Valsblaðið - 01.05.2007, Síða 61

Valsblaðið - 01.05.2007, Síða 61
é i i’m lovin’it i’mlovin’it en ekki síst finnst mér mann- lífið á íslandi vera gott,“ seg- ir Rob. Hann segist líka hrífast af ósnortinni rslenskri náttúru og afar gaman sé að ferðast um landið og skoða ótrúlega flotta staði um land allt. Hann lang- ar einnig að ferðast um ósnortið hálendið sem hann þekkir ein- ungis af afspurn og hann vonast til að fá tækifæri til þess fljót- lega. Hann býr hér með konu sinni og eiga þau von á sínu fyrsta bami nú um jólin. í haust bauðst Rob að leika með meist- araflokki Vals og vinna við þjálfun yngri flokka og var hann mjög ánægður með að fá tækifæri til að koma til Vals. Síðan var honum boðið að þjálfa bæði meistara- flokk karla og kvenna og sér hann ekki eftir því að hafa tekið það að sér. Hann er einnig mjög ángæður með Sæba sem aðstoðarþjálfara og telur að hann hafi unnið ómetanlegt starf undanfarin ár við að byggja upp körfuboltann hjá félaginu. Valur fyrirmyndarfélag „Ég hef frá fyrstu tíð hrifist af Val, bæði staðsetningu mannvirkja að Hlíðarenda og umhverfinu þar, félaginu í heild og einnig þótti mér sérstaklega gaman að spila r gamla Valsheimilinu. Ég hef fylgst með uppbyggingu á Valssvæðinu og segi hiklaust að félagið búi nú við bestu stað- setningu nokkurs íþróttafélags á landinu og einnig bestu aðstöðu á landinu,“ seg- ir Rob. „Það er mjög mikilvægt að leikmenn meistaraflokks karla og kvenna séu sýni- legir fyrir yngri iðkendur og séu þeim fyrirmyndir," segir Rob ákveðinn og er Sæbi því hjartanlega sammála. Rob seg- ir að það skipti ekki máli hvort leikmenn ! I ' meistaraflokka séu landsfrægir leikmenn, yngri iðkendur eigi eftir sem áður að geta sótt fyrirmyndir í leikmenn meist- araflokka. Félagið eigi að skipuleggja tengsl eldri og yngri iðkenda, t.d. með því að ungir iðkendur fylgist með leikj- um meistaraflokka og að þeir njóti leið- sagnar þeirra eldri. Hann segir að all- ir sem koma að körfuboltanum þurfi að mynda eina stóra fjölskyldu, bæði leik- menn á öllum aldri, þjálfarar, foreldrar, stjórnarmenn og stuðningsmenn. „Það er mikið verk að vinna að efla körfubolta- samfélagið hér að Hlíðarenda. Andrúms- loftið á Hlíðarenda er mjög jákvætt um þessar mundir, ný glæsileg mannvirki og félagið loksins komið heim á ný eft- ir nokkur ár r útlegð, ef svo má segja,“ segir Sæbi. Góð staða yngri flokka „Ég er nokkuð ánægður með stöðu yngri flokka hjá Val í körfunni, flestir flokkar leika í b riðli og sumir eiga ágætis mögu- leika á að ná í a riðil og eða eru komn- ir þangað nú þegar í ár,“ segir Rob. Hann telur ýmsa leikmenn þar munu ná langt í körfubolta ef þeir halda áfram að æfa af krafti með réttu hugarfari. Einnig sé ánægjulegt að flestir leikmenn meistara- flokks karla eru aldir upp hjá félaginu en það verður alltaf aðalmarkmiðið með yngriflokkaþjálfun í Val að ala upp eigin leikmenn. „Ég er mjög ánægður með ýmsa leikmenn í yngri flokk- um Vals og sé þá fyrir mér sem framtíðarleikmenn félagsins. Ég tel lrka að með betri árangri meistaraflokka þá laði það að góða og efnilega leikmenn frá öðrum liðum í yngri flokk- ana,“ segir Rob sannfærandi. Þeir telja báðir að með nýrri og betri aðstöðu að Hlíðarenda, markvissu kynningarstarfi og góðri þjálf- un þá fjölgi smám saman virkum iðkend- um í körfubolta hjá Val, ekki síst í minni- bolta stráka og stelpna og framundan sé mikið verk að vinna í þeim efnum að efla allt starfið. Mikilvægt að hafa öfluga kvennakröfu Stúdínur (ÍS) gengu í einu lagi í Val og var það mjög ánægjulegt fyrir félagið, en liðið er ekki eins sterkt og það var í fyrra. Kvennaliðinu hefur gengið upp og ofan í haust og átt á brattann að sækja eftir að hafa byrjað tímabilið vel með því að tryggja sér Reykjavíkurmeistaratitilinn. „Ég tel að liðið eigi eftir að smella sam- an á næstunni þegar nokkrir leikmenn verða orðnir góðir af meiðslum og þeg- ar erlendur bandarískur leikmaður bætist við. Með sama áframhaldi verður liðið í fremstu röð á næsta tímabili," segir Rob og brosir. Vandasamt að velja erlenda leikmenn „Það er bráðnauðsynlegt að hafa erlenda leikmenn í meistaraflokki karla og kvenna, en ég er í raun ekki hrifinn af því en góðir og reynslumiklir erlendir leik- Valsblaðið 2007 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.