Valsblaðið - 01.05.2007, Síða 49

Valsblaðið - 01.05.2007, Síða 49
Hvernig lágu leiðir þínar til Vals? „Þegar ég var 12 ára þá flutti ég í Hvassaleitið og fór í Fram í handbolta. Fram var einnig með fótbolta en bara meistaraflokk kvenna. I þá daga reim- uðu handboltakonur á sig fótboltaskóna á sumrin til þess að viðhalda forminu, en engin stelpa í Fram æfði eingöngu fót- bolta. Ég spilaði 12 ára fyrsta meistara- flokksleik minn með Fram og skoraði í honum mark og var ekkert smá mont- in með það. Ég hélt svo áfram að spila fótbolta úti með strákunum og kynntist Ragnheiði Víkingsdóttur sem einnig bjó í Hvassaleitinu. Hún reyndi svo í nokk- ur ár að fá mig í Val og ég lét á endanum til leiðast, enda voru Framarar búnir að leggja kvennaboltann niður. Ég var ótrú- lega heppin með hópinn í Val og tilheyri ég stórum hópi sem heldur mikið sam- an, enda alltaf mjög gaman hjá okkur. Það er erfitt að tína einhverjar út úr hóp- num, en ef ég þarf að nefna einhverjar þá voru þessar hvað mest áberandi í gegn- um minn feril, captain Ragga Víkings., Bryndís Vals., Gunna Sæm. og Kristín Arnþórs." Hvað er eftirminnilegasta atvik úr íþróttaferlinum? „Það er erfitt að nefna eitthvað eitt atvik úr íþróttaferlinum, en ég held að sætasti sigurinn hafi verið bikarúrslitaleikur við ÍA 1985 sem við unnum í vítaspymu- keppni. Segja má að við höfum komið beint í leikinn frá Ítalíu, en þangað fómm við í keppnisferð. Okkur hafði ekki geng- ið neitt sérstaklega hérna heima þetta sumarið og var IA talið mun sigurstrang- legra fyrir þennan leik. Mórallinn innan okkar liðs var hins vegar stórkostlegur eftir góða ferð til Ítalíu og tel ég að sig- urinn hafi fyrst og fremst unnist á góðum liðsanda. Þessi sigur var svo upphafið að nokkmrn frábæmm árum með mörgum bikar- og íslandsmeistaratitlum.“ Þjálfaraferill „Ef ég man rétt þá hófst þjálfaraferill- inn árið 1982, en þá tókum við að okk- ur yngri flokk kvenna ég, Ragnheiður Víkings. og Bryndís Vals. og vom launin tveir Henson gallar á mann og þótti gott. Þá vom bara tveir flokkar í kvennabolt- anum, meistaraflokkur og yngri flokkur. Svo má segja að ég hafi verið með ein- hvem flokk eða flokka til 1992 en þá fór ég í framhaldsnám í íþróttafræðum til Noregs. Eftir að ég kom heim 1994 tók ég 2. fl. kvenna og ég þjálfaði meistara- íslandsmeistarar Vals í kvennaknattspyrnu 1984. Efri röð frá vinstri: Hafsteinn Tóm- asson þjálfari, Sigrún Cora Barker, Kristfn Briem, Bryndís Valsdóttir, Erna Lúðvíks- dóttir, Guðrún Sœmundsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir og Sólrún Ástvaldsdóttir. Neðri röðfrá vinstri: Eva Þórðardóttir, Ve'dís Ármannsdóttir, Ragnheiður Vtkings- dóttir, Sigrún Birna Norðfjörð, Ragnhildur Skúladóttir, Kristín Anna Arnþórsdóttir og Margrét Oskarsdóttir. flokk tímabilið 1996- 1997. Árið 1999 tók ég svo við U17 ára stúlknaliði íslands og var með það út árið 2004.“ Hvað einkennir góðan þjálfara? „Góður þjálfari í yngri flokkum þarf að hafa marga eiginleika. Hann þarf að kunna fagið þ.e.a.s. íþróttagreinina, en hann þarf ekki síður að kunna að miðla þekkingu sinni. Svo þarf góður þjálfari að hafa aga á sama tíma og hann getur verið félagi barnanna. Þá er mikilvægt að þjálfarinn geri reglulega eitthvað félags- legt með flokknum fyrir utan æfingarnar, því að góður félagsandi í hópum er lyk- illinn að árangri.“ Hvernig finnst þér yngri flokka þjálf- un vera hér á landi? „Ég held að við stöndum mjög vel að vígi í sambandi við yngri flokka þjálf- un hér á landi. Við erum almennt með mjög vel menntaða þjálfara, böm hér á landi æfa almennt meira en í löndunum í kringum okkur og svo hefur öll aðstaða stórbatnað með höllum og gervigrasvöll- um. Þegar unglingsaldri er náð missum við hins vegar of marga út úr íþróttum og er það vandamál sem við þurfum að huga betur að.“ Eiga Islendingar raunhæfa möguleika að komast í úrslitakeppni stórmóts í knattspyrnu? „Það er að mínu mati mun styttra í að kvennalandsliðið komist í úrslitakeppni stórmóts en karlaliðið. í dag er það yfir- lýst markmið kvennalandsliðsins að komast í úrslitakeppni EM í Finnlandi sumarið 2009 og þó að leikurinn við Sló- vena hafi tapast óvænt úti, þá unnum við Frakka hér heima sem fáir gerðu ráð fyr- ir. í dag er liðið í öðru sæti í riðlinum og því enn í bullandi sjens með að ná mark- miðinu. Karlalandsliðið er mun neðar á FIFA listanum og hefur ekki náð góð- um úrslitum upp á síðkastið því tel ég að mun meira þurfi til hjá þeim.“ Skilaboð til ungra iðkenda og foreldra. „Það liggur mikil vinna í því að verða góður í íþróttum og árangur kemur ekki af sjálfu sér. Til þess að skara fram úr þá þarf einstaklingur að æfa meira en næsti maður og eru mýmörg dæmi um íþrótta- menn sem hafa lagt á sig mikla aukavinnu utan æfingatíma til þess að bæta sig. Gott og nærtækt dæmi um þetta er Margrét Lára sem alltaf hefur æft aukalega. Svo má nefna að áhugi og stuðningur foreldra skiptir mjög miklu máli þegar kemur að íþróttaþátttöku bama og unglinga.“ Valsblaðið þakkar Ragnhildi fyrir spjallið og óskar henni góðs gengis í mikilvæg- um störfum sínum fyrir Val. Valsblaðið 2007 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.