Fréttablaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 27. mars 2010 7
Kennari óskast
Menntaskólinn Hraðbraut óskar að ráða kennara
næsta vetur til að kenna náttúrufræði og líffræði.
Áhugasamir sendi upplýsingar um menntun
og fyrri störf á netfangið ohj@hradbraut.is.
Viltu vera
í okkar liði?
Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 4. apríl nk.
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og
sölu hágæðasamheitalyfja. Fyrirtækið er með starfsemi í 40 löndum.
Actavis hf. og Medis eru dótturfyrirtæki samstæðunnar á Íslandi og eru
staðsett í Hafnarfirði. Hjá Actavis á Íslandi starfa um 600 starfsmenn á
ýmsum sviðum.
Við leitum að konum jafnt sem körlum í eftirfarandi störf hjá Actavis hf.
Starfsmenn í gæðarannsóknadeild
Störfin tilheyra gæðasviði Actavis hf. og fela í sér mælingar á hráefnum og fullbúnum vörum, eftirlit með tækjabúnaði og viðhald og þróun á gæðakerfi
rannsóknarstofunnar. Leitað er að sérfræðingum og lyfjatæknum.
Við leitum annars vegar að einstaklingum með háskólamenntun á sviði raunvísinda og hins vegar einstaklingum sem lokið hafa lyfjatækni eða sambærilegu námi. Gerð
er krafa um nákvæm og öguð vinnubrögð. Góð tölvukunnátta og samskiptahæfni er einnig mikilvæg.
Störf í töfludeild
Í töfludeild fer fram lyfjablöndun sem felur í sér vigtun, blöndun og frumvinnslu hráefna. Einnig sér töfludeild um framleiðslu á töflum og hylkjum. Í starfinu felst
samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting. Unnið er á þrískiptum vöktum á virkum dögum, viku í senn á dag- og kvöldvöktum en fjóra daga þegar um er að ræða
næturvaktir.
Við leitum að jákvæðum einstaklingum sem geta tileinkað sér nákvæm og vönduð vinnubrögð. Viðkomandi þarf að vera góður í að vinna í hópi og búa yfir verklagni.
Iðnmenntun og reynsla af vinnu við vélar er kostur, en þó ekki nauðsynleg. Grunnþekking í ensku er æskileg.
Sérfræðingur á fjármálasviði
Starfið tilheyrir Business Improvement sem er deild á fjármálasviði Actavis hf. Helstu verkefni viðkomandi eru að
útbúa og viðhalda skýrslum fyrir hinar ýmsu deildir fyrirtækisins, taka þátt í árlegri áætlanagerð, sjá um útreikninga
og halda utan um verðskrá. Starfið felur í sér mikil samskipti við aðrar deildir Actavis hf.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun í verkfræði eða sambærilegu. Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
og þekking á SQL er æskileg. Gerð er krafa um góða enskukunnáttu og viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði í
starfi ásamt því að búa yfir góðri samskiptahæfni.
Sérfræðingur – Business Development
Business Development ber ábyrgð á markaðssetningu og sölu á lyfjatengdu hugviti og lyfjum Actavis til annarra lyfjafyrirtækja. Megin þungi verkefnanna er samningagerð
ásamt stuðningi við söluskrifstofur Medis erlendis með því að veita þeim m.a. ráðleggingar um verð á vörum og stöðu þróunarverkefna.
Starfið felur í sér samningagerð og sölu á lyfjum og lyfjahugviti til viðskiptavina Medis, samskipti við umboðsmenn og dótturfélög erlendis, tilboðsgerð og samskipti við
viðskiptavini sem og leit að nýjum viðskiptatækifærum, auk þess að taka virkan þátt í áætlanagerð.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í lyfjafræði eða hliðstæða menntun. Starfsreynsla á sviði samningagerðar og krefjandi samskipta er kostur. Mjög góð ensku- og
tölvukunnátta er skilyrði. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, fylgt verkefnum eftir sem og búa yfir samstarfs- og skipulagshæfni.
Actavis býður upp á…
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem
sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk
fræðslustyrks
öflugt starfsmannafélag