Fréttablaðið - 24.04.2010, Síða 6

Fréttablaðið - 24.04.2010, Síða 6
6 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR VIÐSKIPTI „Þetta hefur vissulega neikvæð áhrif á lífeyrissjóðina. En við byrjuðum að færa niður kröfur okkar á sparisjóðina árið 2008 og höfum gert það reglulega síðan þá,“ segir Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festa lífeyris- sjóðs, um yfirtöku ríkisins á Spari- sjóði Keflavíkur og Byr í gærnótt. Hann segir niðurfærsluna þegar komna fram í ársreikningi. Talið er að LSSR, Gildi og Líf- eyrissjóður verzlunarmanna tapi á bilinu sex til átta milljörðum króna á yfirtöku ríkisins á spari- sjóðunum tveimur. Forsvarsmenn sparisjóðanna beggja skiluðu starfsleyfum þeirra til Fjármálaeftirlitsins í fyrrakvöld og tók ríkið þá yfir í kjölfarið. Þetta eru stærstu spari- sjóðir landsins og hefur verið unnið að fjárhagslegri endurskipu- lagningu þeirra síðan í fyrravor. Ráðamenn hafa talað þannig um sparisjóðina að stutt hafi verið í að ríkið legði þeim báðum til eig- infjárframlag sem miðaði að því að reisa þá við. Báðir sparisjóðirn- ir áttu að mynda hryggjarstykkið í endurreisn sparisjóðakerfisins. Óvíst er með næstu skref. Kröfuhafar sparisjóðanna höfðu frest út þessa viku til að taka sam- komulagi ríkisins sem leiða átti til eiginfjárframlags úr ríkissjóði. Viðbúið var að ríkið myndi leggja Byr til um ellefu milljarða króna miðað við eiginfjárstöðu hans í árslok 2007. Kröfuhafar sparisjóðanna höfðu flestir samþykkt að færa kröfur sínar á hendur sparisjóð- unum báðum verulega niður, eða í kringum sextíu prósent, síðasta haust. Eftir því sem næst verður komist mun hafa á þá hallað í flestum tilboðum hins opinbera eftir það og áttu kröfuhafar að fá undir þrjátíu prósentum um ára- mótin. Þetta sættu þýsku kröfu- hafarnir sig ekki við, ekki síst Bayerische Landesbank, sem hefur tapað háum fjárhæðum á viðskiptum sínum hér. Því hafi hann ákveðið að taka ekki tilboði ríkisins. Eignir sparisjóðanna hafa verið settar inn í nýtt félag sem heyr- ir undir Bankasýslu ríkisins og situr ekkert eftir í gömlu spari- sjóðunum annað en kröfur lánar- drottna. Ríkið, sem tryggir allar innstæður, mun leggja hvorum þeirra til fimm milljarða evra, jafnvirði 860 milljóna króna, í samræmi við Evróputilskipan- ir um fjármálafyrirtæki. Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, segir viðbúið að sú fjárhæð hrökkvi skammt. „Þetta á ekki að verða mikil byrði fyrir skattgreiðendur. Við vonumst til að endurheimta það, svo sem með sölu eigna,“ segir hann. jonab@frettabladid.is VIÐSKIPTI „Ég tel það áhuga- verða áskorun að halda áfram að byggja upp banka sem mun gegna lykilhlutverki við endurreisn efna- hagslífsins,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri greiðslukorta- fyrirtækisins Valitor, sem mun taka við bankastjórastóli í Arion banka í júní. Stjórn bankans til- kynnti um ráðninguna í gær. Höskuldur tekur við starfinu af Finni Sveinbjörnssyni, núverandi bankastjóra sem setið hefur frá því seint í október 2008. Finnur gaf ekki kost á sér áfram. Í tilkynningu frá stjórn Arion banka kemur fram að fjöru- tíu manns hafi sótt um banka- stjórastöðuna, sem auglýst var í lok síðasta árs. Við val á nýjum bankastjóra var sérstaklega litið til þess að við- komandi hefði víðtæka stjórnunarreynslu, meðal annars úr fjármálageiranum. Höskuldur, sem verið hefur for- stjóri Valitor síðastliðin fjögur ár Höskuldur H. Ólafsson hefur verið ráðinn bankastjóri Arion banka: Breytingar með nýjum manni RECEPTIE KONINGINNEDAG 2010 De Consul Generaal der Nederlanden, de heer Bjarni Finnsson, en zijn echtgenote heten alle Nederlanders hartelijk welkom op de Koninginnedagreceptie te houden op Donderdag 29.april van 17.00 - 19.00 uur in Rafveituheimilinu Rafstöðvarvegi við Elliðarár, 110 Reykjavík. Wie aan de uitnodiging gehoor wil geven wordt verzocht zich vóór 27. april op te geven bij het Consulaat, tel. 533 1002. Op werkdagen geopend tussen 10:00 en 12:00. Of via e-mail: holland@holland.is Séreignarsparnaði þínum er vel varið hjá Auði Eru lífeyrismálin þín í lagi? Við tökum vel á móti þér Veldu ábyrga arðsemi Þýskir kröfuhafar fengu leið á ríkinu Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir stærstu sparisjóði landsins. Kröfuhafar telja ríkið hafa valtað yfir þá og því hafi þeir ekki tekið tilboði þess. Yfirtakan mun ekki kosta skattgreiðendur mikið, að mati efnahags- og viðskiptaráðherra. BYR Bankasýsla ríkisins mun eignast stærsta sparisjóð landsins. Einu eignirnar í gömlu sparisjóðunum eru kröfur lánardrottna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Auglýsingasími Allt sem þú þarft… HÖSKULDUR H. ÓLAFSSON ■ Nýráðinn bankastjóri Arion banka er menntaður viðskipta- fræðingur. ■ Hann er kvæntur Sigríði Ólafs- dóttur og eiga þau þrjú börn. Bankastjórinn og áður í 17 ár hjá Eimskipi, segir viðbúið að breytingar verði með nýjum manni í brúnni. „Ég mun í fyrstu kynnast starfsfólki og stjórnendum. En það koma alltaf breytingar með nýju fólki,“ segir hann. - jab Telur þú að kjósa ætti til Alþingis áður en núverandi kjörtímabil rennur út? Já 46,5% Nei 53,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Stóðu fjölmiðlar sig illa í að- draganda bankahrunsins? Segðu þína skoðun á visir.is BELGÍA, AP Roger Vangheluwe, 73 ára belgískur biskup, sagði af sér í gær og viðurkenndi að hafa níðst á ungum dreng, bæði þegar hann var prestur og eftir að hann varð biskup árið 1984. „Fórnarlambið ber þess enn merki,“ sagði Vangheluwe í yfir- lýsingu. Hann segist hafa játað brot sitt við drenginn og fjöl- skyldu hans, „og ég hef beðið þau fyrirgefningar. En það hefur ekki dugað til þess að hann fyndi frið, og það hefur heldur ekki dugað til þess að ég fyndi frið.“ - gb Belgískur biskup segir af sér: Viðurkennir kynferðisbrot „Þetta er dapurleg niðurstaða í ljósi þess hvað málið var komið langt á veg,“ segir Eggert Þór Aðalsteinsson, formaður Samtaka stofnfjáreigenda. Stofnfjáreigendur tapa öllu sínu. Fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir að þeir héldu eftir um fjórum prósentum af eign sinni. Þeir tóku sumir hverjir háar fjárhæðir að láni við umdeilda stofnfjáraukningu í Byr síðla árs 2007. Íslandsbanki, þá Glitnir, lánaði fimm hundruð stofn- fjáreigendum tíu milljarða króna. Þeir hafa deilt um tryggingu fyrir lánunum en lengi hefur verið því haldið fram að veð hafi verið í bréfunum sjálfum. Sumir stofnfjáreigenda munu vera mjög skuldsettir eftir stofnfjáraukninguna. Líklegt er að málið verði leyst fyrir dómstólum. Skuldugir stofnfjáreigendur „Her er enginn barlómur. Flestir eru ánægðir en undrandi yfir þessari niður- stöðu,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, mannauðsstjóri og yfirmaður rekstrar hjá Byr sparisjóði, um yfirtöku ríkisins á sjóðnum í fyrrinótt. Hún segir viðskipta- vini hafa stutt starfsfólkið með hlýjum kveðjum. Hjá Byr starfa um tvö hundruð manns en í kringum 130 hjá Sparisjóði Keflavíkur. Herdís segir marga hafa tekið þátt í fjárhagslegri endurskipulagningu sparisjóðsins og því hafi komið flatt upp á samstarfsfólk hennar að viðræður við kröfuhafa hafi runnið út í sandinn. Viðskiptavinir sýna hlýhug EGGERT ÞÓR AÐALSTEINSSON KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.