Valsblaðið - 01.05.2007, Blaðsíða 95
Framtíðarfólk
Það sem drepur þig
ekki styrkir þig
Guðlaug Rut Þórsdóttip er 16 óra og leikur lótbolta
með 2. flokki og er handhafi Friðrikshikarsins
Guðlaug er í 2. flokki á yngsta ári og hefur
æft fótbolta með Val í u. þ.b. 10 ár, byrjaði
á yngra ári í 6. fl. Valur er í hverfinu henn-
ar og ekkert annað hafi komið til greina.
Hvernig gengur ykkur? Okkur gekk
nú bara ágætlega í sumar í 3. flokki. Ég
meiddist frekar snemma í júní og gat
ekki spilað meira svo ég datt út þá. En
hópurinn var mjög sterkur og þetta gekk
vel þó svo að við ætluðum okkur meira.
Skemmtileg atvik úr fótbolta? Ég man
vel eftir öllum pæjumótunum sem ég fór
á en þau voru alltaf skemmtileg og eft-
irminnileg og einnig Rey Cup sem við
unnum í fyrra. í 5. flokki þegar við unn-
um eitthvað mót í fyrsta skipti vorum við
voðalega spenntar að fá bikar og vor-
um búnar að æfa okkur að taka á móti
honum og allt, en svo voru bara nælur í
verðlaun og vorum ekkert voðalega sátt-
ar með það.
Fyrirmyndir í fótbolta? Ég man alltaf
eftir því þegar ég var lítil í svona 5. fl.
og mætti niður á Valsvöllinn gamla til að
horfa á leik með meistaraflokki kvenna.
Ég leit svo mikið upp til stelpnanna ég
ætlaði að vera alveg eins og þær. Mfn
helsta fyrirmynd var alltaf Dóra Stefáns-
dóttir og er enn. Svo eru margir aðrir sem
maður lítur upp til.
Hvað þarf til að ná Iangt í fótbolta eða
íþróttum almennt? Það þarf þolinmæði
held ég. Æfingin skapar meistaran það er
víst. Ég þarf nú bara að styrkja mig aðal-
lega til að koma í veg fyrir meiðsli. Mér
finnst að það ætti að vera meira í yngri
flokkunum um alls konar styrktaræfing-
ar, sem geta komið í veg fyrir meiðsli.
Svo getur maður alltaf bætt allt. Sérstak-
lega eftir að hafa verið svona lengi frá.
Hvernig gengur þér að ná þér eftir
meiðslin? Hvað er erfiðast við að lenda
í meiðslum? Það gengur nú bara ágæt-
lega en þetta tekur tíma. Ég fór í aðgerð
fyrir rúmum tveimur mánuðum og þetta
gengur bara mjög vel miðað við hvað
stutt er síðan. Það er talað um að það
taki svona 7-8 mánuði í endurhæfingu.
Ég stefni að því að vera komin aftur til
leiks í mars. Ætla að reyna mitt besta við
að styrkja mig núna og koma svo tvö-
falt sterkari til baka. „Það sem drepur þig
ekki styrkir þig.“ Það sem er erfiðast sér-
staklega þegar maður þarf að vera svona
lengi frá er að gefast ekki upp og halda
alltaf áfram.
Hvers vegna fótbolti? Það hefur bara
alltaf verið fótbolti fyrir mig, kom ekki
annað til greina. Bróðir minn var að æfa
með Val á sínum tíma og það var nú aðal-
lega þess vegna sem ég ákvað að byrja.
Hverjir eru þínir framtíðardraumar
í fótbolta og lífinu almennt? Ég stefni
allavega að því að klára skólann. Svo
langar mig að ná langt í fótboltanum og
stefni að því að geta kannski farið og
spilað erlendis. Það eru svona stærstu
draumarnir, annars er það bara að vera
leikmaður meistaraflokks Vals og lands-
liðsins.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að
hafa fengið Friðriksbikarinn í haust?
Að vinna stór verðlaun eins og þessi gef-
ur manni mikið sjálfstraust og hvetur
mann til að gera enn betur.
Hvað einkennir góðan þjálfara? Ég
hef nú haft nokkra og mjög mismunandi
þjálfara. En mér finnst hann þurfa að
hafa aga á liðinu en samt vera skemmti-
legur og hress. Hann þarf að vera skipu-
lagður og gefa sér tíma í þjálfunina.
Hver stofnaði Val og hvenær? Séra
Friðrik árið 1911.
Valsmenn - bestll Óskir um gleðileg jol og farsælt nýtt áp
rmna>-
HLAÐBÆR W
COLASl
Valsblaðið 2007
95