Fréttablaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 27. mars 2010
!
#$
%
&
'
"
(
)
*
)"
+
&
(
'
,%-
&
&
..$./0/
1
2
&
3
"444
&
&
"
5
&
6
*
7
&
..$.809
2
&
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir tveimur lögfræðingum
til starfa á nýrri skrifstofu löggjafarmála. Gert er ráð
fyrir að annar lögfræðingurinn verði ráðinn ótímabundið
en hinn tímabundið í eitt ár.
Eitt helsta verkefni löggjafarskrifstofu er að stuðla að
bættri löggjöf með samræmdum faglegum vinnubrögð-
um í ráðuneytum. Þá veitir skrifstofan forsætisráðherra
og öðrum ráðuneytum ráðgjöf á sviði stjórnskipunar- og
stjórnsýsluréttar og upplýsingalaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð tungumálakunnátta í ensku og a.m.k. einu
norðurlandamáli.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulags-
hæfni.
Að auki er gerð krafa um að sá lögfræðingur sem ráðinn
verður ótímabundið hafi framhaldsmenntun í lögfræði eða
reynslu sem jafna má til slíkrar menntunar.
Lögfræðingar á skrifstofu löggjafarmála sinna meðal ann-
ars samningu frumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla, þróun
gæðaviðmiða fyrir löggjöf, sbr. Handbók um undirbúning
og frágang lagafrumvarpa, yfi rlestri frumvarpa úr öðrum
ráðuneytum, nefndarstörfum við endurskoðun laga, ritara-
störfum fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál, svörum
við fyrirspurnum og ráðgjöf vegna laga og reglna sem
ráðuneytið ber ábyrgð á, yfi rlestri samninga og almennri
lögfræðilegri ráðgjöf til annarra skrifstofa ráðuneytisins.
Um er að ræða áhugaverð og fjölbreytt störf í krefjandi
starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð
og sjálfstæði. Nánari upplýsingar um starfi ð veitir Páll
Þórhallsson skrifstofustjóri skrifstofu löggjafarmála í
síma 545 8400 eða með tölvupósti. Konur jafnt sem karlar
eru hvött til að sækja um stöðuna. Um launakjör fer eftir
kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólamennt-
aðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu berast skrifl ega til forsætisráðuneytisins, Stjórnar-
ráðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík, eigi síðar
en 15. apríl nk. Tekið skal fram hvort starfi ð er sótt um.
Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði
frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2.
mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með
síðari breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru samkvæmt
heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Forsætisráðuneytinu, 27. mars 2010.
STARFSMAÐUR Í DAGVISTUN
Hjúkrunarheimilið Holtsbúð óskar eftir starfsmanni
í fullt starf við dagdvöl hjúkrunarheimilisins frá og
með 3.maí 2010. Vinnutími er frá 8-16 alla virka
daga. Umsækjandi þarf að geta sinnt léttum
aðhlynningarstörfum, s.s. böðun. Umsækjandi
þarf að hafa góða samskiptahæfi leika, frumkvæði,
ánægju af að vinna með öldruðum og vera reiðu-
búinn að sinna upplestri og aðstoða við handavinnu,
leikfi mi og föndur.
Áhugasamir hafi samband við Vilborgu
Helgadóttur hjúkrunarforstjóra í síma 535-2200
eða á vilborg@holtsbud.is
Háholti 23, Mosfellsbæ
Vegna aukinna umsvifa
vantar hársnyrtifólk, sveina
og meistara til starfa.
Óskum eftir starfsfólki!
Nánari upplýsingar veitir
Arndís í síma 8452227
texture@texture.is