Valsblaðið - 01.05.2007, Page 94

Valsblaðið - 01.05.2007, Page 94
Fyrirliðar Vals og íslandsmeistarar með Islandsmeistarabikarinn 2007. Gri'mur Sœmundsen, Guðmundur Þorbjörnsson, Sigurbjörn Hreiðarsson og Þorgrúnur Þráinsson. í viðtali við Valsblaðið árið 2005 sagði Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði meist- araflokks Vals í knattspyrnu; „Það er styrkur stórveldis að rísa á ný.“ Fyr- irliðinn hafði lög að mæla því þrátt fyr- ir stopult gengi liðsins síðastliðin tíu ár hefur Valur alltaf hafið sig til flugs á ný. Undir stjóm Willums Þórs Þórssonar hefur loksins náðst stöðugleiki og styrk- ur sem einkennir meistaralið með mikinn metnað. Það má með sanni segja að Sig- urbjörn hafi hitt naglann á höfuðið með ummælum sínum því það er líka styrk- ur stórmenna að rísa á ný, eins og fyr- irliðinn hefur sýnt og sannað með tryggð sinni við félagið í gegnum súrt og sætt. Það eru ekki margir sem standa í fæturna eftir að hafa fallið um deild með liðinu sínu í þrígang. Þótt það hafi varla hvarflað að nokkr- um leikmanni að flakka á milli félaga fyrir tveimur áratugum virðist það nánast daglegt brauð um þessar mundir. Menn ganga kaupum og sölum, flýja liðið „sitt“ þegar illa gengur, gefast upp við minnsta mótlæti, jafnvel þótt allt sé í lukkunnar velstandi og róa á önnur mið. Trygglyndi við SITT félag er á undanhaldi en til allr- ar hamingju eigum við enn leikmenn sem eru Valsmenn í hjarta sínu og verða alltaf Valsmenn í hjarta sínu. Vissulega hefur landslagið breyst í boltanum og er öllum ljóst að um hálf-atvinnumennsku er að ræða á Islandi. Engu að síður ættu menn að huga að því hvaða félag þeir hafa í hjarta sínu, hvaða liði þeir vilja tilheyra og ekki síst hvar þeir vilja „eiga heima“ þegar ferlinum lýkur. í viðtali við Valsblaðið fyrir tveimur árum sagði Sigurbjörn ennfremur: „Það er mitt markmið númer eitt, tvö og þrjú að verða Islandsmeistari." Og auðvitað varð Sigurbirni að ósk sinni því hann hef- ur alltaf lagt sig 100% fram. Svo enn sé vitnað í Sigurbjörn var líka haft eftir hon- um þegar hann var spurður um heilræði til yngri iðkenda í Val. „Númer eitt er að halda haus og gefast ekki upp þótt á móti blási, sýna dugnað og metnað á æfingum og setja sér skýr markmið, hlusta á þjálf- arann og bera virðingu fyrir samherjum og andstæðinum og félaginu.“ Þótt Sigurbjörn hafi hampaði íslands- bikarnum sem fyrirliði eftir glæsilega frammistöðu liðsins í sumar átti hann ekki alltaf sjö dagana sæla. Hann varð enn og aftur fyrir mótlæti, rnissti sæti sitt í byrjunarliðinu en brást við því eins og sannur fyrirliði. Hvatti menn til dáða, Iagði sig enn betur fram, setti undir sig hausinn og ætlaði sér aftur í liðið. Vit- anlega tókst honum það og þegar mest á reyndi stóð fyrirliðinn algjörlega und- ir væntingum. í sigurleiknum gegn FH í Kaplakrika fór Bjössi fyrir liðinu og lék án efa sinn besta leik í langan tíma. Þannig eiga sannir fyrirliðar að vera. Þótt Valsliðið allt eigi hrós skilið fyrir frá- bæra frammistöðu í sumar og ekki síst Willum þjálfari þá er þessi titill í hugum margra Valsmanna; íslandsmeistaratit- ill Sigurbjöms Hreiðarssonar. Hann hef- ur aldrei gefist upp, haldið uppi merki félagsins á erfiðum tímum, sett sér skýr markmið og er núna að uppskera. Látum hans eigin orð úr Valsblaðinu árið 2005 verða lokaorð þessarar greinar: Mestu hetjurnar eru ekki alltaf í sigurlið- unum, það er mikill misskilningur að ein- falda það þannig, því til að þroskast sem persóna og leikmaður þurfa menn að geta unnið í mótbyr og meðbyr og fylgt sinni sannfæringu." Til hamingju með íslandsmeistaratit- ilinn Sigurbjörn Hreiðarsson Valsmaður! Þorgrímur Þráinsson 94 Valsblaðið 2007 Ljósm. Valgarður Gíslason
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.