Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 66
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
AÐ TJALDABAKI
Stórsveit Reykjavíkur
stendur fyrir árlegu Stórsveita-
maraþoni í Ráðhúsi Reykja-
víkur á morgun frá kl. 13-18.
Maraþonið er nú í fyrsta sinn
haldið í tengslum við Barna-
menningarhátíð í Reykjavík.
Að þessu sinni koma eftirfar-
andi stórsveitir fram: Stór-
sveit Reykjavíkur, Stórsveit
Tónlistarskóla FÍH, Stórsveit
Tónlistarskólans í Garðabæ,
Stórsveit Skólahljómsveita
Reykjavíkurborgar, Big band
Svansins og Smásveit Tónlist-
arskóla Seltjarnarness, Stór-
sveit Suðurlands, Léttsveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæj-
ar, Stórsveit Lúðrasveitarinn-
ar Svans og Stórsveit eldri
borgara. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill á meðan
húsrúm leyfir, en áhorfend-
um er frjálst að koma og fara
á meðan maraþonið stendur
yfir.
Þeir bernskufélagar úr
Hafnarfirði, Davíð Þór og
Steinn Ármann, frumsýna
uppistands verk í kvöld í
Borgarleikhúsinu eftir Ricky
Gervais. Hann sló sem
kunnugt er rækilega í gegn
sem höfundur og aðalleikari
The Office-þáttanna, sem eru
einhverjir vinsælustu og mest
verðlaunuðu sjónvarpsþættir
síðari ára. Þeir Radíusbræður
hafa gert þessar sýningar
að sínum eigin með hjálp
leikstjórans Gunnars B. Guð-
mundssonar, sem leikstýrði
síðasta Skaupi og kvikmynd-
inni Astrópíu. Áhorfendur fá
í raun tvöfaldan skammt af
uppistandi í einni sýningu:
fyrir hlé er það
Pólitík með
Davíð Þór
og eftir hlé
er það Villi-
dýr með Steini
Ármanni.
Nóvember 2007
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…