Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 2
2 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR Í dag Miðasala á staðnumHúsið opnar kl 19 ELDGOS Kristján Guðmundsson býr að Steinum undir Eyjafjöllum og er því í nágrenni eldgossins í jöklinum. Hann kippir sér ekkert upp við eldsumbrot- in, enda öllu vanur þar sem þetta er þriðja gosið sem hann sér í návígi. Kristján bjó í Vestmannaeyjum og var í svaðilför sem margir muna eftir, þegar nokkrir Eyjamenn brutu bát í lendingu í Surtsey, árið 1963. Þá var hann í hópi íbúa sem flúðu upp á land þegar eldgos braust út í Heimaey árið 1973. Hann segir allt aðra stemningu varðandi gosið nú en í Heimaey. „Þá varð maður bara að forða sér um nótt- ina. Menn áttu fótum sínum fjör að launa.“ Gosið nú hefur ekki mikil áhrif á Kristján, hann segist að mestu hætt- ur búskap og vera með um 30 kindur og nokkur hross. Honum dettur ekki í hug að flytja búferlum til að fá frið fyrir þessum eldgosum, enda væri eins víst að það færi að gjósa hvar sem hann væri. „Ég er öllu vanur og kippi mér ekkert upp við þetta. Ég sef alveg rólegur.“ Kristján gerir þó ekki mikið úr því að hafa upplifað öll þessi eldgos. „Þetta er bara svona,“ segir hann. kolbeinn@frettabladid.is Öllu vanur eftir þrjú eldgos um ævina Kristján Guðmundsson kippir sér ekki mikið upp við eldgosið í Eyjafjallajökli þótt hann búi í næsta nágrenni. Þetta er þriðja gosið sem hann upplifir og seg- ist sofa rólegur. Hann lenti í svaðilför í Surtsey og flúði Heimaey vegna goss. KOMNIR Í BÁTINN Félagarnir voru fegnir að komast í bátinn eftir hrakninga í sjón- um. Kristján er lengst til vinstri, en við hlið hans sitja bræðurnir Kristján og Egill Egilssynir. MYND/SIGURGEIR Gosið við Surtsey var mánaðargamalt þegar hópur Vestmannaeyinga, allt þátttakendur á skipstjóra- og stýri- mannanámskeiði, sigldi að hinni nýju eyju. Tilgangurinn var tvíþættur: að vera fyrstu Íslendingarnir í land og að mótmæla nafngiftinni. Vesturey vildu Vestmannaeyingar að eyjan héti, ekki Surtsey. Lítilli jullu var skotið út, en rétt áður en hún kom að eynni hvolfdi henni. Kristján var um borð í hraðbátnum og skömmu áður en fimmmenningarnir kröfluðu sig í land skaust hann af bátnum og synti í land á eynni. Hann steig því fyrstur Íslendinga í land á hinni nýju eyju. Þar flaggaði hann íslenskum fána. Með í för var skjaldar- merki Vestmannaeyja og nafnspjald merkt Vesturey. Þetta týndist þegar jullunni hvolfdi. „Þetta var bara ævintýraþrá,“ segir Kristján um svaðil- förina. Hann segir að það hafi verið merkilegt að stíga fæti á eyjuna nýju. Innan við fimm mínútum eftir að félagarnir yfirgáfu eyna kom mikið öskugos yfir alla eyna, með stórgerðum vikurmolum. Enginn slasaðist alvarlega, en þó brann einn mannanna á fæti. Vildu að hún héti Vesturey BRETLAND Nick Clegg, leiðtoga Frjálslyndra demó- krata, tókst að standa uppi í hárinu á David Camer- on og Gordon Brown aðra vikuna í röð í sjónvarps- kappræðum flokksleiðtoganna á fimmtudag. Aðeins tæpar tvær vikur eru til þingkosninga í Bretlandi og frjálslyndir standa nú jafnfætis íhalds- mönnum, en Verkamannaflokkurinn mælist með einna minnst fylgi. Með óvæntri velgengni Cleggs er kosningabar- áttan orðin mun meira spennandi en útlit var fyrir, þegar íhaldsmenn virtust ætla að gjörsigra Verka- mannaflokkinn án afgerandi aðkomu frjálslyndra. „Ég er hrifinn af því hve jákvæður Clegg er,“ sagði Andrew Pring, 44 ára kjósandi, sem sat í sjónvarpssalnum á fimmtudagskvöld og fylgdist með leiðtogunum þremur takast á. „Gordon Brown talar af skynsemi um efnahagsmál en hann var á vaktinni þegar allt fór úrskeiðis.“ Engu að síður gæti hæglega farið svo að Verka- mannaflokkurinn fái á endanum flest þingsæti jafn- vel þótt hann fái minnst fylgi kjósenda í prósentum talið. Það stafar af því að kosið er í einmennings- kjördæmum, sem þýðir að sá frambjóðandi, sem flest atkvæði fær í viðkomandi kjördæmi, hreppir þingsætið. - gb Nick Clegg og David Cameron hafa forskot á Gordon Brown í Bretlandi: Spennan vex fyrir kosningarnar LEIÐTOGARNIR ÞRÍR Nick Clegg, leiðtogi frjálslyndra, Gordon Brown forsætisráðherra og David Cameron, leiðtogi íhalds- manna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍSRAEL, AP Sendifulltrúi Banda- ríkjaforseta reynir nú að blása lífi í friðarviðræður Ísraels og Pal- estínu sem hafa verið stopp í meira en ár. Um leið eru stirð- leikar í sam- skiptum Banda- ríkjanna og Ísraels. Öldungadeild- arþingmaður- inn og samn- ingamaðurinn George Mitchell frá Bandaríkjunum fundaði í gær með Benjamin Netanjahú, forsæt- isráðherra Ísraels. Netanjahú hefur hafnað kröfum Bandaríkjamanna um að stöðva uppbyggingu landtökubyggða í austurhluta Jerúsalem. Upplýsing- ar frá skrifstofu Netanjahú herma þó að fundurinn hafi gengið vel og hann setjist á ný niður með Mitchell á morgun. - óká Fundað í Ísrael á morgun: Reyna að blása lífi í viðræður BANDARÍKIN/AP Ellefu manna af olíuborpallinum sem sprakk á Mexíkóflóa í vikunni er enn leit- að. Hrint hefur verið af stokk- unum umfangsmikilli aðgerð til að koma í veg fyrir meiri háttar umhverfisslys. Olíuborpallurinn brann í tvo daga eftir mikla sprengingu áður en hann sökk til botns á Mexíkó- flóa 80 kílómetra undan strönd Bandaríkjanna. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Allt kapp er lagt á að koma í veg fyrir að olía, sem þegar hefur lekið í sjóinn, nái landi. Stjórn- völd óttast að í uppsiglingu sé mesta mengunarslys Banda- ríkjanna síðan Exxon Valdez strandaði í Prins Williamssundi í Alaska árið 1989. Þá láku milljón- ir lítra af olíu úr skipinu og þakti 1.300 kílómetra strandlengju með skelfilegum áhrifum á lífríkið. - shá Óttast mikið umhverfisslys: Ellefu manna er enn leitað FRÁ MEXÍKÓFLÓA Pallurinn logaði í tvo sólarhringa og sökk þá til botns. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMGÖNGUR Kostnaði vegna flugmála verður mætt í auknum mæli með notendagjöldum á næstu árum. Á það meðal annars við um rekstur leiðsögu- kerfis innanlandsflugsins, viðhaldsverkefni á Keflavíkurflugvelli, byggingu samgöngumið- stöðvar við Reykjavíkurflugvöll og stækkun flugstöðvarinnar á Akureyri. Bæði stendur til að hækka gjaldskrár og leggja á ný gjöld. Fjallað er um þessi áform í nýrri samgöngu- áætlun en ekki er gerð nákvæm grein fyrir þeim. Fram kemur þó að á næstu árum þurfi að ráðast í umfangsmikil og kostnaðarsöm við- haldsverkefni á innviðum Keflavíkurflug- vallar en litlu fé hefur verið varið til fram- kvæmda frá því íslenska ríkið tók við rekstri vallarins af Bandaríkjamönnum haustið 2006. Kostnaðurinn verður greiddur af viðskiptavin- um flugvallarins í formi þjónustugjalda. Bygging samgöngumiðstöðvar við Reykja- víkurflugvöll og stækkun flugstöðvarinnar á Akureyri verða kostaðar með lánum frá lífeyr- issjóðunum. Þau verða endurgreidd með sér- stakri gjaldtöku, innritunargjöldum og öðrum tekjum, að því er fram kemur í samgönguáætl- uninni. Ekki liggur fyrir hve há gjaldtakan á notendur þarf að vera. Þá er upplýst að þegar hafi verið lagðar fram tillögur um upptöku þjónustugjalds og hækkun á gjaldskrá vegna reksturs flugleið- sögu innanlands. - bþs Kostnaður af framkvæmdum vegna flugmála leggst í auknum mæli á notendur: Áform um hækkun gjalda á flugið LENT Ráðast þarf í umfangsmikil og kostnaðarsöm viðhaldsverkefni á innviðum Keflavíkurflugvallar. Helga leiðir Frjálslynda Helga Þórðardóttir kennari skipar 1. sætið á framboðslista Frjálslynda flokksins í borgarstjórnarkosning- unum í maí. Haraldur Baldursson tæknifræðingur skipar 2. sætið. Listinn var kynntur í gær. Framboð Frjálslynda flokksins og óháðra fékk einn mann kjörinn í borgarstjórn fyrir fjórum árum. STJÓRNMÁL BENJAMIN NETANYAHU SPURNING DAGSINS Sunna, eru þetta ekki bara einhverjar kerlingabækur? „Það er allavega ekki karlalátunum fyrir að fara.“ Sunna Dís Másdóttir safnar reynslusögum mæðgna fyrir meistaraverkefni sitt í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Viðræður halda áfram Ahmet Davutoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, segir að Dervis Eroglu, nýkjörinn forseti tyrkneska hluta eyjunnar Kýpur, muni halda áfram sameiningarviðræðum við gríska hluta eyjunnar, þrátt fyrir harða aðskilnaðarstefnu. KÝPUR Lokað við eldstöðina Öll almenn umferð er bönnuð nærri eldstöðinni á Eyjafjallajökli. Banns- væðið nær yfir jökulinn og hlíðar hans, Fimmvörðuháls og Mýrdals- jökul. Einnig er vegurinn í Þórsmörk lokaður allri umferð. Fólk er beðið um að virða þessar lokanir. SAMGÖNGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.