Búnaðarrit - 01.01.1998, Page 34
BÚNAÐARRIT 1998
Sauðfjárrækt
Afurðir sauðfjár eru kjöt, slátur, gærur og
ull. Samkvæmt verðmætaáætlun Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins fyrir árið 1998
gaf kjötið 87% af tekjum greinarinnar,
slátur tæp 4%, gærur 2% og ull rúm 7%.
Verðmæti sauðfjárafurða voru samkvæmt
sömu heimild 20,1 % heildarverðmæta land-
búnaðarafurða árið 1998.
I mörgum tilvikum eru margir aðilar á
sama býli skráðir innleggjendur sauðfjár-
afurða. Fjöldi innleggjenda er því töluvert
meiri en fjöldi lögbýla með greiðslumark.
Fjöldi lögbýla með greiðslumark árið 1998
var 2.369 en voru 2.405 árið áður. Þetta er
1,5% fækkun. Árið 1998 komu 96,5%
framleiðslunnar frá þessum búum eða 7.891
tonn. Frá lögbýlum án greiðslumarks komu
252 tonn og frá framleiðendum utan lög-
býla komu 34 tonn. Fjöldi sauðfjárbúa og
stærð þeirra eftir kjördæmum er sýndur í
töflu 15.
Tafla 15. Fjöldi innleggjenda og stærð sauðfjárbúa 1998 eftir kjördæmum.
Fjöldi lög- býla m. gr.m Innl. kindakjöt kg Meðal innlegg, kg Virkt gr.mark, ærg.
Reykjanessvæði 40 60.797 1.520 2.689
Vesturland 384 1.372.192 3.573 60.483
Vestfirðir 210 913.682 4.351 45.461
Norðurland vestra 435 1.637.144 3.764 79.348
Norðurland eystra 412 1.351.747 3.281 65.159
Austurland 321 1.388.963 4.327 67.812
Suðurland 567 1.451.361 2.560 70.046
Samtals allt landið 2.369 8.175.884 3.451 390.998
Heimild. Framleiðsluráð landbúnaöarins.
M
32