Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Side 138
Þjónustustofnanir
Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands
Upphaf og aðstandendur
Endurmenntunarnefnd Háskóla íslands starfaði frá árinu 1983 til 1991 en þá var
sett á stofn með lagabreytingu Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands sem er
rekin með sama hætti og Endurmenntunarnefnd áður. Sérstök reglugerð var sett
fyrir stofnunina árið 1991. Samkvæmt sérstökum samstarfssamningi sem byggist
á reglugerðinni standa að stofnuninni auk Háskóla ístands. Tækniskóli íslands.
Bandalag háskólamanna (BHM). Arkitektafélag íslands, Hið íslenska kennarafé-
tag. Tæknifræðingafélag íslands og Verkfræðingafélag íslands.
Stjórn, starfsfólk og kennarar
Stjórn Endurmenntunarstofnunar er skipuð af háskólaráði samkvæmt áðurnefnd-
um samstarfssamningi. í henni sitja fimm fulltrúar tilnefndir af Háskóla íslands
og sex fulltrúar tilnefndir af samstarfsaðilum. Stjórnarformaður er Valdimar K.
Jónsson og endurmenntunarstjóri Kristín Jónsdóttir. Á skrifstofunni vinna þrettán
starfsmenn í 12,65 stöðugildum. Kennarar eru altir verktakar og skipta þeir hund-
ruðum á hverju ári.
Umfang starfseminnar og helstu fræðslusvið
Meginviðfangsefni Endurmenntunarstofnunar er símenntun á háskólastigi. Flest
námskeið á vegum stofnunarinnar eru 4-25 klukkustundir en allmörg ná yfir heilt
misseri. (vaxandi mæli boðið upp á heilsteypt nám sem lýkur með prófum. Það
er eins til tveggja ára nám samhliða starfi. Fjöldi námskeiða og þátttakenda hefur
vaxið ár frá ári
Fjöldi þátttakenda á námskeiðum
14000 -----------------------------------------------
12000 ---------------------------------------------1
10000----------------------------------------ru -
8000 -------------------------------------- -
6000 -------------------------------p-l n - - - -
4000 - i—|
2000 --------------rT"ri'' ---------
0 - ---T — -T-1-1--1-1--1--T - T - T-1-1-
'83 '84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99
n
_ -
—
—I 1
■ 1
Starfstengd styttri námskeið
Alls sóttu 8.763 manns stutt starfstengd námskeið á árinu. Helstu viðfangsefnin
voru:
• Rekstur, stjórnun, starfsmannastjórnun. gæðastjórnun, fjármagnsmarkaður.
• Lögfræði, hagfræði, reikningsskil. sölu- og markaðsmál, fjármálastjórn.
• Heilbrigðis-, félags- og uppeldismál, tölfræði og rannsóknir.
• Hugbúnaðargerð, vefsmíðar og Netið.
• Byggingar, umhverfi, rafmagn, tölvur, vélar og iðnaður.
• Námskeið fyrir framhaldsskólakennara.
134