Dvöl - 01.07.1945, Page 8

Dvöl - 01.07.1945, Page 8
150 D VÖL „Ég býst við að allir gamlir her- menn séu með sama markinu brenndir,“ sagði frú White. „Hugsa sér aö við skyldum hlusta á slikan þvætting! Hvenær ætli óskir séu uppfylltar nú á dögum? Og þótt svo væri, hvernig gætu tvö hundruð pund skaðað þig, pabbi?“ „Þau gætu dottið í höfuðið á honum ofan úr loftinu,“ sagði Her- bert hinn léttúðugi. „Morris sagði að þetta kæmi á svo eðlilegan hátt, að maður gæti eignað það tilviljun ef manni sýnd- ist svo,“ sagði faðir hans. „Jæja, þú skalt ekki hreyfa við peningunum fyrr en ég kem aftur,“ sagði Herbert, um leið og hann stóð upp frá borðinu. „Ég er hræddur um að þeir geri þig að ágjörnum, nirfli, og við verðum neydd til að afneita þér.“ Móðir hans hló, og fylgdi hon- um til dyranna, horfði á hann ganga ofan götuna og hvarf svo aftur að matborðinu. Með sjálfri sér henti hún gaman að trúgirni manns síns. En það stóð þó ekki í vegi fyrir því að hún þyti til dyr- anna þegar pósturinn barði að dyrum, og hún gat ekki stillt sig um að sveigja lítið eitt að drykk- felldum uppgjafaforingjum þegar hún sá að pósturinn kom með reikning frá klæðskeranum. „Herbert sendir okkur eina háð- glósuna enn þegar hann kemur heim,“ sagði hún, þegar þau sátu að miðdegisverðinum. „Ég efast ekki um það,“ sagði White gamli og hellti bjór í glasið sitt. „En allt um það hreyfðist loppan í hendinni á mér, það get ég svarið.“ „Þér fannst það,“ sagði konan stillilega. „Ég1 er viss um að hún gerði það,“ anzaði hann. „Ég var alls ekki að hugsa um hana einmitt —. Hvað er þetta?“ Kona hans svaraði engu. Hún var að virða fyrir sér kynlegt háttalag manns nokkurs, sem stóð úti á veginum og horfði hikandi á húsið, eins og hann væri að reyna að herða upp hugann til að ganga inn. Af því hún hafði verið. að hugsa um tvö hundruð pundin, tók hún eftir því að ókunni maðurinn var vel búinn og bar nýjan, gljá- andi silkihatt. Þrem sinnum stanz- aði hann við hliðið, og hélt síðan áfram göngunni. í fjórða sinnið lagði hann höndina á grindina, og tók svo allt í einu rögg á sig, þeytti opnu hliðinu og gekk upp stíginn. Frú White stakk sam- stundis höndunum aftur fyrir bak, leysti af sér svuntuna og smeygði henni undir sessuna í stólnum sín- um. Hún vísaði gestinum inn í stof- una. Hann virtist mjög órólegur, hlustaði annars hugar er gamla konan bað hann að afsaka hve illa væri tekið til í stofunni og hve jakkinn mannsins hennar væri óhreinn; hann væri sem sé vanur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.