Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 63
5 MENNING
Vegna fjölda áskorana verð-
ur endurtekinn annað kvöld í
Iðnó samtalsþáttur sem Auður
Jónsdóttir rithöfundur sviðsetti
fyrir réttri viku, en maður henn-
ar, Þórarinn Leifsson, teiknari
og höfundur, tók sig til og vann
íslenska gerð af viðtali erlends
blaðamanns við forsetahjónin
sem birtist í Condé Nast, ensku
glansriti sem er flaggskip sam-
nefndrar glanstímaritaútgáfu.
Frumflutningur á mánudag gekk
vel. Sýningarnar annað kvöld
verða tvær og hefst sú fyrri kl.
20 en sú seinni og allra síðasta
klukkan 21.30.
Auður hefur skipað svo í hlut-
verk: Snorri Ásmundsson fer
með texta Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta smáþjóðar; Ásdís
Sif Gunnarsdóttir leikur Dorrit
Moussaieff og Davíð Þór Jónsson
fer með hlutverk blaðamannsins
Joshua Hammer og er jafnframt
höfundur hljóðmyndar. Kría
Brekkan leikur hund forsetahjón-
anna.
Miðasala er við innganginn í
Iðnó.
Leikin viðtöl úr glanstímariti
Snorri Ásmundsson fær loks að leika
forseta.
-
ð
i
-
i
u
n
sem gildir“ sagði Eliot „er að vera
stórgáfaður“ – sem Kristján er, en líka
stórskemmtilegur, mikill fagurkeri,
formfastur, tilfinningaríkur, frjór og
kemur lesendum sínum sífellt á óvart.
Rýnir í eðli lífs og ljóðs.
Við inngang er annars litlu að bæta
og einsætt að hvetja lesendur til að
kynna sér hann vel áður en lagt er
til atlögu við ljóðin – sem mörg hver
(þrátt fyrir stranga formskipan fram-
an af) kynnu að koma þeim lesendum
spánskt fyrir sjónir sem lítt (eða ekki)
hafa gefið sig að nútímaljóðum. Veld-
ur þar ekki síst að ljóðin eru dæma-
laust rík af vísunum – ekki síst í eldri
skáldskap innlendan sem útlendan –
og einnig „hlutlægum samsvörunum“,
þau tjá ósjaldan tilfinningu eða ástríðu
með hlutum, viðureign, atviki, aðstæð-
um eða atburðakeðju sem er forskrift
að þeirri tilteknu tilfinningu og jafn-
gildi hennar, fremur en að ljóðin æpi
eða útmáli ástríðuna einbera: eru ekki
„útrás geðhrifa“. Vísanirnar eru hins
vegar ávallt „skiljanlegar“, a.m.k.
„skynjanlegar“ (og skila þar með ætl-
uðum áhrifum), innan ramma ljóðs-
ins og gera sjaldnast (ótvírætt) tilkall
til að lesandinn þekki fordæmið – eru
hvorki ráðgátur né forsenda gefinnar
merkingar.
Sigurður Hróarsson
Niðurstaða: Kærkomin bók, lykill að list-
rænu undralandi Kristjáns Karlssonar.
rtýpur, trilla, tónletur, samgönguvél,
gnaeyjan, perlaðar andlitsmyndir, gjörn-
ölvuleikur, áttundi dagur sköpunarsög-
port-hópur, þátttökulist – það kraumar
margt á seyði og hvernig ætli ný augu líti
kann: hvar er hrunið best tákngert í grip-
kriftarhópanna? Þangað hlýtur skýrslan
a sér fyrst hún rataði upp á svið Þjóðleik-
sumardaginn fyrsta, inn í sjálfa Íslands-
na.
ngin er í samvinnu við Listasafn Reykja-
Í ár eru um 79 útskriftarnemendur sem
rk sín, 47 í hönnunar- og arkitektúrdeild
myndlistardeild. Sýningarstjórar eru Dan-
l Björnsson, Jóhann Sigurðsson og Björn
ndsson. Verk nemenda á sýningunni eru
ur þriggja ára náms við Listaháskólann
m markmiðið hefur verið að skapa nem-
aðstöðu til að mennta sig sem listamenn
a þá reiðubúna til að takast á við víðtæk
sefni á skapandi og gagnrýninn hátt með
i, áræði og framsækni að leiðarljósi.
ngin er opin daglega frá kl. 10.00-17.00,
udaga frá kl. 10.00-22.00. Aðgangur er
og allir velkomnir.
RJÁLS
eru að læra list samkvæmt bókinni og nýjustu
verk sitt. MYND FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN