Búnaðarrit - 01.01.1998, Blaðsíða 79
BÚNAÐARRIT 1998
Ari Teitsson, Hrísum, Reykjadal, formaður
Hrafnkell Karlsson, Hrauni, Olfusi, fyrri
varaformaður
Gunnar Sæmundsson, Hrútatungu,
Húnaþingi vestra, annar varaformaður
Guðmundur Grétar Guðmundsson,
Kirkjubóli, Dýrafirði
Hörður Harðarson, Laxárdal,
Gnúpverjahreppi
Þórólfur Sveinsson, Ferjubakka II,
Borgarbyggð
Örn Bergsson, Hofi, Öræfum.
Framkvæmdastjóri er Sigurgeir
Þorgeirsson.
Á árinu 1998 var skipað í 38,7 stöðugildi
hjá Bændasamtökum fslands auk félags-
stjórnar og starfsfólks í mötuneyti og við
ræstingar. Þau skiptust þannig á starfssvið:
Yfirstjórn og skrifstofa 7,5
Ráðunautar 13,0
Utgáfa, bókasafn, námskeið 4,3
Tölvudeild - skýrslur og forritun 8,4
Byggingaþjónusta 1,5
Nautastöðvar 4,0
Yfirstjórn og félagsstarf
Búnaðarþing 1998 kom saman 8. ntars og
starfaði í eina viku. Kosningar til þingsins
höfðu farið fram um sumarið og haustið
áður og urðu talsverðar breytingar í hópi
fulltrúa. Þingið afgreiddi 39 mál og meðal
þeirra helstu voru frumvarp til búnaðarlaga,
stefnumótun BI, frumvörp varðandi eignar-
rétt, stjórnsýslu og afnotarétt á hálendinu og
eignarhald á auðlindum í jörðu, frumvarp til
laga um dýralækna og tilraunainnflutningur
á NRF-erfðaefni frá Noregi til kynbóta á
kúastofninum.
Setning búnaðarlaga nr. 70/1998 og
samningagerð við ríkisvaldið á grundvelli
þeirra setti svip á starfsemi samtakanna á
árinu enda marka nýju lögin tímamót í
samskiptum þessara aðila en samkvæmt
þeim er samið til fimm ára í senn um
verkefni á sviði leiðbeininga, búfjárræktar og
jarðabóta og framlög til þeirra. Auk þess er
sarnið um framlög til Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins. Fyrsti fimm ára samningurinn
var fullbúinn í ársbyrjun 1999.
Bændasamtökin eiga aðild að ýmsum
stjórnum og nefndum á sviði landbúnað-
armála og taka þátt í margháttuðu erlendu
samstarfi. Á árinu var formaður BÍ jafnframt
formaður í Norrænu bændasamtökunum,
NBC.
Leiðbeiningaþjónusta
Störf ráðunauta Bændasamtakanna skiptust
þannig eftir fagsviðum og búgreinum:
Jarðrækt, vatnsveitur, forðagæsla og hlunn-
indi (2 störf). Leiðbeiningar í jarðrækt og
vatnsvirkjun, umsjón með
jarðabótaúttektum og framlögum, yfir-
umsjón með forðagæslu, leiðbeiningar
urn hlunnindanytjar, þ.e. æðarrækt, sel-
veiðar, reka, söl, fjallagrös, sjávarnytjar og
hvers kyns atvinnusköpun.
Garðyrkja, ylrækt (2 störf). Leiðbeiningar,
þátttaka í rannsókna- og þróunarstarfi og
hagtölusöfnun í garðyrkju.
Búfjárrækt (5 störf - 4 í árslok). Leið-
beiningar í nautgriparækt (1,5), sauð-
fjárrækt (0,5), hrossarækt (1,0), svínarækt
(0,5) og loðdýrarækt (0,5). Auk þess ein
staða við þróun kynbótakerfa og
útreikninga á kynbótamati.
Lífrænn búskapur og landnýting (1 starf).
Auk leiðbeininga á þessum sviðum ann-
ast ráðunautur skýrslur geitfjárræktar,
landsmarkaskrá og vissa aðra þætti skv.
búfjárhaldslögum.
Byggingar og bútækni (1 starf). Leiðbein-
ingar urn landbúnaðarbyggingar og
tæknibúnað en jafnframt yfirumsjón með
byggingaþjónustu BÍ.
Ferðaþjónusta (1 starf). Leiðbeiningar,
eftirlit og úttektir. Lét af starfi í árslok.
Hagfræði og bókhald (1 starf). Leiðbein-
ingar um rekstur, bóldialds-og skattamál.
77