Valsblaðið - 01.05.2007, Qupperneq 57
Víglsan
Ágætu Valsmenn.
Það er mál allra, sem skoðað hafa
þessi nýju mannvirki að sérstaklega
hafi vel tekist til um hönnun og fram-
kvæmd. Einnig hefur verið lögð alúð við
að skreyta mannvirkin með tilvitnunum
í sögu félagsins og séra Friðrik Friðriks-
son aðalhvatamann að stofnun Vals. Það
dylst engum, sem hér gengur um húsa-
kynni, að Valshjartað slær að Hlíðarenda.
Eg flyt bygginganefnd Vals og Reykja-
víkurborgar, hönnuðum, verktökum,
starfsmönnum Vals, deildarstjórnum
Vals, aðalstjóm Vals, stjórn Valsmanna
hf, kjörnum fulltrúum og embættismönn-
um Reykjavíkurborgar, og öllum þeim
fjölda annarra, sem hafa lagt hönd á plóg
í þessu viðamikla verkefni og gert okk-
ur kleift að upplifa þessa stund þakkir frá
Knattspyrnufélaginu Val.
í dag er gleðidagur að Hlíðarenda.
Það er uppgangur og kraftur í öllu starfi
félagsins. Það hefur sannast enn og aft-
ur að hinar sterku rætur sem séra Friðrik
Friðriksson og Valsungamir hans sköp-
uðu á öndverðri síðustu öld hafa ætíð
dugað til að blása eldmóði í forystumenn
Vals. Þetta gerðist í aðdraganda kaupa á
Hlíðarenda á sínum tíma og þetta hefur
gerst í aðdraganda þeirrar uppbyggingar
sem við nú njótum og mun áfram verða í
fullum gangi.
Knattspyrnufélagið Valur stendur nú
á þröskuldi nýrrar og bjartrar framtíð-
ar og er aldrei sterkara og þróttmeira en
einmitt nú, þegar félagið nálgast 100 ára
afmæli sitt þann 11. maí árið 2011.
Ég óska okkur Valsmönnum og öllum
Reykvíkingum til hamingju með daginn.
Takk fyrir.
Ávarp Vilhjálms Þórs
Vilh almssonar borgarstjóra
Reykjavíkur
Það er mér mikill heiður að vera hér í
dag á þessum merka degi í sögu Vals.
Hér eru nú risin ótrúlega glæsileg iþrótta-
mannvirki, sem í dag hafa skartað sinu
fegursta þar sem svæðið allt og mann-
virki þess hafa iðað af leik og starfi reyk-
vískrar æsku. Já mannvirkin eru í alla
staði glæsileg og bera með sér að vel
hefur verið að verki staðið. Þau eru bæði
fallega hönnuð og vel skipulögð og bera
því öllum þeim sem komið hafa að mál-
um gott vitni um stórhug og djörfung. I
dag er því verið að vígja mannvirki sem
ekki bara Valsmenn og forráðamenn
borgarinnar, heldur Reykvikingar all-
ir geta verið stoltir af. Hér er jafnt reyk-
vískri æsku sem afreksíþróttamönnum
boðið upp á íþrótta- og félagsaðstöðu í
fremstu röð.
Saga Vals á Hlíðarenda teigir sig meira
en hálfa öld aftur í tímann og því ljóst
að mikið vatn hefur runnið til sjávar síð-
an forsjálir forystumenn innan Vals festu
kaup á Hlíðarenda. Sú ráðstöfun verður
seint metin til fjár eða annarra verðmæta
fyrir Knattspyrnufélagið Val og öll þau
ungmenni sem síðan hafa notið þeirrar
aðstöðu og starfsemi sem hér hefur verið
rekin. Og í dag er brotið nýtt blað í sögu
Vals. Búið er að skapa félaginu einstaka
aðstöðu til að halda áfram því kraftmikla
starfi sem það hefur rekið um áratuga-
skeið og mun nú í krafti þessara nýju
mannvirkja geta starfað af enn meira afli
fyrir félagsmenn sína og þann hluta reyk-
vískrar æsku sem vafalítð mun flykkjast
hingað á næstu misserum og árum.
Þær byggingar- og vallarframkvæmd-
ir sem nú eru á lokastigi hafa ver-
ið unnar í mjög nánu og góðu samstarfi
Vals og Reykjavíkurborgar ásamt mik-
ilvægri aðkomu Valsmanna hf. Nýstár-
legri aðferðarfræði hefur verið beitt við
skipulag og uppbyggingu þessara fram-
kvæmda. Með mjög ánægjulegu sam-
starfi forráðamanna Vals og Reykja-
víkurborgar hefur tekist að breyta þeim
verðmætum sem lágu í erfðafestulandi
Vals hér á Hlíðarenda í fjármuni og tæki-
færi til að kosta þessa miklu uppbygg-
ingu. Ekki er langt síðan rætt var um að
hugsanlega væri best að flytja starfsemi
félagsins í eitt af stærstu úthverfum borg-
arinnar. Sem betur fer varð ekki af þeim
áformum og með samstilltu átaki Vals og
Reykjavíkurborgar tókst að finna farsæla
leið til að tryggja starfsemi Vals traust-
an sess hér í hjarta borgarinnar, því hér á
Valur heima.
En uppbyggingunni hér á Hlíðarenda
er þó ekki að fullu lokið. Nú þegar er
hafinn undirbúningur að byggingu knatt-
hús, sem rísa mun hér við suðurhlið nýja
keppnisvallarins og ramma endanlega inn
þessi miklu og fallegu mannvirki. Auk
þess mun grasæfingasvæðið hér að neð-
an stækka umtalsvert. Nú þegar og enn
frekar þegar öllum þessum framkvæmd-
um er lokið mun Knattspyrnufélagið Val-
ur státa af einhverri allra bestu aðstöðu
sem nokkurt íslenskt íþróttafélag hefur
upp á að bjóða og jafnvel þótt víðar væri
leitað.
Ég er ekki í nokkrum vafa að hér að
Hlíðarenda á Valur eftir að vinna marga
og glæsta sigra og verða félagsmönnum
sínum sem og Reykjavíkurborg til mik-
ils sóma. Sem borgarstjóra er mér þó efst
í huga það blómmikla æskulýðsstarf sem
ég veit að Valur á hér eftir sem hingað til
eftir að standa að um langa framtíð. Öll-
um er ljóst mikilvægi þess mikla uppeld-
is- og forvarnarstarfs sem fram fer innan
íþróttahreyfingarinnar. Fátt ef nokkuð er
betra fyrir æsku og unglinga þessa lands
en að leggja stund á íþróttir og heilbrigt
líferni. Það er því fátt ánægjulegra í mínu
starfi en að fylgja eftir jafn viðamiklu
uppbyggingarstarfi og hér hefur átt sér
stað.
Um leið og ég óska öllum Valsmönn-
um jafnt í nútíð sem framtíð innilega
til hamingju með daginn, mannvirkin
og svæðið allt, vill ég nota tækifærið til
þakka öllu því dugmikla fólki bæði inn-
an Vals og Reykjavíkurborgar sem kom-
ið hefur þessari miklu uppbyggingu, fyr-
ir vel unnin störf og árangursríkt og
ánægjulegt samstarf.
Ávarp Vigfúsar Þórs Árnasonar
sóhnarprests Grafarvogskirkju
Borgarstjóri, ágœtu Valsmenn og gestir
Til hamingju með merkan áfanga í ein-
stakri sögu Knattspymufélagsins Vals á
Hlíðarenda. Á tímamótum eins og þeim
sem við fögnum hér í dag hugsum við
Valsmenn ávallt til stofnanda félagsins,
prestsins, æskulýðsleiðtogans, skálds-
ins og mannvinarins séra Friðriks Frið-
rikssonar. Okkur öllum er það hugleikið
hverju séra Friðrik áorkaði í öllu sínu lífi
og starfi. Ekki aðeins með því að stofna
Knattspyrnufélgið Val sem eitt út af fyr-
ir sig hefði haldið nafni hans á lofti um
ókomna tíð, heldur og að hann ýtti úr vör
og stofnaði KFUM er síðar varð KFUM
Valsblaðið 2007
57