Valsblaðið - 01.05.2007, Page 47
Halldór og frú Esther.
Mín stœrsta stund ífótboltanum. Sœmdur heidurskrossi KSl 2007. Meö
Michel Platini forseta JJEFA og Geir Þorsteinssyni formanni KSÍ.
ekkert að vinna peninganna vegna. Fót-
boltinn er þeirra líf. Það yrði lyftistöng
fyrir knattspymuna hér að fá stórt nafn
til að þjálfa landsliðið. Mann með sam-
bönd sem gerði það líka eftirsóknarverð-
ara fyrir fyrirtæki að leggja nafn sitt við
starfið. Þessu fylgdi veruleg könnunar-
vinna en gæti verið vel þess virði.
Sextugur og mikið verk óunnið
Margir þeirra sem verða sextugir fara
svona að vinda ofanaf, fara að slaka á
sem er hið besta mál. I raun heillar þetta
mig ekki neitt en sem komið er. Ég á
hins vegar mikið verk óunnið, t.d. í mál-
aralistinni. Ég er búinn að mála alla mína
tíð. Það getur meir að segja vel verið að
ég geti orðið sæmilegur listamaður. Ég
hef til dæmis teiknigetuna nokkuð góða.
Það er að mínu mati góður grunnur. Ég
gæti vel hugsað mér og er alveg ákveð-
inn í því ef mér heilsast vel að sækja mér
síðar meir meiri menntun í málaralist.
Eg vil styrkja innviði Vais og
endurreisn tjóssins
Ég er búinn að koma að ýmsu fyrir Val.
Allt frá því að selja pylsur fyrir leiki,
stofna fyrsta hlutafélagið, Hlíðarenda,
sem ætlað var að fá erlenda leikmenn til
Vals og óteljandi önnur verkefni. En það
sem mér þykir vænst um er einmitt það
sem er að hefjast núna á næstunni. Ekk-
ert eitt verkefni innan félagsins hefur
heillað mig eins og þetta. Þetta verkefni
er að endurreisa fjósið á Hlíðarenda og
auka veg fulltrúaráðsins.
Ég er búinn að fá stuðning við það að
fjósið verði tekið upp og gert að „flott-
asta“ klúbbhúsi á íslandi. Fjósið verði í
framtíðinni athvarf allra Valsmanna. Þetta
er ótrúlega heillandi verkefni. Þama er
líka okkar tækifæri að varðveita söguna.
Þá getur unga kynslóðin séð hana svart
á hvítu og kynnst því merka fólki sem
skóp hana. Leiðtogar félagsins geta sýnt
innlendum og erlendum gestum klúbb-
hús sem stend-
ur undir nafni.
Með þessu vil ég
styrkja innviði
félagsins. Það
er stórmál. Val-
ur er svo miklu
meira en félag
sem sendir lið
til keppni í ýms-
um mótum. Ég
er ekki endilega viss um að mestu hetjur
Vals hafi verið þeir sem mest hefur bor-
ið á inn á vellinum. Mér eru minnisstæð-
ir þessir kallar sem endalaust gátu ver-
ið að gefa af sér í starfinu. Maður eins
og Siggi Mar. sem var þarna í fjósinu að
sýna kvikmyndir, syngjandi um Pálínu
og saumamaskínuna. Ég er að hugsa um
að láta gera vaxmynd af honum. Láta
Sigga vera þama við dyrnar og taka á
móti gestum með sýningarvélina undir
annarri hendinni og brúnu töskuna und-
ir hinni. Væri það ekki smart? Hlíðarendi
er vagga Vals. Þessar gömlu byggingar
verða að standa. Uppbygg-
ingin breytir þar engu um.
Þær minna okkur á upp-
runann. Það að endurvekja
fulltrúaráðið er mér líka
mikið hjartans mál.
Eighteen yellow roses
Ég held að ég hafi sungið
þetta lag „Eighteen yellow
roses“ fyrst á leiðinni upp
á Akranes, með meistara-
flokki Vals hér í dentíð. Það
er svo sem ekkert dularfullt
við þetta. Ég heyrði þetta í
útvarpinu með Bobby Dar-
in og fannst lagið fallegt.
Síðan hefur það fylgt mér. Ég held bara
að það verði ekki annað hægt en að flytja
þetta við útförina mína og helst af eigin
diski. Það væri fínt að spila upptökuna
sem ég gerði um daginn og setti á disk-
inn sem fylgdi með boðskortinu í 700
Gordon Banks fœrði Halldóri áritaöa mynd
frá heimsmeisturum Englendinga 1966.
Evrópumeistarar Aston Villa, Czka
Moslcva og Spartak Kiev le'ku íbúningum
frá Henson.
manna afmælið mitt. Ég syng þá yfir
sjálfum mér. Það væri vel við hæfi, við
blöndum ekki öðrum í það.
Valsblaðið 2007
47