Valsblaðið - 01.05.2007, Síða 31
Starfið er margt
„Það er alveg ljóst að öll þau börn sem
hefja æfingar hjá Val verða ekki afreks-
fólk, það breytir ekki því að þau geta
fengið fyrsta flokks íþrótta- og félagslegt
uppeldi hjá okkur. Við leggjum áherslu á
okkar greinar og kennum okkar fólki að
sigra og tapa. Það eru geysimörg dæmi
um það að fólk hafi haldið starfi áfram
innan félagsins þótt það hafi ekki verið í
afrekshópum þess. Það er börnum mjög
holt að taka þátt í hópíþróttum, þar sem
liðheildin skiptir máli til þess að ná sett-
um markmiðum.“
f kringum Val á að verða besta stemn-
ing íslenskra liða. Hvað þarf til?
„Við eigum nú þegar frábæra stuðnings-
menn sem eru þeir bestu á landinu á góð-
um degi, þessi hópur kallar sig STUÐ-
ARA og bera svo sannarlega nafn með
rentu. Við viljum styðja við bakið á þeim
og hjálpa þeim að stækka hópinn. Það er
klárlega hluti af þeirri upplifun sem við
sækjumst eftir á Hlíðarenda að það sé
góð stemning á leikjum, ég tala nú ekki
um hversu mikilvægt það er fyrir liðin
okkar.“
Samkvæmt stefnunni er hlutverk
félagsins er að hámarka lífsgæði, vel-
líðan og árangur Valsmanna. Hvernig
sérð þú fyrir þér að þetta verði útfært?
„Við viljum bjóða fólk velkomið á Hlíð-
arenda, þar verður fyrsta flokks heilbrigð
starfsemi. Einnig viljum við bjóða upp á
sterk lið í karla- og kvennaflokkum og
skemmtilega umgjörð. Síðast en ekki
síst öflugt félagsstarf þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Það er til að
mynda að aukast stemning um helgar þar
sem boltaskóli Vals hefst á laugardögum
kl. 09:40, þar eru stubbamir í essinu sínu
og foreldrarnir hafa gaman af, sprikla
með eða fá sér kaffisopa og kíkja í blöð-
in. Um 10:30 fara menn svo að mæta
og tippa á enska boltann, fá sér kaffi og
kleinur, horft er á boltann - kikt á æfing-
ar o.s.frv. Siðan mæta vaskir menn að
setja upp heimaleiki, setja upp skilt-
in, raða upp stólum, borðum og keyra út
áhorfendapalla. Síðan koma sjálfboðalið-
ar í miðasöluna, sjoppuna og dyravörsl-
una. Þetta er bara dæmi um það hvernig
fólk getur tekið þátt í starfinu og nauð-
synlegt að hver og einn finni sér þann
farveg innan félagsins sem hann er sátt-
ur við.“
Hvaða vinna er í gangi hjá félaginu við
að vinna að stefnunni?
„Við fórum með Capacent og nýju starfs-
fólki Vals í það að vinna áfram vinnuferla
Brynjar Hardarson formaöur Valsmanna
hf Ingólfur Friðjónsson stjórnarmadur
og Dagur Sigurðsson framkvœmdastjóri
fyrir framan glæsilegu Lollastúkuna.
og er það starf unnið í smærri hópum,
sem eru í raun stýrihópar á ákveðnum
verkefnum. Þörfin fyrir þetta hefur ver-
ið mest í barna- og unglingastarfinu, þar
teljum við okkur geta gert mikið mun
betur og boðið betri þjónustu, sérstak-
lega þegar ný mannvirki verða fullklár-
uð. Við erum að teygja okkur betur út í
hverfið, út í skólana, höfum tekið frum-
kvæði með rútuferðum og heimsóknum
til krakkanna. Þetta viljum við auka og
bæta um betur, m.a. með meiri fræðslu
varðandi mataræði og almennt um heil-
brigt líferni."
Vaismenn - bestu óskir um yleðileg jól og farsælt nýtt ár
Ari Reynir Halldórsson Gerður Beta Jóhannsdóttir
Ásgeir Þór Árnason Gríma Huld Blængsdóttir
Baldur 1. Aðalsteinsson Grímur Sæmundsen
Björgvin Hermannsson Guðjón Guðmundsson
Brynjar Harðarson Guðjón Ólafur Jónsson
Einar E. Guðlaugsson Guðjón Karlsson
Valsblaðið 2007
31