Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 19

Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 19
BÚNAÐARRIT 1998 löndum mældur sem PSE hlutfall er sýndur í töflu 2. Framtíðarhorfur Árið 1998 var hagstætt flestum greinum íslensks landbúnaðar. Aukinn kaupmáttur launa stuðlaði að góðri sölu á innanlands- markaði og verð á mikilvægum aðföngum, s.s. kjarnfóðri og eldsneyti, var hagstætt auk þess sem almenn þróun verðlags stuðlaði að lágum vöxtum á fjármagnsmarkaði. Líklegt er því að þetta ár fái góð eftirmæli meðal bænda í grænmetisframleiðslu og svína- og alifuglarækt. Sama má segja um mjólkur- framleiðslu en mikil framleiðsluaukning á seinni hluta ársins 1998 leiðir hins vegar til þess að nokkrar tekjur af beinum greiðslum færast í raun af árinu 1999 yfir á árið 1998. Verðfall á gærum olli hins vegar tekju- skerðingu hjá sauðfjárbændum, æðarbænd- ur og loðdýrabændur máttu þola verðfall á afurðum sínum og hrossaútflutningur dróst saman vegna tímabundins útflutningsbanns af völdum sjúkdóms í hrossum hér á landi. Margt bendir til að nú við aldamót séu að verða ýmis þáttaskil í Iandbúnaði og takast þurfi á við bæði gömul og ný verkefni. Fyrst er til að taka að á árinu 2000 rennur út • PSE (Producer Support Estimate): Mæli- kvarði á árlegar peningalegar tilfærslur frá neyt- endum og skattgreiðendum til búvörufram- leiðenda sem stafa af aðgerðum sem styðja við landbúnað óháð eðli þeirra og tilgangi eða áhrifum á framleiðslu búanna eða tekjur. PSE er ýmist tilgreint sem fjárhæð eða sem hlutfall af heildar- tekjum mælt á afurðaverði við túnfót (PSE%). • CSE (Consumer Support Estimate): Mæli- kvarði á árlegar peningalegar tilfærslur til/frá neyt- endum búvara, mældar á verði til framleiðenda, sem stafa af aðgerðum sem styðja við landbúnað óháð eðli þeirra og tilgangi eða áhrifum á neyslu landbúnaðarafurða. CSE er ýmist tilgreint sem fjárhæð eða sem hlutfall af útgjöldum neytenda til kaupa á búvörum á verði til framleiðenda (CSE%). • GSSE (General Services Support Estimate): Mælikvarði á árlegar peningalegar tilfærslur til „sameiginlegrar” þjónustu við landbúnað sem stafa af aðgerðum sem styðja við landbúnað, óháð eðli þeirra og tilgangi eða áhrifum á fram- leiðslu búanna, tekjur þeirra eða neyslu búvara. GSSE er ýmist tilgreint sem fjárhæð eða hlutfall af heildarstuðningi við landbúnað. • TSE (Total Support Estimate): Mælikvarði á árlegar heildar peningatilfærslur frá skattgreið- endum og neytendum sem stafa af aðgerðum sem styðja við landbúnað að frádregnum sköttum á framleiðsluna óháð eðli þeirra og tilgangi eða áhrifum á framleiðslu búanna, tekjur þeirra eða neyslu búvara. TSE er ýmist tilgreint sem fjárhæð eða sem hlutfall af landsframleiðslu. Tafla 2. Áætlaður stuðningur við framleiðendur, sem hlutfall af verðmæti framleiðslunnar (PSE%) eftir löndum 1986-88 1991-93 1996-98 1997p 1998p Ástralía 7 8 6 7 7 Kanada 34 30 15 14 16 ESB 46 47 39 38 45 ísland 75 71 60 58 69 Japan 65 58 63 61 63 Nýja-Sjáland 11 2 1 2 1 Noregur 67 69 66 65 70 Sviss 74 71 69 68 73 Tyrkland 20 30 29 31 39 Bandaríkin 26 19 17 14 22 OECD 24 1) 41 39 33 32 38 Heimild: OECD. p= Áætlun 1) Án nýjustu aðildarlandanna (Tékklands, Ungverjalands, Kóreu, Mexíkó og Póllands) en Austurríki, Finland og Svlþjóð eru talin með ESB öll árin. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Búnaðarrit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.