Valsblaðið - 01.05.2007, Side 98

Valsblaðið - 01.05.2007, Side 98
Ungir Valsarar Maður fær mikla útrás við að leika handbolta Bjartur Guðmundsson leikur handbolta með 4. flokki Bjartur er í 4. flokki og er 14 ára. Þetta er sjöundi veturinn sem hann æfir hand- bolta. Hann segist hafa valið Val af því að það komu leikmenn úr meistaraflokki Vals í skólann að kynna félagið. Svo var stutt að fara í Valsheimilið. Hann segist ekki muna betur en að foreldrar sínir hafi mætt á alla leiki hjá sér, yfirleitt koma þau bæði. Þau séu einnig oft í foreldra- ráði. Honum finnst stuðningur foreldra skipta alveg gríðarlega miklu, það hvetji iðkandann alveg rosalega áfram. Hvernig gengur ykkur? Á síðasta tíma- bili gekk okkur frekar vel, við vorum í lok tímabils meðal fimm efstu liða. Við fórum á bæði deildarmót og íslandsmót. Við erum með fínan hóp en það þarf bara að venjast því að spila saman og þá er ég viss um að þetta smelli hjá okkur. Ég er með góða þjálfara sem hafa metnað fyr- ir starfi sínu og ég treysti þeim fullkom- lega fyrir því sem þeir eru að gera. Góð- ur þjálfari hefur metnað og reynslu. Hann getur haldið uppi aga og getur gert leik- menn góða, en að sjálfsögðu ekki nema leikmennirnir leggi sig fram. Fyrirmyndir í handbolta? Ég lít mik- ið upp til Guðjóns Vals Sigurðssonar sem er leikmaður Gummersbach. En þó aðal- lega vegna mikilla framfara hjá honum inni á vellinum. Ólafur Stefánsson leik- maður Ciudad Real er í miklu uppáhaldi hjá mér, vegna þess hversu mikla yfirsýn hann hefur og hversu frábær leikmaður hann er. Báðir þessir leikmenn spila með landsliðinu. Hvað þarf til að ná árangri í íþróttum? Til þess að ná árangri í íþróttum þarf að mæta vel á æfingar, borða holla og fjöl- breytta fæðu, hafa metnað og áhuga. Það er alltaf hægt að bæta sig. Ég þarf til dæmis að auka skotgleði mína. Hvers vegna handboiti? Ég valdi hand- bolta því mamma stakk upp á því að ég myndi prófa eina æfingu. Mér fannst mjög gaman þannig að ég hélt áfram, svo fær maður líka svo góða útrás af því að vera í handbolta. Ég er líka að æfa fót- bolta með Val og er búinn að æfa í rúm þrjú ár. Framtíðardraumar í handbolta? Það er náttúrulega stóri draumurinn að lifa á því að spila handbolta, en ég ætla nú ekk- ert að vera að gera mér neinar stórar von- ir. Ég er ákveðinn í því að klára mennta- skólanám og hugsanlega háskólanám eða fara út að læra. Sama hvað ég á eftir að starfa við eða fást við í lífinu vona ég að ég geti spilað handbolta á meðan lík- aminn leyfir. Hver stofnaði Val? Séra Friðrik Frið- riksson, 11. maí árið 1911. sári-tfaa P Ski-doo fremstir á sviðinu Paö er ekki aöeins vegna nýs ögrandi útlits sem athyglin beinist aö Ski-doo. Tölurnar tala sínu máli: Sleöarnir eru um 25 kg léttari i ár þó aö þeir séu byggöir á REV grunninum sem var nú léttur fyrir! Hraöari léttari, mögnuö fjöörun og nú enn betri i stjórnun. Ski-doo er fremst á sviöinu nú sem aldrei fyrr. 200.000 kr. afsláttur á nýju Can-am Getum boðið nokkur eintök af Can-am Renegade 800, torfeeruskráðu, á hreint mögnuðu verði með 200.000 kr. afsleetti. Motor MotorMax Roykjavík Kletthálsi 13 - Slmi 563-4400 MotorMax Egilsstöóum Simi 470-5080 / 470-5070 MotorMax Akurcyri Sími 460-6060 www.motormax.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.