Búnaðarrit - 01.01.1998, Qupperneq 63
BtíNAÐARRlT 1998
neyslu, sérstaklega þegar uppskera er
mikil.
Nánast öll uppskeran er seld innanlands
en árið 1998 voru um 68 tonn afkartöflum
fiutt út, mest til Færeyja. Heildarverðmæti
útflutningsins nam ríflega 1.910 þúsund kr.
Verðlagsmál
Hvorki kartöflur né annað útiræktað græn-
meti lúta opinberri verðlagningu. Verð til
framleiðenda hefur á undanförnum árum
sveiflast mikið milli ára en einnig innan
hvers árs. Ástæður þessa eru fyrst og fremst
miklar sveiflur í framboði og eftirspurn
innan ársins en uppskerumagn hvers árs
hefur einnig áhrif á verðið. Verð á kartöflum
til framleiðenda hefur farið stöðugt lækk-
andi undanfarin ár en verð á grænmeti hefur
farið hækkandi. Tafla 48 sýnir verð til fram-
leiðenda samkvæmt verðmætaáætlun Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins árin 1994-1998.
Afkoma kartöflu- og grænmetisbúa
árið 1996
Hagþjónusta landbúnaðarins birtir árlega
niðurstöður úr rekstraruppgjöri kartöflubúa
sem unnið er upp úr skattframtölum. Árið
1996 voru 19 kartöflubú í úrtakinu. Megin-
niðurstöður úr rekstri eru að á kartöflu-
búum var hagnaður fyrir fjármagnsliði
19,4% af veltu, hagnaður af reglulegri
starfsemi 9,4% og hagnaður af starfseminni
10,5%. Ekki er tii samskonar yfirlit um úti-
ræktun grænmetis. Tafla 49 sýnir rekstrar-
yfirlit fyrir kartöflurækt árið 1997.
Tafia 49. Rekstraryfirlit í kartöflurækt
1997 (þús. kr.).
Kartöflurækt
Fjöldi búa 19 Meðaltal
Tekjur:
Sala afurða 78.100 4.111
Birgðabreyting 0 0
Aðrar tekjur 7.300 384
Framleiðslustyrkir 0 0
Tekjur samtals 85.400 4.495
Gjöld:
Efniskaup, útsæði, áburður 13.400 705
Greidd laun og launat. gjöld 700 37
Reiknuð laun 17.000 895
Annar kostnaður 25.500 1.342
Afskriftir 12.200 642
Rekstrarkostnaður samtals 68.800 3.621
Hagnaður f. vexti og verðbr.f. 16.600 874
Vextir og verðbr.færsla -8.600 -453
Hagnaður af reglul. starfsemi 8.000 421
Óreglulegar tekjur og gjöld 1.000 53
Hagnaður 9.000 474
Heimild: Hagþjónusta landbúnaðarins.
Tafla 50 sýnir efnahagsyfirlit sömu búa
og eru í töflu 49. Veltufjárhlutfall er 0,42, en
eiginfjárhlutfall 0,38.
Tafla 50. Efnahagsyfirlit í
kartöflurækt 1997 (þús. kr.).
Kartöflurækt
Fjöldi búa 19 Meðaltal
Eignir:
Veltufjármunir 23.900 1.258
Fastafjármunir 137.400 7.232
Eignir samtals 161.300 8.489
Skuldir:
Skammtímaskuldir 56.800 2.989
Langtímaskuldir 43.100 2.268
Skuldir samtals 99.900 5.258
Eigið fé 61.400 3.232
Skuldir og eigiö fé samt. 161.300 8.489
Veltufjárhlutfall 0,42
Eiginfjárhlutfall 0,38
Heimild: Hagþjónusta landbúnaðarins.
61
L