Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 38

Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 38
 25. MARS 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● strigaskór Skemmtilegar stað- reyndir um strigaskó Brynja Pétursdóttir, dansari og danskennari, er forfallinn aðdáandi strigaskóa og hefur safnað slíkum í mörg ár. „Ég hugsa að fólk verði rosalega erfitt þegar það er á kafi í svona skósöfnun. Mikið til eru þetta bara stælar, en ég held líka að við séum flest mjög stolt af þessari áráttu,“ segir Brynja Pétursdóttir, dansari og danskennari, sem hefur safnað strigaskóm í fjölda ára og á orðið hið myndarlegasta safn. Hún segist eiga erfitt með að tilgreina hversu mörg pör af strigaskóm safnið telur, því hún hefur ekki talið þá nýlega, en slumpar á að þau séu í kringum fimmtíu talsins. Að sögn Brynju má rekja upphaf söfnunarinnar til þess þegar hún hóf að starfa sem dansari. „Lengi einbeitti ég mér aðallega að hip-hop dansi og tengingin við strigaskó er rosalega sterk í báðum þessum menningarkimum. Eftir því sem árin líða og fjölgar í safn- inu hef ég í auknum mæli gripið til þeirrar afsökunar að ég sé dans- ari, og dansarar þurfa einfaldlega að líta vel út,“ segir hún og skell- ir upp úr. „Ég er líka alltaf hlaup- andi úti um allt og þarf því að vera í góðum skóm. Og flottum,“ bætir hún við. Brynja segist örlítið hafa slakað á í strigaskóasöfnun síðustu ár. „Fyrst þegar ég byrjaði að safna fylgdist ég gríðarlega vel með allri þróun og hönnun á striga- skóm, las allar bloggsíður því tengt og svo framvegis. Þegar ég fer til útlanda, til dæmis til New York, kaupi ég eingöngu skó í ákveðn- um búðum sem selja „exclusive“ pör sem fást ekki í þessum hefð- bundnari skóbúðum,“ segir Brynja og rifjar upp þegar hún fann ákveðna gerð af Nike-strigaskóm í New York fyrir nokkrum árum, svo- kallaða Mork and Mindy-skó sem ætlað var að líkja eftir skóm sem leikarinn Robin Williams klæddist í gömlum sjónvarpsþáttum. Skömmu síðar komst Brynja að því að eins skór fengust í versluninni Smash hér á landi. „Þetta var hræðilegt því ég fæ grænar bólur þegar ég sé fólk í alveg eins strigaskóm og ég. Ég hætti alveg að nota skóna og hef geymt þá uppi á hillu síðan,“ segir hún. Dansarinn hneykslast þegar blaðamaður spyr hvort hún hafi nokkurn tíma hent skópari. „Ertu að grínast? Nei, það myndi ég aldrei gera. Mér þykir vænt um öll skópör- in mín og á eflaust eftir að glápa á flotta strigaskó alla ævi,“ segir Brynja. - kg Myndi aldrei henda pari Brynja með hluta af strigaskóa-safninu sínu. „Þetta er úti um allt í íbúðinni, í geymslunni, anddyrinu og úti um allt og er fyrir okkur alls staðar. Ég veit samt um fólk sem á mun fleiri pör en ég,“ segir Brynja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ Kvikmyndin Sneakers með Ro- bert Redford og River Phoenix í aðalhlutverkum hafði ekkert með strigaskó að gera, þrátt fyrir nafn- giftina. ■ Adidas heitir eftir skapara sínum Adolf „Adi“ Dassleer. Ru- dolf Dassler, bróðir Adis, stofnaði svo fyrirtækið árið 1948. ■ Kurt Cobain var í svörtum Con- verse One Stars-rúskinnsskóm þegar hann fyrirfór sér. ■ Skechers og L.A. Gear eru hug- arfóstur Roberts Greenberg, og óhætt að telja hann moldríkan. ■ Converse All-Stars-strigaskórn- ir fengust bara í svörtu og hvítu til ársins 1966. ■ Vöfflusóli Nike var upp- haflega kallaður geirvört- usólinn af skapara sínum, Bill Bowerman. ■ Diadora rekur sögusafn sinna strigaskóa í kjallara verslunar sinnar í Flórens á Ítalíu. ■ Rendurnar þrjár í merki Adidas eru sagðar tákna þrjá syni Adis Dass- lers, stofnanda Ad- idas. ■ Michael Jordan vildi samning við Adidas 1984. Hann er yfirlýst- ur Adidas-aðdáandi. ■ Rocky Balboa gekk um í Converse-skóm og eru skref hans bronsuð í steypu listasafnsins í Philadelphiu. ■ Jerry Sein- feld á yfir 500 pör af hvítum strigaskóm. Usain Bolt, spretthlauparinn frá Jamaíku, hefur verið kallaður hrað- skreiðasti maður heims. Hann á heimsmetið í hundrað metra og tvö hundruð metra hlaupi. Auk þess sem hann á heimsmetið í fjórum sinnum hundrað metra boðhlaupi ásamt félögum sínum í landsliði Jamaíku. Hann hefur einnig fengið Ólympíugull í sömu þremur grein- unum. Á Ólympíuleikunum í Pek- ing árið 2008 varð hann fyrsti mað- urinn til að sigra í þremur sprett- hlaupsgreinum síðan Carl Lewis gerði það árið 1984 og fyrsti mað- urinn til að setja heimsmet í þremur greinum á einum Ólympíuleikum. Usain Bolt hefur einnig orðið þekktur fyrir að keppa í Puma- skóm og í kjölfar Ólympíuleik- anna hóf hann samstarf við Puma-fyrirtækið og hann- aði sérstaka gulllínu sem seld var í vefverslun Puma. Hlaupari hannar gulllínu Usain Bolt er sannkallaður gullhlaupari.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.