Dvöl - 01.07.1945, Blaðsíða 38

Dvöl - 01.07.1945, Blaðsíða 38
180 D VÖI. Fallega stúlkan frá Portillon Eftir Honoré de Balzac Stúlkan frá Portillon, sem seinna — eins og allir muna — giftist Tascherau, var þvottakona áður en hún gekk í hjónabandið og stundaði þetta starf í Portillon. Og ef þið þekkið ekki bæinn Tours, get ég sagt ykkur, að Portillon stendur við ána sama megin og nokkru neðar en St. Cyr og jafn- langt frá brúnni, sem liggur yfir að dómkirkjunni, og Marmoustier, eða með öðrum orðum. að brúin er mitt á milli þessarra nefndu bæja, Portillon og Marmoustier. Skil- urðu? Ágætt. — Nú, þarna hafði stú!kan þvottahús sitt, og þaðan gat hún gengið með þvottinn ofan að ánni og skolað hann. Svo fór hún með þvottinn yfir ána til St. Martin, Chateauneuf og fleiri bæja, því að þar bjuggu flestir viðskipta- vinir hennar. Rétt um Sankti-Hansmessu, sjö árum áður en hún gekk að eiga hinn ágæta Taschereau, öðlaðist hún þann þroska, sem nauðsynleg- ur var til þess að hægt væri að fara að elska hana. Og af því hún var snotur stelpa lofaði hún ungu mönnunum að elska sig án þess að gefa nokkrum einum öðrum frem- ur undir fótinn. Þeir sátu þar til skiptis á bekknum undir gluggan- um hennar sonur Rabelais, sem átti fimm báta í förum á ánni Loire, Marchandeau klæðskeri og Peccard gullsmiður, en hún dró þá alla saman á asnaeyrunum, því að hún var staðráðin í að fara í kirkju áður en hún byrjaði á nokkru þess háttar, og það sýnir, að hún var siðprúð stúlka áður en óhappið henti hana. Hún var ein af þess- um ungu stúlkum, sem eru dálítið hræddar við byrjunina, en þegar þetta er einu sinni skeð, kæra þær sig kollóttar næsta sinn og ætíð þaðan í frá. Slíkt verður maður að líta á mfið skilningi. Ungur aðalsmaður tók eftir henni dag nokkurn, er hún var á leið yfir ána með ferjunni. Yndis- þokkinn ljómaði af henni í hádeg- issólinni, og hann fór að spyrjast fyrir um hana, því hann langaði til að vita hver og hvaðan hún væri. Karl einn, sem hafði þann starfa að hreinsa allt rusl af árbakkan- um, sagði honum að þetta væri „fallega stúlkan frá Portillon," annars þvottakona að atvinnu og alþekkt heima fyrir glaðan hlátur og góða skynsemi. Og ungi maður- inn, sem var klæddur í kjól og hvítt og átti auk þess mikið af stroknu líni heima hjá sér, ákvað að láta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.