Árbók Háskóla Íslands - 31.12.1999, Page 139
Misserislöng kvöldnámskeið í samstarfi
við heimspeKÍdeild H.í.
Boðið var upp á misserislöng kvöldnámskeið í samstarfi við heimspekideitd H.Í..
m.a. um bókmenntir, heimspeki, siðfræði, sagnfræði. listasögu, tónlistarsögu,
fornsögur, kvikmyndafræði og trúarbragðafræði. Alls sóttu 1.163 manns þessi
námskeið á árinu.
1-2 ára nám samhliða starfi
Á árinu var boðið upp á eftirfarandi námsleiðir sem 662 nemendur sóttu:
• Rekstrar- og viðskiptanám - l'A ár
• Rekstrarfræði - 1 ár
• Markaðs- og útflutningsfræði - 1 ár
• Opinber stjórnsýsla og stjórnun - 1 ár
• Stjórnun og rekstur í heilbrigðisþjónustu - 1 'h ár
• Stjórnun og rekstur í matvælaiðnaði - 1 'h ár
• Svæfinga-. gjörgæslu- og skurðhjúkrunarnám - 2 ár
• Faghandleiðsla og handleiðslutækni - IV2 ár
• Námskrárfræði og skólanámskrárgerð - 1 ár
Námskeið fyrir framhaldsskólakennara
Námskeið fyrir framhaldsskótakennara. sem eru haldin í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið. sóttu alls 1.950 manns á árinu.
Námskeið ætluð opinberum starfsmönnum
Á árinu sótti alls 471 námskeið sem hatdin eru í samstarfi við Ríkisbókhald.
Námskeið í samstarfi við Fræðsluver Guðbrands Gístasonar og Rekspöt sóttu atls
218 manns.
Réttindanám á vegum ráðuneyta
Endurmenntunarstofnun sér um framkvæmd réttindanáms sem lög á ýmsum
sviðum kveða á um. Þannig var á árinu boðið upp á nám vegna ieyfis til að gera
eignaskiptasamninga í samstarfi við félagsmálaráðuneytið. í samvinnu við um-
hverfisráðuneytið var nám fyrir mannvirkjahönnuði. Boðið var upp á nám til und-
irbúnings löggildingarprófi í verðbréfamiðlun. Á árinu sótti alts 271 nám af þessu tagi.
Námskrá og kynningarmál
Tvisvar á ári gefur stofnunin út yfirtit yfir námsframboð í námskrá. Námskráin
sem er gefin er út í 35. 000 eintökum er nú 48 síður. Bæktingar um einstök nám-
skeið eru sendir til markhópa. Námsframboðið er einnig kynnt á Netinu og er
hægt að skrá sig þar á námskeið. Slóðin á heimasíðu stofnunarinnar en
www.endurmenntun.hi.is.
EUCEN-ráðstefna
Endurmenntunarstofnun stóð fyrir 130 manna evrópskri ráðstefnu EUCEN í júní
1999 með yfirskriftina ..Learning from Each Other ". Ráðstefnan, sem varsú sautj-
ánda á vegum EUCEN, var sú fjölsóttasta hingað til. EUCEN stendur fyrir „Europ-
ean University Continuing Education Network'".
Nýjungar árið 1999
Stöðug endurnýjun erá námskeiðsframboði Endurmenntunarstofnunar. End-
urnýjunin byggist á samstarfi við fagfélög. stofnanir. kennara. sérfræðinga og
nemendur.
Á árinu hófst nám á þremur nýjum námsbrautum: Rekstur og stjórnun í mat-
vælaiðnaði er þriggja missera nám. Námskrárfræði og skólanámskrárgerð tekur
tvö misseri. Faghandleiðsla og handleiðslutækni tekur þrjú misseri.
Tilraunaverkefni hófst haustið 1999 í samstarfi við Fræðslunet Austurtands á Eg-
ilsstöðum um fjarkennslu í þriggja missera rekstrar- og viðskiptanám. 14 manns
stunda námið.
Haustið 1999 hóf Endurmenntunarstofnun samstarf við ReykjavíkurAkademíuna
um námskeiðahald, m. a. námskeið fyrir háskólastúdenta um „akademísk vinnu-
brögð'".
Sumarnámskeið DIS
Haustið 1999 tók Endurmenntunarstofnun að sér framkvæmd sumarnámskeiða
fyrir bandaríska háskólastúdenta hér á landi fyrir DIS. „Denmarks International
Study Program”. Árið 1999 komu 33 nemendurá námskeiðin.