Valsblaðið - 01.05.2007, Qupperneq 62
menn geta á hinn bóginn hjálpað liðs-
félögum sfnum við að bæta sig og styrkt
liðið um leið,“ segir Rob. Hann hefur
leikið með meistaraflokki í vetur en er
núna meiddur og því er sem stendur eng-
inn erlendur leikmaður í körfunni. Rob
og Sæbi eru báðir sammála því að ekki
sé vænlegt að fá marga erlenda leikmenn
í liðið, þar sem það dragi úr möguleikum
ungra og efnilegra leikmanna að ná fram-
förum, þeir hafi séð of mörg dæmi um
lið þar sem erlendir miðlungs leikmenn
hafi haldið heimamönnum á bekknum og
þegar þeir síðan hverfi á braut liggi leið-
in hjá félaginu niður á við. Slíkt sé ekki
vænlegt til árangurs, miklu betra sé að
gefa ungum og efnilegum leikmönnum
tækifæri.
íslenskur körfubolti á uppleið
„íslenskir leikmenn eru yfirleitt minni
en leikmenn fjölmennari þjóða og ekki
eins líkamlega sterkir og veldur það t.d.
íslenska landsliðinu vandræðum. Leik-
menn hér eru hins vegar margir hverjir
mjög snöggir og fljótir í hraðaupphlaup.
Mér finnst íslenski körfuboltinn fara
batnandi og margir íslenskir leikmenn eru
mjög efnilegir. Ég tel brýnt fyrir íslenska
leikmenn að komast í háskólakörfubolt-
ann, en það getur verið stökkpallur f
atvinnumennsku. Ég tel möguleika fyr-
ir íslendinga að ná langt í körfubolta ef
þeir eru tilbúnir að leggja sig alla fram,
í þeim efnum gildir máltækið,77te sky is
the limit,“ segir Rob býsna sannfærandi.
„Yngri landslið íslands f körfubolta
hafa á undanförnum árum náð mjög góð-
um árangri og nokkur yngri landslið-
iðin hafa keppt í A deild meðal jafnaldra
f Evrópu og meðal annars náð þeim frá-
bæra árangri að sigra núverandi Evrópu-
meistara í þessum aldursflokki. Þeir náðu
hagstæðum úrslitum í þessu móti og
máttu vel við una er þeir spiluðu á móti
bestu liðum Evrópu. En
það er afar mikilvægt
fyrir unga og efnilega leikmenn að etja
kappi við þá bestu erlendis. Körfuknatt-
leikssambandið þarf að standa betur við
bakið á yngri landsliðum Islands," seg-
ir Sævaldur ákveðið, en hann viðurkenn-
ir að vissulega sé kostnaðarsamt að halda
úti mörgum landsliðum, en það sé nauð-
synlegt til að leikmenn verði enn betri.
Undanfarin ár hafi yngri landsliðin síð-
an komið með titla heim af Norðurlanda-
mótum en þar séu íslensku liðin sérlega
dugleg og hafa unnið þessi mót reglulega
undanfarin ár, bæði í drengja- og stúlkna-
flokkum.
Lítil umfjöllun um körfubolta í
fjölmiðlum
„Ég er nokkuð ánægður með umfjöll-
un íslenskra fjölmiðla um körfubolta,
hún fer batnandi, en til þess að auka
áhuga á körfubolta þarf að vera mark-
viss umfjöllun í fjölmiðlum, bæði í sjón-
varpi og í blöðum," segir Sæbi ákveð-
ið. Þeir telja báðir að meginástæðan fyrir
lítilli umfjöllun í fjölmiðlum um körfu-
bolta stafi af því hversu fáir starfsmenn
íslenskra fjölmiðla hafi áhuga á körfu-
bolta. Þeir fylgist t.d. mun betur með
íslenskum leikmönnum í handbolta
og fótbolta sem eru í avinnumennsku
erlendis og segja takmarkað frá íslensk-
um atvinnumönnum í körfubolta erlend-
is, nema í undantekningartilvikum, en
þó nokkur fjöldi íslenskra leikmanna eru
í atvinnumennsku í körfubolta um þess-
ar mundir og þeim fer fjölgandi. Flestir
þekkja til Jóns Amórs Stefánssonar sem
leikur nú í sterkri deild á Ítalíu en ýmsir
aðrir eru að gera góða hluti erlendis sem
lítið er fjallað um hér á landi. „Þess ber
þó að geta að Karfan.is er sérlega öfl-
ug vefsíða sem sinnir körfunni eingöngu
og eiga þeir menn sem stjórna þar heið-
ur skilið fyrir góða og fag-
lega umfjöllun úr heimi
körfuboltans. Heimasíður
félaganna hafa einnig ver-
ið duglegar að taka við sér
og fjalla um körfubolta. En
dagblöð og sjónvarpsmiðlar
mættu gefa körfunni meiri
gaum en gert hefur verið,“
segir Sæbi.
Allir nýir iðkendur
velkomnir
Rob og Sæbi segja að tekið
sé vel á móti öllum nýjum
iðkendum í körfubolta, lögð eru áhersla
á að það sé skemmtilegt á æfingum, allir
fái að njóta sín. Þeim finnst einstakt and-
rúmsloft í nýja Valsheimilinu, þar kynn-
ast krakkarnir vel, bæði milli kynja og
deilda og þar eignast margir sína bestu
vini sem þeir tengist vináttuböndum alla
æfi. „Ég viðurkenni að oft var erfitt að
byggja upp liðsheild og félagsanda fjarri
Hlíðarenda undanfarin ár,“ segir Sævald-
ur, en þeim finnst mikill munur eftir að
nýja aðstaðan var tekin í notkun.
Ktípfubolti hjá Val 2011 á hundrað
ára afmælinu
Þeir sjá báðir fyrir sér að á hundrað ára
afmæli Vals árið 2011 sé raunhæft mark-
mið að meistaraflokkar félagsins, bæði
karla og kvenna, muni leika í efstu deild
og vera þar í efri hlutanum og komast í
úrslitakeppni á hverju ári. Ef vel tekst
að halda efnilegum leikmönnum yngri
flokka hjá félaginu þá sé óhjákvæmilegt
að góður árangur náist innan örfárra ára.
Markvisst uppbyggingarstarf við nýjar
aðstæður og aðbúnað á Hlíðarenda mun
einnig stuðla að betri árangri. Þá mun
stuðningsmönnum fjölga, iðkendum í
yngri flokkum og þannig mun félagið
vonandi komast á þann stall í körfunni
óg er til staðar í handbolta og fótbolta.
Þeir eru einnig sannfærðir að með betri
árangri meistaraflokka muni starfið í
yngri flokkunum eflast og yngri iðkendur
eignast fleiri fyrirmyndir hjá eigin félagi
sem er mikilvægt að mati þeirra og einn-
ig mikilvægt fyrir metnaðarfulla yngri
leikmenn að sjá möguleika að leika með
eigin liði í úrvalsdeild.
Valsblaðið þakkar þeim félögum fyr-
ir skemmtilegt og fróðlegt spjall og ósk-
ar þeim góðs gengis í störfum sínum fyr-
ir félagið.
62