Fréttablaðið - 24.04.2010, Blaðsíða 68
32 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR
L
ag Michaels Jackson
heitins var sungið af
mikilli innlifun í Hall-
grímskirkju á mið-
vikudaginn þegar sólin
skein inn um steinda
gluggana á þessum sólríka síðasta
degi vetrar. Þetta voru nemendur
á yngsta stigi Háteigsskóla sem
sungu eins og englar en börnin
sýndu þar óperuna Jörðina okkar
sem var samin af tónmenntakenn-
aranum Elínu Halldórsdóttur og
leiklistakennaranum Rannveigu
Þorkelsdóttur.
Gospelkór Háskólans í Reykja-
vík aðstoðaði börnin við síðasta
lagið í óperunni en þar var á ferð
lagið Earth song eftir Michael
Jackson í íslenskri þýðingu. Börn-
in hönnuðu og máluðu sjálf bún-
ingana í Frístundaheimilinu í
Háteigsskóla og börnin voru í hlut-
verki fiska, fugla, spendýra, gróð-
urs auk þess sem þau elstu túlkuðu
svartklætt mannfólkið sem þurfti
að bera gasgrímur vegna þess hve
andrúmsloftið er orðið mengað.
Verkið er einmitt eins konar ákall
til mannfólksins um að snúa við
þeirri neikvæðu þróun sem á sér
stað í heiminum hvað umhverfis-
mál snertir. Í tengslum við verk-
efnið lærðu börnin um mengun,
loftslagsbreytingar og fleira til að
efla umhverfisvitund þeirra.
Óvænta gesti bar að á sýningunni
í Hallgrímskirkju en þar var stödd
fréttastofan Al Jazeera sem var að
gera fréttaúttekt um Ísland í skugga
eldgossins. Myndskeið af glaðlegum
íslenskum börnum var því í kjölfar-
ið í heimsfréttunum á fimmtudag
sem þótti endurspegla lífsgleði og
þrautseigju íslensku þjóðarinnar
á tímum þegar efnahagskreppa og
eldgos skekja landið.
Loftslagsbreytingar, mengun,
rafmagnsbílar og endurvinnsla
Börn úr Háteigsskóla tóku þátt í menningarhátíð barna í Reykjavík og sýndu óperuna Jörðin okkar í Hallgrímskirkju á miðviku-
dagsmorgun. Fréttablaðið fékk að fylgjast með og spjalla við nokkur barnanna um hvaða hættur steðja að jörðinni okkar.
SÖNGUR Á SÍÐASTA VETRARDEGI Börnin voru fest á filmu af fréttastofunni Al Jazeera þegar þau sungu lag Michaels Jackson um jörðina okkar á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANNAÐ AÐ HENDA KÓKFLÖSKUM OG DRULLUGUM SOKKUM
Úrsúla Örk, 7 ára.
Veistu hvað er átt við þegar er talað um umhverfismál?
Það þýðir að við eigum að hætta að fleygja rusli og dósum
út um allt, og alls ekki kókflöskum og drullugum sokkum.
Hvað finnst þér mætti fleira bæta í umhverfismálum?
Mér finnst líka að fólk sé ekki nógu gott við dýrin sín, sumir
fara nefnilega illa með dýrin sín. Og of mikil mengun getur
látið dýrin úti í náttúrunni deyja.
Hvað er það mikilvægasta sem við getum gert til að bjarga
jörðinni?
Ég myndi segja öllum sem eru búnir að drekka kókið sitt að
fleygja dósunum í ruslið. Fólk er alltaf að fleygja rusli út um allt.
Allt ruslið í heiminum er mesta vandamálið.
Hvaða hlutverk lék bekkurinn þinn í dag?
Við vorum dýrin og ég var broddgöltur. Það var skemmtilegt.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ VA
LLI
JÖRÐIN VERÐUR SVÖRT OG ÓNÝT
Nói Baldvin, 7 ára
Var eitthvað nýtt sem þú lærðir
um umhverfismál núna í skól-
anum?
Já! Ég vissi ekki að veðrið
gæti breyst bara alveg strax af
því að við erum að menga, að
það kæmi kannski bara hagl og
svo sól og svo rigning og svo
vindur og svo snjór strax á eftir.
Það væri ekki gaman ef veðrið
yrði svona.
Hvað gerist ef mannfólkið held-
ur áfram að menga?
Þá verður jörðin svört og
ónýt og það verða engin dýr og
grasið breytist í ösku.
Hvað finnst þér að fólk eigi að
gera til að hjálpa til?
Fólk á að setja hluti í endur-
vinnslu og búa til nýtt flott dót
úr gömlu dóti sem það getur
notað rosalega vel. Svo á fólk
að fá sér rafmagnsbíl ef það vill
endilega fá sér bíl, en það ætti
samt bara að hjóla eða labba.
Mér finnst líka alls ekki gott
að drepa hvalina af því það er
sorglegt og kannski verða þeir
útdauðir ef veiðimennirnir veiða
of mikið.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Pandabjörn af því mér finnst
þeir flottir og ég sá einn í dýra-
garði einu sinni.
Dagbjört Hanna,
8 ára
Hvað ert þú búin
að læra um jörðina
okkar í skólanum?
Að við eigum
ekki bara að hugsa
um mannfólkið
heldur líka dýrin
sem búa á jörðinni.
Hvað gerist fyrir
dýrin ef við meng-
um of mikið?
Sum dýr deyja
út af mengun. Við
verðum að vera
góð við fiskana í
sjónum og hætta að henda rusli og eitri í sjóinn.
Og ef við mengum of mikið þá verður lofthjúpur-
inn svo þykkur að hitinn festist við jörðina og þá
bráðnar Grænland og svoleiðis og þá myndu allir
fiskarnir deyja.
Hvað var þitt hlutverk í sýningunni?
Ég var að leika tré sem var að vaxa á jörðinni.
SLÆMT EF GRÆNLAND BRÁÐNAR FLOKKUN Á RUSLI ER MIKILVÆG
Nanna Francisca, 9 ára
Hvert finnst þér vera mikil-
vægasta umhverfismálið?
Við verðum að hætta að
menga og hugsa líka betur
um dýrin sem lifa í náttúr-
unni. Við verðum að hætta
að henda rusli út um allt og
vera góð við dýrin af því að
þau bjuggu líka á jörðinni
fyrst. Svo eigum við að nota
rafmagnsbíla.
Hvað fleira lærðir þú um
umhverfið í skólanum?
Ég lærði að það verði lofts-
lagsbreytingar, það þýðir að
veðrið fer að breytast af því að
við erum búin að menga svo
mikið og byggja verksmiðjur.
Hvað finnst þér að fólk eigi
að gera heima hjá sér til að
hjálpa til?
Fólkið ætti að flokka
ruslið sem það hendir í
ruslatunnurnar heima hjá sér.
Hvaða hlutverk lékst þú í
óperunni?
Minn bekkur lék fólkið sem
þarf að vera með gasgrímur af
því að það er búið að menga
jörðina svo mikið.
NENNIR EKKI AÐ FLYTJA Á AÐRA PLÁNETU
Ragnar Helgi, 8 ára
Hvað ertu búinn að læra um jörðina okkar
undanfarið?
Við eigum ekki að eyðileggja jörðina
okkar af því ég nenni ekki að flytja til Mars
eða Júpíter eða eitthvað. Þá myndi ég bara
vera fastur í geimnum og það er ekkert
skemmtilegt þar. Það er eiginlega ekki neitt
úti í geimnum.
Hvert finnst þér vera stærsta vandamálið
sem steðjar að jörðinni?
Það er mengunin. Bílarnir og reykur
úr sígarettum og svo líka þessi aska sem
er að koma af Eyjafjallajöklinum eru að
menga jörðina.
Hvað finnst þér að við eigum helst að gera
til að hjálpa til í umhverfismálum?
Það sem við eigum að gera er að hætta að henda rusli á götuna og fá
okkur rafmagnsbíla í staðinn fyrir venjulega bíla. Þeir menga ekki neitt. Mig
langar að fá mér rafmagnsbíl. Og já, það má alls ekki henda rafgeymum í
ruslið.
Hvaða var skemmtilegast við að setja upp óperuna?
Bekkurinn minn fékk að finna orð og svo kom alvöru rappari og gerði
rappsöng úr orðunum.