Valsblaðið - 01.05.2007, Page 81

Valsblaðið - 01.05.2007, Page 81
Fræðslupistill Unglingar og íþróttir - hvað ræður brottfalli úr íþróttum? Eftir Ragnhildi Skúladótur, yfirmaður barna- og unglingasviðs hjá Val Undirrituð útskrifaðist úr Lýðheilsu- og kennslufræðideiid Háskólans í Reykja- vfk á siðastliðnu sumri og fjallaði meist- araritgerðin um forvarnir gegn fíkniefn- um. f ritgerðinni voru aðallega skoðaðir fjórir þættir sem sýnt hefur verið fram á að skipta höfuðmáli þegar kemur að for- vömum gegn fíkniefnum. Þessir þætt- ir eru; fyrirmyndir, aldur við upphaf áfengisneyslu, samvera með foreldr- um og þátttaka í íþrótta- og æskulýðs- starfi. Við rannsóknina var gagna aflað með hópviðtölum við unglinga í 9. bekk og við foreldra unglinga á þessum aldri. Einnig vom notuð gögn frá Forvam- ardeginum árið 2006, en að auki fékk undirrituð aðgang að tölfræðigögnum Rannsókna & greiningar. Þar sem rann- sóknin var fjölþætt þá hef ég ákveðið að gefa ykkur innsýn í upplifanir og skoð- anir unglinga og foreldra á íþróttum og hvaða ástæður þau telja vera fyrir brott- falli úr íþróttum. Taka skal fram að und- irrituð hefur eingöngu fært á pappír sýn þessara hópa á málefnið íþróttir og end- urspeglar greinin á engan hátt skoðanir höfundar á málefninu. Hins vegar tel ég að það sé öllum hollt að velta upp skoð- unum og hugmyndum annarra og get ég af sannfæringu viðurkennt að vinnan við ritgerðina jók víðsýni mína á því hvað íþróttir standa fyrir. Helstu kostir íþróttaiðkunar Þegar unglingar úr 9. bekk vom spurð- ir um helstu kosti þess að stunda íþrótt- ir nefndu þeir ýmsar ástæður. Svör hóp- anna vom áþekk og nefndu flestir að hreyfingin væri mikilvæg og með hreyf- ingunni héldu þau sér í formi og styrkt- ust líkamlega. Einnig nefndu þau vel- líðan í lok æfingar og að íþróttir væm skemmtilegar, væru þeirra áhugamál og gott væri að hafa eitthvað að gera í frí- stundum. Félagsskapurinn í íþróttum var líka ofarlega á baugi og kom fram að þau kynntust mörgum í gegnum íþróttir og svo skipti miklu máli að vinirnir væru einnig þátttakendur. Þau töldu einnig að með íþróttaiðkun héldu þau heilbrigðari lífsstíl og minni líkur væm á að þau hæfu neyslu áfengis eða tóbaks. Svipaðar niðurstöður komu fram hjá þeim fullorðnu þegar þau vom beðin að nefna helstu kosti þess að stunda íþrótt- ir. Nefndu þau líkamlegan, félagsleg- an og sálrænan ávinning. Einnig nefndu þau mikilvægi þess að eiga sér tóm- stundarstarf og sá félagslegi ávinning- ur að tilheyra hópi væri ómetanlegur. Þá kom fram að krakkar sem stunda íþrótt- ir stæðu sig jafnan betur í námi. íþrótt- imar byggðust á skýmm skilaboðum og reglum sem væm einstaklingnum mik- ilvæg í uppeldinu. Ástæður íþróttaiðkunar Þá voru fullorðnu einstaklingamir beðn- ir um að velta fyrir sér ástæðum fyrir þátttöku barna og unglinga í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Allir svömðu því til að félagarnir skiptu miklu máli, eldri syst- kini, foreldrar og aðgengi að íþróttum. Talsverð umræða fór fram í hópi foreldra og þar kom fram að í upphafi væm það yfirleitt foreldrarnir sem stýrðu íþrótta- iðkuninni, það er að segja ef bömin byrj- uðu strax á leikskólaaldri í svokölluðum íþróttaskóla. Þegar börnin væm komin í gmnnskóla þá skipti einnig máli hvað bekkjarsystkini væru að gera og þau veldu sér oft sömu íþróttagrein og vin- imir. Einnig var þeirri spumingu velt upp hvort íþróttaþátttaka og virkni foreldra skiptu einhverju máli þegar kæmi að virkni bamanna. Niðurstaðan var sú að ef aðgengið að íþróttum væri gott, þyrfti virkni foreldra ekki að skipta máli og áttu við ef foreldrarnir hefðu verið virkir í íþróttum, legðu þeir það frekar á sig að keyra börnin í íþróttir en þeir sem ekki hefðu verið virkir. Fleiri þættir voru nefndir sem ástæð- ur fyrir þátttöku í íþrótta- og æskulýð- sstarfi eins og fyrirmyndir og umfjöllun um fþróttir í fjölmiðlum. Kostnaður var nefndur sem mögulega hamlandi þáttur á iðkun íþrótta. Lokaniðurstaðan í hópi for- eldra fyrir helstu ástæðum þess að krakk- ar stunda íþróttir og/eða annað æskulýð- sstarf koma frá einu foreldrinu: ,,Ég held að það skipti öllu máli að þetta [íþróttir og/eða annað æskulýðsstarf innsk. RS] sé ekki of dýrt og þetta sé aðgengilegt". Helstu gallar við íþróttaiðkun Unglingamir vom einnig beðnir um að nefna galla við að stunda íþróttir og vom allir hópamir sammála um að mikill tími færi í íþróttaiðkun, sem kæmi nið- ur á þátttöku í öðm félagslífi. Ennfrem- ur nefndu þau að æfingaálag væri mik- ið og meiðsli væm algeng. Æfingamar væru yfirleitt á kvöldmatartíma eða eft- ir kvöldmat og hefði því áhrif á að þau snæddu kvöldverð með fjölskyldunni. Einnig nefndu þau að lögð væri of mik- il áhersla á árangur og það væru alls ekki allir sem stunduðu íþróttir sem hefðu það að markmiði að verða afreksmenn, held- ur væm í íþróttum af því að þeim fannst Valsblaðið 2007 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.