Dvöl - 01.07.1945, Blaðsíða 118

Dvöl - 01.07.1945, Blaðsíða 118
260 og viðurkennir takmörk þeirra fræða, sem hann flytur. Sannleikurinn er sá, að enn þann dag í dag vantar sannanir fyrir mörgum skýringum, sem gefnar eru á ýmsum hversdagslegum fyrirbærum mannlegs lífs, svo sem t. d. draumum, þó að ekki sé lengra farið út á svið hins dulræna. En það er þáttur í almennri menntun að vita nokkur skil á skýringum frægustu vísindamanna á slkum hlutum. En þrátt fyrir takmarkanir sínar getur sálarfræðin á margan hátt orðið okkur til hjálpar í listinni miklu, sem við þreyt- um öll, að lifa. Því er hóflega skrifuð lesbók, eins og Mannþekking. ærinn feng- ur. Ég tel bókina mjög hóflega, þannig, að gengið er fram hjá sérkenningum ýmsra ofstækismanna og aðeins gerð grein fyrir merkustu og frægustu skoðunum af því tagi. Yfirleitt er það regla, sem höfundur fylgir, um hin mörgu ágreiningsatriði sál- arfræðinnar, að segja hlutlaust frá mis- munandi kenningum. Vera kann þó, að sumt það, sem gengið er þegjandi fram hjá sé ekki verri vísindi en annað, sem upp er tekið, en svo getur lengi farið. Það er töluvert afrek að skrifa svona bók á íslenzku máli. Höfundur segir í formála: „Ég hef forðast eftir föngum óþjál fræðiorð og reynt að stilla í hóf nýyrðum." Þetta er sannmæli. En ekki verður hjá því komizt í bók, sem þessari að nota ýms þau orð, sem ekki eru orðin lifandi og gróin í málinu. Lesandinn verð- ur því í fyrstu að læra merkingu þeirra eins og annarra nýrra og framandi orða, þó að uppruni og skyldleiki hjálpi oft til. Svo er t. d. um orð eins og duld, geðrof, geðbifun o. fl. Þessi orð verða e. t. v. góð og lifandi íslenzka eftir nokkur ár eins og sefjun, áróður og mörg fleiri. En þetta gerir höfundum erfiðara fyrir og lesand- anum líka fyrst í stað. En þeir höfundar, sem temja mál okkar þessum nýju við- horfum og hlutverkum vinna gott verk og verðskulda miklar þakkir. DVÖL Ekki get ég neitað mér um að minnast á einn ókost, sem er nokkuð almennur í bókagerð á íslandi, og lítils háttar ber á í þessu riti. Það er að koma með tilvitn- anir á framandi málum, án þess að þýða þær. Þó að lítið sé um slíkt í Mannþekk- ingu eru þó til dæmi um tilvitnanir á dönsku, þýzku og frönsku og þær allar á þá leið, að lesandinn hefur þeirra engin not, nema hann skilji málið. Þetta er ósiður. Dr. Símon er það mikill fræði- maður, að hann þarf ekki að þylja þýzku og frönsku til þess að sýna lesendum lær- dóm sinn. Eigi þetta að vera ráð til að sefja menn þannig, er ég hræddur um, að það mistakist og hvetji menn heldur til gagnsefjunar, því að sumum finnst þetta móðgun við sig. Þegar menn leggja mikla vinnu í að skrifa íslenzkar bækur um erfið efni, er það galli, að þeim líði það úr minni, þó að sjaldan sé, að' þeir eru að skrifa fyrir alþýðu ættlands síns. Það er ekki hægt að heimta það, að bók eins og Mannþekking leggi neinn bjargfastan allsherjargrundvöll að neins konar trúarbrögðum. En þetta er bók, sem varpar ljósi á margt, sem við þurf- um að gera okkur grein fyrir. Hugsandi mönnum er hún hollur lestur. Halldór Kristjánsson. Sjósókn. Endurminningar Erlends Björnssonar, Breiðabólsstöðum. Skráðar af Jóni Thorarensen. Útg. ísafoldarprentsmiðja 1945. Þetta er myndarleg bók og girnileg til fróðleiks. Erlendur er einn þeirra alþýðu- manna, sem lagt hafa grunninn að tím- anlegri velmegun nútíðarmanna.. Þessi bók er ekki saga þeirrar þróunar, sem orðið hefur frá því, að Erlendur var ung- ur, heldur lýsing á sjósókn á yngri ár- um hans. Fyrst er inngangur um æskuár Erlends. Síöan er kafli um búendur og býli i Bessa- staðahreppi á áttunda tug nítjándu ald- ar. Er þar meðal annars glögg og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.