Fréttablaðið - 25.03.2010, Síða 10
10 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR
aftur næsta vetur en hún gæti líka
komið í vor. Inflúensan er ólíkinda-
tól. Hún getur breytt sér og gert
allar hundakúnstir en þetta bólu-
efni er mjög öflugt og við höfum
góðar vonir um það að þó að veir-
an breyti sér eitthvað eigi bóluefn-
ið að koma í veg fyrir sýkingu af
breyttri veiru – þótt við vitum það
náttúrlega ekki,“ segir Þórólfur
Guðnason. gar@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Menn gleyma því
að það voru tvö hundruð manns
lagðir inn á spítala og tuttugu
manns í öndunarvélar á gjörgæslu
– allt fólk á besta aldri sem annars
hefði dáið,“ segir Þórólfur Guðna-
son, yfirlæknir á sóttvarnasviði
Landlæknis, sem kveður mikil-
vægt að allir verði bólusettir gegn
svínaflensu.
Að sögn Þórólfs hafa nú um 150
þúsund manns látið bólusetja sig
gegn svínaflensunni hérlendis.
„Við teljum mikilvægt að ná góðri
þekjun og meira ónæmi í samfélag-
inu gegn þessari flensu til að koma
í veg fyrir að hún geti blossað upp
aftur,“ segir Þórólfur og ítrekar að
slíkir heimsfaraldrar komi ekki
bara einu sinni og hverfi heldur
gangi aftur næstu ár. „Oft hafa
faraldrarnir verið álíka skæðir
þegar þeir koma í annað og þriðja
sinn. Og stundum verri.“
Þórólfur segir að þótt mjög
gott sé að annar helmingur þjóð-
arinnar hafi látið bólusetja sig sé
mikilvægt að hinn helmingurinn
láti einnig bólusetja sig. Enn sé til
bóluefni fyrir 150 þúsund manns
því keyptir hafi verið 300 þúsund
skammtar. Efnið endist í um tvö
ár. Þórólfur hafnar því algerlega
að bóluefnið sé lítt rannsakað og
jafnvel hættulegt eins og marg-
ir haldi fram. Hann bendir á að
af öllum sem bólusettir hafi verið
hérlendis hafi aðeins tveir fengið
alvarlegar aukaverkanir.
„En af þeim 55 þúsund manns
sem við teljum að hafi fengið inflú-
ensuna þá eru tvö hundruð sem
fengu hana alvarlega og þurftu að
leggjast inn á sjúkrahús og tuttugu
voru í lífshættu,“ segir Þórólfur og
undirstrikar að tilkynntar auka-
verkanir hafi alls ekki verið fleiri
en við almennar bólusetningar.
„Það er líklegast að flensan komi
Um helmingur bólusettur
Um
helmingur
þjóðarinnar hefur
látið bólusetja sig við
svínaflensunni. Enn er til bóluefni
fyrir um 150 þúsund manns því keyptir
voru 300 þúsund skammtar af efninu.
Allir láti sprauta sig
gegn svínaflensunni
Yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis segir mikilvægt að koma upp meira
ónæmi í samfélaginu gegn svínaflensunni. Þó að veiran sé ólíkindatól og geti
breytt sér vonist menn til að bóluefnið dugi. 150 þúsund skammtar eru enn til.
ÞÓRÓLFUR GUÐNASON Aukaverkanir af bólusetningu gegn eru svínflensu mjög
litlar miðað við hættuna af veirunni sjálfri, segir yfirlæknir á sóttvarnasviði Land-
læknisembættisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SJÁVARÚTVEGUR Afskrifa þarf allt
að tuttugu prósent af skuldum
sjávarútvegsfyrirtækja, eða
um hundrað milljarða króna, til
að þau geti starfað eðlilega og
ráðið við sínar skuldbindingar.
Þetta kom fram í máli Friðriks
J. Arngrímssonar, framkvæmda-
stjóra Landssambands íslenskra
útvegsmanna, í hádegisfréttum
Bylgjunnar.
Friðrik segir ljóst að einhverjir
aðilar í sjávarútvegi ráði ekki að
fullu við sínar fjárhagslegu skuld-
bindingar. Til að mynda þeir sem
fjárfest hafi í óskyldum atvinnu-
greinum. Ákveðin skuldaaðlögun
þurfi því að verða í sjávarútvegi
líkt og víðar.
Hann segir ýmislegt geta gerst.
Í sumum tilfellum geti verið
að kröfuhafar semji við núver-
andi eigendur um niðurfellingu
hluta skulda eða skuldaaðlögun.
Í öðrum tilfellum geti svo farið
að fyrirtækin verði seld.
Hugsanlega þurfi að afskrifa
allt að tuttugu prósent af skuld-
um sjávarútvegsfyrirtækja eða
um hundrað milljarða króna til
að þau geti starfað eðlilega og
ráðið við sínar skuldbindingar,
að sögn Friðriks.
Framkvæmdastjóri LÍÚ segir skuldaaðlögun þurfa að verða í sjávarútvegi:
Afskrifa þarf 100 milljarða
FÉLAGSMÁL Bandalag íslenskra
skáta er nær öruggt um að fá að
halda heimsmót róverskáta hér á
landi árið 2017. Mótið verður lang-
stærsti alþjóðlegi viðburðurinn
sem íslenskir skátar hafa staðið
fyrir frá upphafi.
Heimsmót róverskáta eru ætluð
skátum á aldrinum 18 til 26 ára,
og búast má við á bilinu 6.000
til 8.000 skátum hingað til lands
á mótið, segir Bragi Björnsson
skátahöfðingi. Mótin eru hald-
in fjórða hvert ár í mismunandi
löndum. Bandalag íslenskra skáta
hefur eitt sótt um að halda mótið
árið 2017.
„Þetta er mjög gott tækifæri og
mikill heiður fyrir okkur,“ segir
Bragi. Enginn keppir við íslensku
skátana um að fá að halda mótið
þetta árið, en eftir er að staðfesta
endanlega að það verði haldið hér.
Bragi segir efnahagsmálin vissu-
lega hafa komið upp í umsóknar-
ferlinu, en íslenska skátahreyfing-
in sé vel rekin og hafi alla burði til
að standa fyrir svo stóru móti.
„Þetta er í fyrsta skipti sem svo
lítið bandalag hefur tekið að sér
svo stóran atburð,“ segir Bragi.
Hann segir að íslenskum skátum
sé treyst fyrir svo stóru móti þar
sem afar vel hafi tekist til þegar
Roverway-skátamótið var haldið
hér á landi í fyrra.
„Þjóðirnar sáu hvað við stóðum
okkur vel síðasta sumar, Ísland er
spennandi land að heimsækja, og
þetta verður gott tækifæri fyrir
þetta unga fólk til að heimsækja
það sem í hugum margra er mjög
framandi land,“ segir Bragi. - bj
Bandalag íslenskra skáta heldur risavaxið skátamót fyrir eldri skáta árið 2017:
Stór atburður hjá litlu félagi
SKÁTAMÓT Skátamót fyrir yngri skáta var
haldið hér á landi í fyrra, og þótti takast
afar vel. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Flestir senda rafrænt
Ríflega 57 þúsund manns höfðu
skilað inn skattframtali sínu í gær.
Langflestir, eða um 55 þúsund,
skiluðu framtalinu rafrænt á vef
ríkisskattstjóra. Lokaskiladagur á
skattframtölum er á morgun. Hægt
er að sækja um frest til að skila inn
framtali og er þá lokaskiladagur 7.
apríl. Um 260 þúsund einstaklingar
eru framtalskyldir þetta árið.
SKATTAMÁL
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
hefur þurft að sinna fjölmörg-
um verkefnum í umdæminu und-
anfarna daga, svo sem að taka
við tilkynningu um týnda hænu
í Hveragerði og geltandi hund á
Selfossi.
Ökumaður sem lögreglumenn
höfðu afskipti af vegna hraðakst-
urs reyndist einnig undir áfeng-
isáhrifum. Ellefu aðrir ökumenn
voru kærðir fyrir hraðakstur.
Einn ökumaður var kærður
fyrir að aka bifreið sviptur
ökuréttindum. - jss
Lögreglumenn í önnum:
Týnd hæna og
geltandi hundurRyksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
4.990kr.Deka Meistaralakk 40 Akrýllakk. 1 líter
1.495kr.
MAKO pensill
50mm
490kr.
MAKO rúlla 25 cm
450kr.
MAKO málningarlímband
25mm - 50m
445kr.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Þvottavél
WM 14E261DN
á hreint
frábærum kjörum.
Tekur mest 6 kg,
vindur upp í 1400 sn./mín.
Með 15 mínútna þvottakerfi
og íslensku stjórnborði.
Tækifærisdagar
í verslun okkar!
129.900
Tækifærisverð:
kr. stgr.
(Verð áður: 169.900 kr.)
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
„Oft hafa faraldrarnir
verið álíka skæðir
þegar þeir koma í annað
og þriðja sinn. Og stundum
verri.“
ÞÓRÓLFUR GUÐNASON
YFIRLÆKNIR Á SÓTTVARNASVIÐI
LANDLÆKNISEMBÆTTISINS.
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMS-
SON
Hann segir
að afskrifa
þurfi um
20 prósent
af skuldum
sjávarútvegs-
yfirtækjanna.
16
0
32
0
Þúsund manns