skipaftotann í sam-
vinnu við Slysavarnafélagið. Kerfið hefur einnig verið útfært fyrir flugvélar og
tandfarartæki. Samvinna við Flugmátastjórn og Ftugkerfi hf. hefur verið mikil
undanfarin ár. m.a. við þróun ratsjárgagnavinnslukerfis sem hefur verið í notkun
hjá Flugmálastjórn um nokkurt skeið. Hagkvæmnisathuganir hafa verið gerðar
fyrir ratsjár á Hornafirði og á Grænlandi. Enn fremur hefur verið unnið að stórri
fjölþjóðlegri rannsókn á framtíðarflugumferð. Beiting herma til þess að líkja eftir
hegðun kvikra kerfa hefur verið umfangsmikið svið við stofuna, að hluta styrkt af
Rannís. Samvinna var við Hitaveitu Reykjavíkur (Orkuveitu Reykjavíkur) og Raf-
hönnun um gerð hermis af Nesjavallavirkjun. Enn fremur var þróaður flugum-
ferðarhermir og ratsjárgagnavinnsluhermir í samvinnu við Flugmálastjórn ís-
lands. Integra Consult og flugmálastjórn Tékklands. Einnig hefur verið þróaður
hermir af járnblendiofnum í samvinnu við ístenska járnbtendifélagið.
Kerfisverkfræðistofa hefur verið þátttakandi i nokkrum stórum verkefnum sem
styrkt hafa verið af Evrópusambandinu. í AMUSE-verkefninu voru gerðar titraunir
á gagnvirkri dreifingu á margmiðlunarefni yfir hraðvirkt net til notenda í heima-
húsum, en slíka þjónustu er nú farið að veita á almennum markaði hér á landi.
Um þessar mundir er unnið að rannsóknir á endurbótum í hugbúnaðargerð í
nánu sambandi við iðnaðinn og erlenda samstarfsaðila. Að lokum má nefna að
unnið er að verkefni. sem styrkt er af Rannís. í samvinnu við Landssímann, Há-
skólann á Akureyri og Landspítatann á sviði fjarþjónustu. svo sem fjarlækninga
og fjarkennslu, sem dreift er til notenda um hraðvirkt ATM-net.
Á upplýsinga- og merkjafræðistofu er m.a. unnið að sérhæfðri úrvinnslu mæli-
gagna. skráningu fjölrása gagna, síun og breytingu merkja á tölvutækt form. Þró-
aðar eru aðferðir til greiningar og úrvinnslu gagna. til að mynda í fjarskiptafræði,
lífverkfræði, lífeðlisfræði og jarðvísindum.
Fjarkönnun. myndvinnsla. tölvugreind, toðnar (fuzzy) reikniaðferðir og tauganets-
reiknar eru mikilvæg sérsvið innan stofunnar. I fjarkönnun eru stundaðar mæl-
ingar úr flugvélum. m.a. til eftirtits með virkum eldfjötlum. breytingum á jarðhita-
svæðum og til að kortleggja gróðurþekju. Enn fremur er unnið úr ýmiss konar
gervitunglagögnum.
Stofan hefur á undanförnum árum átt samstarf við Conexant Systems Inc. um
greiningu á ólínulegri bjögun í fjarskiptarásum og gagnaþjöppun á tali. Einnig
hefur verið samstarf við Flögu hf. Taugagreiningu hf. geislaeðlisfræðideild Land-
spítalans og augndeild Landspítatans um greiningu tífeðtisfræðilegra merkja. t.d.
í sjúkdómsgreiningu.
straumfræðistofa
Megináherslan í rannsóknum varma- og straumfræðistofu hefur verið á sviði
hitaveitukerfa þarsem stofan hefurtekið umfangsmikinn þátt í norrænum verk-
efnum og tengst Hitaveitu Reykjavíkur. nú Orkuveitu Reykjavíkur. Árið 1995 sam-
þykkti Hitaveitan að fjármagna tímabundna stöðu prófessors á sviði hitaveituverk-
fræði sem hafa mun aðsetur við stofuna.
Rannsóknir á straumfræði veiðarfæra fara fram við stofuna í nánu samstarfi við
Hampiðjuna. Vinnsluferli sjávarfangs er viðfangsefni þarsem samvinna hefur
verið við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og fyrirtæki í sjávarútvegi.
130