Fréttablaðið - 25.03.2010, Síða 37
FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010
Puma First Round Safari
Flottur strigaskór með gamla laginu.
Töff, gamaldags hönnun færð í nútímalegan stíl.
Puma First Round Safari fást hjá okkur:
Útilíf - Skór.is - Fjölsport - Borgarsport - Blómsturvellir - Hafnarbúðin - Sportver
Tákn - Fjarðasport - Veiðiflugan - K-sport - Axel Ó - Sportbær
Verð: Kr. 15.990.-
Hver
er
þinn
litur?
Þorsteinn Einarsson, skóari í
Kringlunni, er að bæta striga-
skó í saumavélinni þegar hann er
truflaður. Sá skór er með röndum
og gylltum kósum. „Það er allt-
af eitthvað um að fólk komi með
uppáhaldsstrigaskóna sína í við-
gerð því allir eiga svoleiðis,“ segir
hann og segir skóinn sem hann er
að meðhöndla dæmi um tískuna í
dag. „Ég var að koma af sýningu
úti í Wiesbaden í Þýskalandi og sá
þar alls konar skraut á strigaskó
og pantaði marglitar reimar sem
koma bráðum. Svo var hægt að
fá skraut til að þræða upp á reim-
arnar, til dæmis skrautsteina og
fána allra liðanna sem keppa á
heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Veit ekki hvort það hentar hér í
slabbinu en reimarnar eru mjög
vinsælar úti í Evrópu.“
Límingarnar meðfram sólan-
um er það sem helst vill bila, að
sögn Þorsteins, og líka tauið rétt
við samskeyti þess og gúmmís-
ins.“ Það eru engar vélar notaðar
í sambandi við hliðarlímingar en
ef þarf að gera við sólana sjálfa
þá nota ég pressur. Við erum með
gúmmí í svona sóla,“ segir hann.
Einnig rifnar stundum út úr götun-
um sem reimarnar eru þræddar í
og þá er bætt og saumað en kósur
eru sjaldan settar í nema þær séu
til staðar áður. Hælfóðrið vill líka
trosna enda yfirleitt úr þunnu og
mjúku efni. „Það kemur fyrir að
við setjum leðurklæðningu þar inn
í,“ lýsir skóarinn.
Eitt heilræði leggur Þorsteinn
til að lokum. „Það er gott að skipta
stundum um leppana inni í striga-
skónum og endurnýja þá, því bæði
lýjast þeir og svo safnast í þá
svitalykt.“ - gun
Uppáhaldsskórnir í viðgerð
„Límingarnar meðfram sólanum er það sem helst gefur sig á strigaskónum að sögn
Þorsteins, skóara í Kringlunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vörumerkið Puma er að senda
frá sér nýja skó á markaðinn.
Skórinn er nýkominn í búðirn-
ar á Íslandi í hressandi litum
fyrir sumarið.
„Þessir skór heita First Round Saf-
ari og eru úr Puma Archive-línunni
en Archive-línan sækir innblástur
sinn til upphafsára Puma,“ útskýr-
ir Ragnhildur Rósa Guðmundsdótt-
ir, sölumaður hjá Tótem, umboðsað-
ila Puma. „Puma sækir reglulega í
eldri hönnun. Þeir byggja á langri
hefð allt frá árinu 1948 og hafa því
af nógu að taka.“
First Round Safari-skórinn er
tískuíþróttaskór, upphár, reimaður
úr striga. Hann hefur áður komið
fram í Archive-línu Puma en nú
er hann í nýrri útfærslu og nýjum
litum.
„Skórinn er í svörtu, hvítu, túrk-
isbláu, fjólubláu og gulu og er fer-
lega flottur. Við reiknum með að
hann verði vinsælastur hjá stelpun-
um, kannski á fermingaraldrinum
og upp úr.“
Puma-vörumerkið er bæði
íþrótta- og lífsstílsmerki. Ragnhild-
ur segir fólk hafa tilhneigingu til
að líta á Puma eingöngu sem tísk-
umerki en metnaður fyrirtækisins
undanfarin ár hafi verið sá að sýna
fram á að Puma sé alvöru íþrótta-
merki sniðið að þörfum alvöru
íþróttamanna.
„Usain Bolt og allt frjálsíþrótta-
lið Jamaíka keppir í Puma. Nýjasti
kylfingurinn í röðum Puma, Rick-
ie Fowler, hefur verið að stimpla
sig inn í golfheiminn undanfar-
ið. Þá er landslið Ítalíu, ríkjandi
heimsmeistara, og Egyptalands,
núverandi Afríkumeistara, einn-
ig í Puma. Puma hefur frá upphafi
verið í fararbroddi í framleiðslu
á íþróttavörum og kom til dæmis
með fyrsta fótboltaskóinn á mark-
aðinn með skrúfutökkum. Vör-
urnar hjá okkur spanna allt sviðið
en við erum heildsala og þjónust-
um verslanir um allt land. Við hjá
Tótem erum einnig með söluskrif-
stofu þar sem við þjónustum fé-
lagslið og einstaklinga. Eins bjóð-
um við upp á mikið úrval af annarri
vöru til íþróttaiðkunar hvort sem
er fatnaður eða fylgihlutir.“
Puma sækir í gamla
hefð í nýjum skóm
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir og Sigþór Árnason sölumenn hjá Tótem, umboðsaðila Puma á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI