Valsblaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 48
Eftir Guðna Olgeirsson
Vil sjá Val til fyrirmyndar að bjóða
upp á tvær lelðir til íþróttaiðkunar
Ragnhildur Skúladóttir er nýráðinn yfirmaður harna- ng unglingasviðs hjá Val er
með Valshjartað á réttum stað
Ragnhildur Skúladóttir er með meist-
aragráðu í lýðheilsufræði við Háskólann
í Reykjavík, Cand. mag. próf í íþrótta-
fræði við Iþróttaháskólann í Osló með
áherslu á þjálfun, þjálffræði og heilsu-
og íþróttalíffræði og íþróttakennara-
próf frá Iþróttakennaraskóla Islands.
Hún hefur kennt við Háteigsskóla og á
námskeiðum KSI og ISI. Hún á einn-
ig glæstan feril að baki í knattspyrnu
sem Ieikmaður með Val og við þjálfun.
Ragnhildur tók vel í beiðni Valsblaðsins
að svara nokkrum spurningum.
Ragnhildur
segir að það sé
yfirlýst mark-
mið félags-
ins að fjölga
iðkendum
um helming á
næstu árum en
til þess að það
megi takast
þurfi félagið
að bjóða upp
á betri þjón-
ustu en önnur félög og það eigi að vera
eftirsóknarvert að æfa í Val. Aðstaðan
verði innan tíðar ein sú besta á landinu
en félagið þurfi líka að geta boðið börn-
unum upp á hæfustu þjálfarana og besta
félagsstarfið. „Við þurfum að vera tilbúin
til að taka á móti öllum bæði þeim sem
ætla sér frama í íþróttum og þeim sem
vilja vera í iþróttum til að hreyfa sig og
njóta félagsstarfsins. Ég tel að í félaginu
starfi núna mjög hæfir þjálfarar í öllum
flokkum karla og kvenna og þannig á það
að vera í félagi eins og Val,“ segir Ragn-
hildur greinilega stolt af félaginu sínu.
„A hundrað ára afmæli Vals árið 2011
verðum við enn betri en í dag, með mun
fleiri iðkendur, og litið verður til okkar
sem fyrirmyndarfélags á öllum sviðum,“
segir Ragnhildur.
í hverju er starf þitt í Val fólgið?
„Ég er í ákveðnu þjónustuhlutverki gagn-
vart iðkendum, þjálfurum og foreldrum.
Sé um stefnumótun í barna- og unglinga-
starfi félagsins og er tengiliður félags-
ins við IBR, ITR, skólana í hverfinu og
hverfamiðstöðina. Svo heyra íþróttaskól-
amir undir mig, en þeir eru starfrækt-
ir í skólunum þremur, Austurbæjarskóla,
Háteigsskóla og Hlíöaskóla fyrir öll sex
ára börn.“
Hvernig líst þér á Val í dag?
„Knattspyrnufélagið Valur stendur á
vissum tímamótum í dag, aðstaðan hef-
ur gjörbreyst með tilkomu nýja hússins
og keppnisvallarins og svo hefur félagið
breytt sínu innra skipulagi sem má segja
að sé enn í mótun. Þrátt fyrir þessar
breytingar þá finnst mér félaginu hafa
tekist að viðhalda því sem mér hefur allt-
af fundist svo jákvætt, en það er viðmót-
ið þegar maður kemur hingað á Hlfð-
arenda. Allir velkomnir ungir sem aldnir,
þessu þarf félagið að halda við.“
Hvernig viltu sjá Val þróast?
„Ég vil sjá félagið verða fyrirmynd ann-
arra félaga í því að bjóða iðkendum upp
á tvær leiðir til íþróttaiðkunar sérstaklega
þegar komið er á unglingsaldur. Annars
vegar afreksleiðina fyrir þá sem ætla að
ná langt í íþróttagreininni og hins vegar
aðra leið fyrir þá sem vilja æfa tvisvar til
þrisvar í viku. Þannig höldum við fleiri
einstaklingum lengur í íþróttum sem er
jákvætt þegar horft er til forvamargildis
iþrótta þegar kemur að vfmuefnanotkun.
Þessir einstaklingar væru hugsanlega til í
að einbeita sér að dómara-, þjálfara- eða
félagsstörfum fyrir félagið. Við þurfum
að bjóða alla velkomna, því að störfin
eru mörg og eins og við vitum þá vinna
margar hendur létt verk.“
Æfði skíði, spilaði handbolta og fót-
bolta með strákunum
„Ég bjó í Drápuhlíðinni fram á fjórða ár
þegar ég flutti upp í Arbæ sem þá var að
byggjast upp. I Arbænum var mikið af
börnum og í minningunni léku heilu hóp-
arnir sér saman úti í leikjum, var aldurs-
bilið breitt og allir máttu vera með. Leik-
irnir voru af ýmsu tagi eins og Ein króna,
Brennó, Kíló og Löggur og bófar. Svo
spiluðum við mikinn fótbolta. I þá daga
spiluðu ekki margar stelpur fótbolta og
vorum við alltaf litnar hornauga, en þeg-
ar við vorum búnar að sanna fyrir strák-
unum að við gátum eitthvað þá- var okk-
ur tekið sem jafningjum. í þá daga voru
íþróttafélögin ekki með fótbolta fyr-
ir stelpur, en ég fékk einstöku sinnum að
vera með á æfingum hjá strákunum. Ég
spilaði líka handbolta fram á unglingsár
og svo æfði ég skíði sem var á tímabili
aðal íþróttagreinin mín.“
Skemmtileg æskuminning
„Þegar ég keppti á fyrsta skíðamótinu
mínu þá hafði ég aldrei mætt á skíðaæf-
ingu og aldrei farið í braut. Ég var stödd
upp í Hamragili sem þá var félagssvæði
skíðadeildar IR og það var að hefjast
skiðamót. Ég var búin að vera talsvert
á skíðum og langaði að prófa að keppa.
Eins og flestir vita þá gengur svigkeppni
út á að fara á milli rauðra og blárra hliða
á víxl, en um miðja braut var ég búin að
detta nokkrum sinnum og þá kom til mín
hugulsamur portavörður og sagði mjög
blíðlega:„Heyrðu elskan viltu ekki bara
hætta keppni núna, þú ert búin að sleppa
úr svo mörgum hliðum". Ég hafði reynt
að gera mitt besta en vissi ekki betur út á
hvað svona skíðakeppni gekk. Eftir þessa
reynslu fór ég að æfa skíði og skamm-
aðist mín hrikalega fyrir þessa fyrstu
skíðakeppni, en hef seinna oft hlegið að
þessari minningu."
48
Valsblaðið 2007