Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 77

Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 77
BÚNAÐARRIT 1998 vörnum gegn meindýrum og sjúkdómum. Hefðbundin lyf eru ekki notuð nema í neyð og óheimilt er að nota tilbúinn áburð. Hvort sem um er að ræða vistvænan eða líf- rænan búskap skal allt búfé vera ein- staklingsmerkt og skráð. Þegar á heildina er litið er því verulegur munur á lífrænum og vistvænum búskaparháttum. Nú eru á þriðja hundrað bændur komnir með viðurkenningu fyrir vistvæna fram- leiðslu, aðallega sauðfjárbændur, en reiknað er með að fjöldi íslenskra bænda í ýmsum búgreinum geti uppfyllt skilyrði reglugerðar nr. 504/1998. Hún tekur til allrar land- búnaðarframleiðslu en sérstakir viðaukar eru komnir fyrir allar sauðfjár- og geitfjáraf- urðir, fóðurjurtir og afurðir þeirra, eldisfisk, egg varphænsna í lausagöngu, hrossakjöt svo og grænmeti og kartöflur bæði í ræktun í gróðurhúsum og utandyra. Fleiri viðaukar eru í undirbúningi, svo sem fyrir afurðir svína og kjúklinga í dreifbærum búskap, og væntanlega verða nautgripaafurðir teknar fyrir bráðlega. Notað er eitt vörumerki fyrir allar vistvænar landbúnaðarafurðir, gæða- eftirlit er í höndum búnaðarráðunauta og dýralækna og bæði bændur og afurðastöðvar skulu sækja um viðurkenningu hjá viðkom- andi búnaðarsambandi. Engar upplýsingar liggja fyrir um magn eða verðmæti vist- vænna landbúnaðarafurða. Þess ber að geta að viðurkenning fyrir ýmis konar vistvæna framleiðslu er þekkt erlendis þótt hún sé ekki innan alþjóðlegs ramma. Samtals um 40 aðilar, þ.e. rúmlega 30 bændur og nokkrar afurðastöðvar, hafa hlot- ið vottun fyrir lífræna framleiðsluhætti hjá þeim tveim vottunarstofum sem annast Vistvænn landbúnaður Vistvæn landbúnaðarframleiðsla einkennist af góðum búskaparháttum, hreinleika afurða, vel- ferð búfjár og umhverfisvernd. Allri lyfja- og efnanotkun, svo og áburðarnotkun, er stillt í hóf og óheimilt er að nota hormóna og vaxtarhvetj- andi efni við eldi búfjár. Stuðlað er að sjálfbærri þróun. Lífrænn landbúnaður Lífræn landbúnaðarframleiðsla byggist á lifrænni ræktun jarðvegs, notkun lífræns áburðar, safn- haugagerð, sáðskiptum og lífrænum vörnum I stað hefðbundinna lyfja, hormóna og eiturefna. Gerðar eru miklar kröfur til umhverfisverndar, velferðar búfjár og hreinleika afurða. Óheimilt er að nota erfðabreyttar lífverur. eftirlit og vottun skv. reglugerð nr. 219/ 1995, en hún er innan alþjóðlegs ramma. Þær eru LIV (Vistfræðistofan, lífræn íslensk vottun) í Reykjavík og TUN (Vottunar- stofan, vottun lífrænna afurða) í Vík í Mýr- dal. Lífræn vottun ætti að geta náð til allra búgreina og flestra afurða. Nú eru einkurn á markaði lífrænt vottaðar garðávaxta- og gróðurhúsaafurðir, svo sem kartöflur, rófur, gulrætur, kálmeti, agúrkur, paprika, krydd- jurtir og tómatar, en dilkakjöt, nautakjöt, egg og mjólkurafurðir svo og þörunga- og jurtaafurðir eru farnar að vera á boðstólum og reikna má með vaxandi fjölbreytni og aukningu í lífrænu framleiðslunni á kom- andi árum. Lífrænar vörur eru seldar undir merkjum vottunarstofanna en hjá Evrópu- sambandinu er rætt um að koma upp sam- evrópsku vörumerki til samræmingar. Áætlað er að framleiðsla lífrænna vara nemi tæplega 1% af landbúnaðarframleiðslunni en einnig er töluverður innflutningur á ýmsum lífrænunt vörum. Erlendis er víða mikil gróska á markaði með lífrænar vörur. Gæðastýring og vottun landbúnaðaraf- urða er vænleg leið til að auka hagræðingu og bæta rekstur og samkeppnisstöðu og þar með tekjur bænda. Gæði íslenskra búsafurða eru vissulega mikil en á þeim þarf að fást formleg viðurkenning. Reikna má með að þau gæði fái viðurkenningu markaðarins með hærra verði líkt og gerst hefur erlendis og góðar vísbendingar eru um hér á landi. Þar sem gera má ráð fyrir vaxandi sam- keppni við innfluttar landbúnaðarafurðir skiptir slík viðurkenning miklu máli. Imynd framleiðslunnar styrkist og nýir möguleikar skapast til útflutnings á hágæðavörum. 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Búnaðarrit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.