Valsblaðið - 01.05.2007, Qupperneq 102
A vortónleikum Valskórsins íHáteigskirkju ímai'2007.
r nv 'i| i
rahn; ■Bl Wf
Félagsstarf
á söng kórsins. Eftir tónleikana seldi kór-
inn veitingar til ágóða fyrir starfsem-
ina. í nóvember var Valskórnum boðið
að syngja með kórum úr Mosfellsbæ og
Skagafirði á skemmtun í Reykjavík og á
aðventunni söng kórinn fyrir heimilisfólk
í Sóltúni og á Hrafnistu.
Hljóðritun á sunniidagsmorgni
Sunnudagsmorgun einn í október kom
kórinn saman í upptökuveri Rúnars Júl-
íssonar í Keflavík. Tilefnið var að Hall-
dór Einarsson, kórfélagi, ætlaði að láta
gamlan draum rætast og taka upp nokkur
lög. Fyrst var tekið upp hið eina og sanna
Valslag, Valsmenn le'ttir í lund, en síðan
sungu stelpurnar í kórnum bakraddir fyr-
ir Halldór. Upptökur þessar voru settar á
afmælis- og hátíðardisk Halldórs Einars-
sonar. Diskurinn rataði víða því Halldór
sendi hann til vina og vandamanna sem
boðskort í stórafmæli sitt í desember.
Þessi ferð er kórfélögum afar minn-
isstæð. Halldór bauð kórnum að koma
fram í afmælisveislu sinni sem haldin var
þann 8. desember sl. Við það tækifæri
flutti kórinn hátíðarljóð sem Dýri Guð-
Kórfélagar og gestir njóta góðra veitinga.
Valskórinn syngur af
hjartans list
Valskórinn er sennilega eina „keppnislið“
félagsins sem ekki stefnir að þvf að sigra
eða færa félaginu verðlaunagripi sem
stilla megi upp innan um glæst sigurlaun
knattspyrnu-, handbolta- og körfubolta-
manna. Þótt ekki fari mikið fyrir kórn-
um innan félagsins er hann mikilvægur
vettvangur Valsmanna sem fyrir nokkru
eru búnir að setja skotskóna upp í hillu
eða tengjast félaginu á annan hátt. Gæfa
kórsins er að hann hefur alltaf haft frá-
bæra stjórnendur. Siðastliðin fjögur ár
hefur Bára Grímsdóttir tónskáld mundað
tónsprotann.
Sungið af hjartans list
Á fyrstu æfingu kórsins í haust var mæt-
ing svo slök að þeir fáu sem létu þó sjá
sig héldu að dagar kórsins væru taldir.
Skýringin var að sjálfsögðu sú að meist-
araflokkur Vals í knattspyrnu stefndi
þá dagana að íslands-
meistaratitli og lék þetta
kvöld mjög mikilvæg-
an leik. Flestir Valsmenn
tóku þann leik fram-
yfir allt annað, jafnvel
æfingu hjá Valskórnum.
Spár um dauða kórs-
ins voru því byggðar á
veikum grunni og rætt-
ust ekki, því síðan hefur
verið sungið af hjartans
list á mánudagskvöldum
í Friðrikskapellu.
Söngannáll ánsins 2007
Það ár sem nú er að líða hófst með því að
farið var að æfa fyrir stærsta
verkefni kórsins, hina árlegu
vortónleika í maí. Liður
í þeim undirbúningi voru
æfingabúðir að Sólheim-
um í Grímsnesi. Valsmenn
óku léttir í lund austur fyr-
ir fjall og dvöldu daglangt
á staðnum, æfðu, sungu fyr-
ir heimamenn og nutu heil-
næmra veitinga. Vortón-
leikarnir sem haldnir voru
í Háteigskirkju tókust vel.
Fjöldi gesta kom til að hlýða
Hjónin Jóhanna Gunnþórsdóttir og Brynjólfur Lár-
entsíusson eftir vel heppnaða tónleika.
mundsson hafði samið og kórinn færði
Halldóri í afmælisgjöf.
Æfingar á mánudagskvöldum í
Friðrikskapellu
Rétt er að geta þess að Valskórinn getur
bætt við sig fleiri meðlimum. Einkum er
hér auglýst eftir kvenröddum þótt karl-
ar séu að sjálfsögðu líka velkontnir. Æft
er einu sinni í viku í Friðrikskapellu, á
mánudagskvöldum milli 19.30 og 21.30.
Það er óskandi að Valskórinn styrk-
ist og dafni á næstu árum og eigi bjarta
framtíð á braut sönglistarinnar.
Jón Guðmundsson tók saman
102
Valsblaðið 2007