Valsblaðið - 01.05.2007, Page 70

Valsblaðið - 01.05.2007, Page 70
Evrópukeppni Sorglega 8 liða úrslit Fypsti riðill - Klahsvík í Færeyjum Nú x annað sinn á þremur árum fórum við Valsstúlkur í Evrópukeppni félags- liða. Meistarar hvers lands fá þátttökurétt og má því segja að um afar sterkt mót sé að ræða. Fyrsti riðillinn sem við lentum í sam- anstóð af afar áhugaverðum liðum, FC Honka Espoo frá Finnlandi, Den Haag frá Hollandi og KÍ frá Færeyjum. Fær- eyingarnir fengu það verðuga verkefni að halda keppnina en eins og við kom- umst að síðar þá reyndist hægara sagt en gert að hýsa aðkomuliðin þrjú í smábæn- um Klaksvík, þaðan sem KÍ er. Tekniske skolen Þegar við mættum loks í rétta eyju eft- ir þó nokkuð mörg neðanjarðargöng var gistihús bæjarins fullt og ekki hægt að finna samastað þar sem við gátum allar gist saman nema í heimavistarskóla bæj- arins. Skólinn hét Tekniske skolen sem við áttum erfitt með að skilja því inn- andyra var lítið um tækninýjungar og húsgögnin líklega frá seinni heimstyrj- öld. Á endanum sættumst við á þetta, enda lítið annað hægt og fengu þá allir leikmenn bedda og útétið lak til að sofa með. Við fundum okkur nóg að gera í heimavistarskólanum góða en Beta ásamt nokkrum leikmönnum bjuggu til svaka- legt draugahús í einum enda hússins sem átti eftir að hræða líftóruna úr liðinu, Evrópuferðasaga Guðbjargar Gunnarsdóttur markvarðar melstaraflokks kvenna aðallega samt Freysa. Póker var mjög vinsæl afþreying en alls kyns við- umefni komu þar upp. The Queen fór með flesta sigra af hólmi en „the tor- nado“ og „catwoman" vom líka nokk- uð sterkar. Það var líka horft á Napo- leon Dynamite til að finna ný fögn fyrir lokaleik liðsins. I Færeyjum voru margir vígðir en að sjálfsögðu fer það ekki í opinber rit hvað gert er við þá sem em nýir í liðinu enda algjört hernaðarleyndarmál. Valur - FC Honka Fyrsti leikur liðsins var á móti finnsku meisturunum FC Honka og var sá leikur gríðarlega erfiður. Honka skoraði í fyrri hálfleik beint eftir hornspyrnu en við vomm í raun mikið betri allan tímann en náðum ekki að skora. Ákaflega skrýtið veður var í leiknum en það var þoka nán- ast allan txrnann og undirrituð sá varla í mark andstæðinganna. Á 87. mínútu náði Vanja að jafna leikinn og Margrét skor- aði síðan sigurmarkið á 91. mínútu beint úr stórkostlegri aukaspyrnu og einn sæt- asti sigur sem leikmenn hafa upplifað í höfn. Valur - KÍ Næsti leikur liðsins var á móti heimasæt- um í KÍ og reyndist sá leikur heldur auð- veldari en við Honka og fór svo að hann endaði 6-0 okkur í hag. Mörkin skiptust þannig: Margrét 2 (þar af ein vítaspyrna), Rakel, Kata, Nína og Guðný allar með 1. Guðbjörg Gunnarsdóttir ver með tilþrif- um. Eftir þann sigur varð okkur ljóst að við værum þegar komnar áfram vegna inn- byrðis úrslita og gríðarlegur fögnuður varð þá í leikslok. Valur - Den Haag Þriðji og síðasti leikurinn var síðan á móti hollensku meisturunum Den Haag. Við mættum mjög afslappaðar til leiks þar sem við vorum þegar komnar áfram. Margrét skoraði strax á 9. mínútu og bætti síðan öðru við úr vítaspymu á 22. mín. Dagný bætti við marki á 39. mín. og staðan 3-0 í hálfleik. Nína Osk skoraði síðan tvö mörk í seinni hálfleik en þær hollensku náðu að minnka muninn með marki á 90. mín. og lokatölur urðu 5-1. Leikmenn liðsins fóm á kostum á sameiginlegu lokakvöldi mótsins. Anna Garðars. tók upp gítarinn og söng „frum- samið“ lag til Betu þjálfara þar sem hún þurfti alvarlega að afsaka fyrir að hafa sofnað á liðsfundi. Hallbera tók lag- ið „One moment in time“ með Whitney 70 Valsblaðlð 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.