Fréttablaðið - 24.04.2010, Page 12
12 24. apríl 2010 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Matsfyrirtækið
Moody’s hefur breytt horfum á
lánshæfismati ríkissjóðs í stöðug-
ar úr neikvæðum. „Horfum fyrir
lánshæfisþak erlendra skuldbind-
inga var einnig breytt í stöðugar
úr neikvæðum,“ segir í tilkynn-
ingu Seðlabanka Íslands í gær og
tekið fram að breytingin eigi rætur
sínar að rekja til bættrar erlendr-
ar lausafjárstöðu ríkissjóðs vegna
endurnýjunar fjármögnunar frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS)
og ríkisstjórnum Norðurlanda.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafði Moody‘s nær lokið
nýju mati og stefndi á útgáfu þegar
ljóst varð föstudaginn 16. þessa
mánaðar að stjórn AGS hefði sam-
þykkt aðra endurskoðun efnahagsá-
ætlunar stjórnvalda og heimilað lán
hingað á grundvelli hennar. Matið
var því tekið upp og birt í gær, í
stað fyrirhugaðrar birtingar síð-
asta mánudag. Í matinu sem fall-
ið var frá var áfram gert ráð fyrir
neikvæðum horfum á lánshæfis-
mati ríkissjóðs.
Í nýju mati Moody´s er haft eftir
Kenneth Orchard, yfirmanni á
sviði greiningar Moody‘s á ríkjum
og gjaldmiðlum, að innflæði fjár-
magns á grundvelli efnahagsáætl-
unar stjórnvalda og AGS geti aukið
á væntingar og stutt við efnahags-
legan bata.
Þá er það mat Moody‘s að þótt
Icesave-deilan sé óleyst enn, þá
liggi fyrir að hún hafi ekki komið
í veg fyrir lánafyrirgreiðslu til
landsins. Þá virðist líklegt að nýr
Icesave-samningur verði íslensku
þjóðarbúi hagfelldari en fyrra
samkomulag.
Í greiningu Moody‘s er jafnframt
tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir
miklum áhrifum gossins í Eyja-
fjallajökli á íslenska hagkerfið,
enda sé það fjarri helstu þéttbýli-
skjörnum og flugsamgöngur ekki
raskast nema í nokkra daga.
Greining Íslandsbanka sagði í
gær nýtt mat Moody‘s vera „afar
jákvæðar fréttir“ þar sem líkur
hafi minnkað á að lánshæfisein-
kunnir ríkissjóðs detti niður í spá-
kaupmennskuflokk. „Verður for-
vitnilegt að fylgjast með því hvort
hin lánshæfisfyrirtækin fylgja
í kjölfarið. Sér í lagi væru það
jákvæð tíðindi ef Standard & Poor’s
myndu fara að fordæmi Moody’s og
ríkissjóður héldist í fjárfestingar-
flokki hjá tveimur stærstu mats-
fyrirtækjunum. Slíkt myndi að mati
okkar auka tiltrú markaða á land-
inu og flýta fyrir því að ríkissjóð-
ur geti farið að sækja fé á erlenda
markaði þegar fram í sækir,“ segir
í umfjölluninni. olikr@frettabladid.is
GOSIÐ Í EYJAFJALLAJÖKLI Í nýrri greiningu matsfyrirtækisins Moody‘s á lánshæfi
ríkisins er ekki gert ráð fyrir nema óverulegum áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á
efnahagslíf þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Horfur úr
neikvæðum
í stöðugar
Moody‘s breytti lánshæfiseinkunn ríkisins þegar
fyrir lá samþykki annarrar endurskoðunar áætlunar
stjórnvalda og AGS. Þá lá fyrir nýtt óbirt mat sem
gerði ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum horfum.
„Þetta er út af
fyrir sig ágætt.
Umfjöllunin er
mjög jákvæð,“
segir Gylfi Magn-
ússon, efnahags-
og viðskiptaráð-
herra, um nýja
lánshæfiseinkunn
Moody‘s. „Af þessu er ljóst að
ef við hefðum ekki getað komið
áætlun AGS áfram þá hefðum við
farið niður í ruslflokk. Núna erum
við stöðug í fjárfestingarflokki. Ég
býst ekki við öðru en að við getum
unnið okkur upp.“
Gylfi segir niðurstöðu Mood-
y‘s annars ríma vel við skýrslu
starfshóps AGS sem lýsi því að
efnahagslífið sé aðeins að rétta
úr kútnum og að skuldastaða
hins opinbera sé innan marka.
Hann segist fremur vænta bættra
einkunna frá fleiri matsfyrirtækjum.
- jab / óká
Jákvæð umfjöllun
Verður forvitnilegt að
fylgjast með því hvort
hin lánshæfisfyrirtækin fylgja
í kjölfarið.
GREINING ÍSLANDSBANKA
HYSJAR UPP UM SIG Robert Mugabe,
hinn umdeildi forseti Simbabve, þurfti
aðeins að lagfæra buxurnar áður en
hann tók á móti Mahmoud Ahmadin-
ejad Íransforseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Aðalfundur Lífeyris-
sjóðs verkfræðinga samþykkti
á þriðjudag yfirlýsingu um van-
traust á stjórn sjóðsins síðastliðið
starfsár. Stjórnin eigi að segja af
sér og boða aukafund til að kjósa
lífeyrissjóðnum nýja stjórn.
Stjórnarmenn eru kosnir til
þriggja ára í senn og aðeins var
ætlunin að kjósa einn nýjan í
fimm manna stjórn á fundinum á
þriðjudagskvöld. Þegar komið var
að lokum fundarins og búið var
að samþykkja að skerða lífeyris-
greiðslur um 10 prósent til viðbót-
ar við 10 prósent skerðingu í fyrra,
kom fram tillaga um vantraust á
stjórnina. Hún var samþykkt með
eins atkvæðis mun. Um 100 sjóðs-
félagar sátu þá fundinn.
Ingólfur Guðmundsson, sem tók
við starfi framkvæmdastjóra Líf-
eyrissjóðs verkfræðinga í febrúar
á þessu ári, segir að stjórnin muni
væntanlega taka ákvörðun um
viðbrögð sín við þessu vantrausti
sjóðsfélaga á næsta stjórnarfundi,
sem halda á fljótlega.
Ólíkt flestum stærstu lífeyris-
sjóðum landsins eiga atvinnurek-
endur ekki aðkomu að stjórn Líf-
eyrissjóðs verkfræðinga heldur
kjósa sjóðsfélagar alla stjórnar-
menn beinni kosningu. - pg
Greiðslur úr Lífeyrissjóði verkfræðinga skertar um 10% í annað skiptið á einu ári:
Samþykktu vantraust á stjórn
AFSKRIFTIR Lífeyrissjóðurinn hefur eins
og aðrir lífeyrissjóðir fært niður eignir
og skert réttindi lífeyrisþega í kjölfar
hrunsins.
MADRÍD, AP Læknar í Madríd á
Spáni græddu nýtt andlit á mann,
allt frá hárlínu niður á háls. Mað-
urinn er nú með nýtt nef, skinn,
kjálka, kinnbein og tennur.
Aðgerðin heppnaðist vel og
engin ör eru sjáanleg framan í
manninum, aðeins dauft ör á háls-
inum. Maðurinn getur ekki enn
talað, brosað eða borðað, en hefur
fulla sjón og getur kyngt munn-
vatni. Tíu sinnum hefur hluti and-
lits verið græddur á fólk, en þetta
er í fyrsta skipti sem svo er gert
með allt andlitið. - kóp
Afrek unnið í Madríd:
Græddu nýtt
andlit á mann