Dvöl - 01.07.1945, Síða 125
D VÖL
267
J(
imn
ióöcj
ur
Bær bóndans hafði brunnið. Kom hann
í skrifstofu vátryggingarfélagsins til að
athuga um bæturnar. Þar var honum
sagt, að vátryggingarfélagið réði, hvort
heldur það borgaði skaðann í peningum
eða léti hann fá nýtt hús í staðinn, —
og að það hefði ákveðið að láta hann
heldur fá nýtt hús. „Nú, svona hafið þið
það! Þá er bezt aö ég afturkalli líf-
tryggingu konunnar minnar."
★
Umboðsmanni ullarverksmiðju einnar
þótti markaðsverðiö fullhátt og sendi því
húsbændum sínum símskeyti: „Á ég að
kaupa?" Þeir svöruðu: „Kauptu ekkert
verö of hátt“. í skeytinu var engin
komma, svo að hann keypti miklar birgð-
ir, hvað sem þær kostuðu, og munaði
minnstu að fyrirtækið yrði gjaldþrota.
★
„Heimurinn er á helvegi. Unga fólkið
hugsar ekki um annað en sjálft sig. Það
ber enga virðingu fyrir foreldrum sínum
eða ellinni. Það þolir engar hömlur. Það
talar eins og enginn annar viti neitt.
Okkar vizku telur það heimsku. Ungu
stúlkurnar eru framar, blygðunarlausar
og ókvenlegar í tali, framkomu og klæða-
burði.“ Hvenær var þetta ritað. — Á því
herrans ári 1274.
★
Svissneskur listamaður gerði svofelldan
reikning fyrir viðgerð í kirkju:
Fyrir að leiðrétta boðorðin, skreyta
Pontius Pílatus og setja nýtt
band á hattinn hans .............. 16 kr.
Fyrir nýtt stél og kamb á hana
Péturs postula .................... 8 —
Fyrir að bæta og gylla vinstri væng
verndarengilsins .................... 12 —
Fyrir að þvo þjón æðsta prestsins 10 —
Fyrir að endurnýja himininn, laga
stjörnurnar og hreinsa tunglið 14 —
Fyrir að gera eld helvítis bjartari
setja nýtt skott á skrattann og
fyrir smásnatt í sambandi við þá
fordæmdu ...»............... 24 - -
Fyrir að hressa upp á hreinsunar-
eldinn og bæta við glötuðu sál-
irnar ......................... 14 —
Fyrir að gera við skyrtu glataða
sonarins .......................... 6 —
Alls 104 kr.
★
Skozkur uppgjafahermaður var spurður
hvort hann hefði aldrei óttast ósigur í
orustu. „Nei“, anzaöi hann, „aldrei datt
mér í hug að við yrðum undir, en oft
hélt ég, að búið yrði að drepa okkur alla
áður en við ynnum."
★
Dýralæknir ráðlagði bónda einum aö
gefa hesti sínum duft á þann hátt aö
blása því upp í nasir hans gegnum pípu.
En hesturinn varð fyrri til að blása.
★
Skotar tveir ræddu um fall Frakklands.
Varð öðrum þá að orði: „Við megum
standa í stríðu, ef England bilar næst.“
★
Ameríkufari kom heim eftir langa úti-
vist og var þá inntur eftir hvort hann
myndi eftir sprengingunni miklu, sem
orðiö hefði áður en hann fór að heiman.
„Hvort ég man,“ sagði hann, „pabbi og